Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Nýsjálenski leikarinn Sam Neill er látinn, 78 ára að aldri, eftir að hafa nýverið jafnað sig af eitilfrumukrabbameini. Leiklistarferill Neill spannaði rúma hálfa öld, ógrynni kvikmynda og var hann talinn einn fjölhæfasti leikari sinnar kynslóðar. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk leikarans. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 16:02
Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Leikarinn Josh Grisetti, sem er best þekktur fyrir leik sinn í gamandramaþáttunum The Marvelous Mrs. Maisel, er látinn, aðeins 44 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 10:03
Leikarinn Sam Neill er látinn Leikarinn Sam Neill er látinn. Hann var 78 ára. Dánarorsök hans hefur ekki verið gefin upp en hann greindi nýlega frá því að hann hefði náð sér af eitilfrumukrabbameini, sem hann greindist með árið 2022. Lífið 13.7.2026 06:56
Dermot Murnaghan er látinn Dermot Murnaghan, fyrrverandi sjónvarpsþulur og sjónvarpskynnir Sky News, er látinn 68 ára að aldri. Erlent 11. júlí 2026 13:10
Joanna Pettet er látin Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns. Bíó og sjónvarp 10. júlí 2026 17:01
Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Við fráfall Megasar fordæmdi myndlistarmaðurinn Jón Óskar þöggunina sem hann telur að Megas hafi mátt sæta á bæði Bylgjunni og þá ekki síður Ríkisútvarpinu, sem hefði átt að renna blóðið til skyldunnar miðað við lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Nú hafa starfsmenn Ríkisútvarpsins stigið fram og hafnað þessu. Lífið 10. júlí 2026 14:28
Bonnie Tyler er látin Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“. Tónlist 9. júlí 2026 09:23
Kristinn V. Jóhannsson er látinn Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi stjórnarformaður Síldarvinnslunnar til nítján ára, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést 3. júlí síðastliðinn á heimili sínu í Reykjavík. Viðskipti innlent 8. júlí 2026 11:11
Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin 53 ára að aldri. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí síðastliðinn eftir erfið veikindi. Þrúður var lærð leikkona, lék á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi og starfaði sem flugfreyja í tvo áratugi samhliða leiklistinni. Lífið 8. júlí 2026 10:26
Megas er látinn Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi. Megas var 81 árs gamall. Lífið 7. júlí 2026 10:19
Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Tónlistarkonan Lauren Bennett er látin, 37 ára að aldri. Hún var hluti af sveitunum Paradiso Girls og G.R.L. auk þess að vera þekkt fyrir framkomu sína í laginu Party Rock Anthem sem kom út með LMFAO árið 2011. Lífið 6. júlí 2026 18:40
Michael Byrne er látinn Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 10:13
Söngvari YMCA látinn Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri. Tónlist 1. júlí 2026 09:10
Séra Þórir Stephensen er látinn Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í gær. Hann var 94 ára. Innlent 1. júlí 2026 06:51
Halldór Haraldsson er látinn Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. Tónlist 30. júní 2026 17:14
Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Franskur fótboltamaður að nafni Kenzo Kies drukknaði í ánni Rón í byrjun vikunnar. Hann var aðeins 21 árs. Fótbolti 25. júní 2026 11:30
Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði. Tónlist 22. júní 2026 19:17
Alan Greenspan er látinn Alan Greenspan, hagfræðingur og fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð hundrað ára gamall. Erlent 22. júní 2026 11:18
James Burrows látinn Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg. Bíó og sjónvarp 19. júní 2026 21:17
Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes. Tónlist 19. júní 2026 10:20
Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, áttatíu og sex ára að aldri. Hún var fjölhæf listakona og hlaut Edduverðlaun í tvígang, fyrst árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar Alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. Árið 2024 hlaut Margrét Helga svo heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld. Lífið 18. júní 2026 15:20
Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, er látin þrjátíu og fimm ára að aldri. TMZ greinir frá því að hún hafi fyrr í þessum mánuði lagst inn á sjúkrahús vegna vannæringar. Haft er eftir kærasta hennar að dánarorsökin hafi verið blóðsýking í kjölfar heilahimnubólgu sem leitt hafi til fjöllíffærabilunar. Lífið 17. júní 2026 22:55
Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Bandaríski tónlistarmaðurinn Oliver Tree er látinn, 32 ára að aldri. Hann fórst í þyrluslysi í Rio de Janeiro í Brasilíu. Tree er þekktur fyrir lög á borð við Life Goes On, When I'm Down og Miss You. Lífið 14. júní 2026 20:55
Margaret Kerry er látin Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals. Bíó og sjónvarp 14. júní 2026 12:39