Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“

Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.

Tónlist
Fréttamynd

Blöskrar við­brögðin eftir til­nefningu fyrir mis­tök

Tónlistarkona sem fékk tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir mistök er ósátt við viðbrögð skipuleggjenda við mistökunum. Hún fékk tölvupóst sólarhring eftir tilnefningu þar sem henni var tjáð að tilnefningin hefði verið send á hana fyrir slysni en hún segir framkvæmdastjóra ekki svara símtölum.

Innlent
Fréttamynd

Salka Sól látin fara

Sölku Sól hefur verið gert að hætta með útvarpsþættina sína á Rás 2 eftir um sex ára skeið. Síðasta þættinum var útvarpað í morgun.

Lífið
Fréttamynd

„Sann­kölluð rokk og ról goð­sögn“ fallin frá

Bandaríski söngvarinn og lagahöfundurinn Neil Sedaka er látinn, 86 ára að aldri. Söngvarinn öðlaðist heimsfrægð á sjöunda áratug síðustu aldar og átti marga slagara á toppi vinsældarlista á sínum tíma, meðal annars lög á borð við Oh! Carol, Breaking Up Is Hard To Do og Bad Blood.

Lífið
Fréttamynd

„Það veit enginn af þessu, ég er að opna mig núna“

Fjórða þáttaröðin af Tónlistarmönnunum okkar verður frumsýnd á Sýn+ 12. apríl og er stikla úr þáttunum nú komin í loftið. Auðunn Blöndal ræðir þar við fimm tónlistarmenn og eina hljómsveit. Þrjá tónlistarmannanna reyndi hann að fá í fyrstu seríuna.

Lífið
Fréttamynd

Lagið minnti á sig í sambandsslitunum

„Lífið er of stutt til að sleppa því óþægilega,“ segir tónlistarkonan og Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir sem er mætt með endurkomu inn í tónlistarsenuna. Hún ræddi við blaðamann um árin eftir Eurovision, tónlistina, sköpunargleðina, ástina og lífið og frumsýnir hér tónlistarmyndband.

Tónlist
Fréttamynd

10cc spilar á Ís­landi í sumar

Enska poppbandið 10cc treður upp í Eldborgarsal Hörpu þann 23. júní næstkomandi. Sveitin er frægust fyrir slagara á borð við I'm Not in Love, Dreadlock Holiday og The Things We Do For Love.

Lífið
Fréttamynd

Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin

Hlustendaverðlaunin taka á sig nýja og ferska mynd í ár en ákveðið hefur verið að fara óhefðbundna leið í afhendingu á verðlaununum. Eins og áður eru það hlustendur sem ákveða hverjir sigra í hverjum flokki og hefst kosningin á Vísi í dag.

Lífið
Fréttamynd

Einn vin­sælasti ís­lenski tón­listar­maðurinn ó­þekktur hér­lendis

Keath Ósk á íslenskan föður og filippseyska móður og gefur út tónlist undir nafninu Yaelokre. Nafnið hljómar ekki kunnuglega í eyrum margra en þó er um að ræða einn vinsælasta íslenska tónlistarmanninn á Spotify með þrjár milljónir mánaðarlegra hlustenda og stóran alþjóðlegan fylgjendahóp sem mætir á tónleika.

Tónlist
Fréttamynd

KK aldrei borgað minna í hús­næðis­lán en þegar Bjarni var ráð­herra

Þeir eru ófáir karlmennirnir sem heita Kristján Kristjánsson á landinu en það er bara einn KK. Hödd Vilhjálmsdóttir kíkti í heimsókn til hans í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi og ræddi við hann atvinnuferil KK sem tónlistarmanns sem nær aftur til ársins 1985 og eru því rúmlega 40 ár síðan hann fór að hafa tónlist að atvinnu.

Lífið
Fréttamynd

Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna

Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni.

Lífið
Fréttamynd

Frægðin steig Magna til höfuðs en að­eins í skamma stund

„Þetta var verulega mikið sjokk. Á þessum tímapunkti hefði ég bara átt að fara eitthvað út í sveit og vera þar, því þetta var bara svona, þetta var aðeins of mikið,“ segir Magni Ásgeirsson um heimkomuna til Íslands eftir þátttöku í bandarískum raunveruleikaþætti fyrir tuttugu árum. Frægðin steig Magna til höfuðs um stund en hann fann sjálfan sig og hamingjusama tíma með fjölskyldu sinni.

Lífið
Fréttamynd

Gyða semur tón­list fyrir kvik­mynd Bad Bunny

Gyða Valtýsdóttir mun semja tónlistina við kvikmyndina Porto Rico í leikstjórn rapparans René „Residente“ Pérez Joglar. Stórstjarnan Benito Martinez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, fer með aðalhlutverkið og munu Viggo Mortensen, Edward Norton og Javier Bardem einnig leika í myndinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sturluð vika hjá Krist­mundi Axel

„Okei, fallega fólk. Förum aðeins yfir þetta, stóra vikan! „Kominn heim“ er mest streymda íslenska lagið í dag,“ skrifar tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel á Instagram sitt en ellefu dagar eru liðnir frá því hann og Bubbi Morthens sendu frá sér lagið „Kominn heim“.

Tónlist
Fréttamynd

Öskursyngja ABBA lögin með á­horf­endum

Allir stærstu slagarar ABBA munu hljóma á einstöku ABBA söngpartýi sem fram fer í Hörpu og í Hofi á Akureyri. Selma Björns á von á trylltu stuði og segir ABBA aðdáendur alltaf taka vel undir ef tækifæri gefst til að öskursyngja ABBA lög.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Birgir Hákon orðinn pabbi

Rapparinn og Breiðhyltingurinn Birgir Hákon Guðlaugsson og kærasta hans Sigríður Birta eignuðust sitt fyrsta barn, lítinn dreng, í byrjun árs. 

Lífið
Fréttamynd

Úr barnaskemmtunum á klúbbinn

Tónlistarkonan Anna Bíbi ákvað að gera „klúbbaremix“ af Latabæjarslagaranum „Bing Bang“ og fékk með sér Unni Eggertsdóttur, sem lék Sollu stirðu um árabil. Unnur söng lagið mörg hundruð sinnum á barnaskemmtunum á sínum tíma og segir að nú sé komið að klúbbnum.

Tónlist
Fréttamynd

„Erum bara vinir“

Tónlistarfólkið Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska1867 og Flóni, eru „bara vinir“ en ekki að stinga saman nefjum eins og hefur komið fram á samfélagsmiðlum og mbl.

Lífið