Stórleikur LeBron James dugði ekki Lakers og Celtics töpuðu líka Þetta var ekki gott föstudagskvöld fyrir stuðningsmenn Los Angeles Lakers og Boston Celtics í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta en staðan er þó verri hjá liðsmönnum Lakers. Minnesota Timberwolves, Orlando Magic og Milwaukee Bucks fögnuðu öll sigri í nótt. Körfubolti 26.4.2025 09:00
Treyja Bryants margfaldast í verði og varð sú fjórða dýrasta í sögunni Fyrsta LA Lakers-treyjan sem Kobe Bryant klæddist í NBA-deildinni í körfubolta var seld á uppboði í gær og varð þar með fjórða dýrasta íþróttatreyja sögunnar. Körfubolti 25.4.2025 13:01
Kidd kominn í eigendahóp Everton Það virðist í tísku fyrir menn tengda NBA-deildinni í körfubolta að fjárfesta í enskum knattspyrnuliðum. Jason Kidd, þjálfari Dallas Mavericks, er nýjasti til að stökkva á þessa tískubylgju. Enski boltinn 24.4.2025 23:32
Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Nico Harrison, framkvæmdastjóri Dallas Mavericks, er án efa óvinsælasti maðurinn í borginni eftir að hann skipti stórstjörnunni Luka Doncic til Los Angeles Lakers fyrir Anthony Davis. Körfubolti 22. apríl 2025 10:30
Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Detriot Pistons jafnaði einvígi sitt á móti New York Knicks í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta en félagið var búið að bíða eftir þessum sigri í sautján ár. Körfubolti 22. apríl 2025 07:15
Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 Golden State Warriors tók forystuna í einvíginu gegn Houston Rockets í 1. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með tíu stiga sigri, 85-95, í leik liðanna í nótt. Körfubolti 21. apríl 2025 10:49
Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfubolta hófst í gær en hún byrjaði ekki vel fyrir Luka Doncic, LeBron James og félaga í LA Lakers sem voru eina liðið sem tapaði á heimavelli. Körfubolti 20. apríl 2025 09:31
Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Stuðningsmenn Dallas Mavericks virðast hreinlega fegnir að leiktíð liðsins hafi lokið í NBA-deildinni í nótt og sumir ætla núna að styðja við Luka Doncic með LA Lakers í úrslitakeppninni. Körfubolti 19. apríl 2025 10:06
Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta er handan við hornið og þó Los Angeles Lakers séu ekki talið það líklegt til að fara alla leið þá virðist fjöldi fólks hafa sett pening á að Luka Doncić, LeBron James og Austin Reaves geti komið körfuboltaspekúlöntum á óvart. Körfubolti 18. apríl 2025 22:01
Lagði egóið til hliðar fyrir liðið Donovan Mitchell og Cleveland Cavaliers hafa átt frábært tímabil til þessa í deildarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Mitchell hefur amt sem áður skorað aldrei skorað færri stig á einu tímabili síðan hann gekk í raðir félagsins árið 2022. Hvernig má það vera? Körfubolti 17. apríl 2025 23:00
Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA Dallas Mavericks og Miami Heat tryggðu sér í nótt bæði sæti í úrslitaleik um síðasta sætið sem er í boði í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta. Sacramento Kings og Chicago Bulls eru aftur á móti komin í sumarfrí. Körfubolti 17. apríl 2025 07:34
Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Golden State Warriors og Orlando Magic verða með í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta en liðin tryggði sig inn með sigri í umspilinu í nótt. Körfubolti 16. apríl 2025 07:17
Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Luka Dončić hefur stolið öllum fyrirsögnunum síðan hin ótrúlegu félagaskipti hans frá Dallas Mavericks til Los Angeles Lakers áttu sér stað. Skiptunum fylgdi gríðarleg treyjusala sem gerði það að verkum að treyja með Dončić og 77 á bakinu er nú sú vinsælasta í NBA. Körfubolti 15. apríl 2025 23:32
Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns NBA körfuboltafélagið Phoenix Suns ákvað í gær að reka þjálfara sinn Mike Budenholzer eftir að liðinu mistókst að komast í úrslitakeppnina þrátt fyrir að vera með stórstjörnulið. Körfubolti 15. apríl 2025 15:33
„Stuðningsmenn Dallas vilja bara ekki fyrirgefa þetta“ Luka Doncic og dramatísk endurkoma hans til Dallas í síðustu viku er á meðal þess sem menn munu ræða um í sérstökum uppgjörsþætti af Lögmálum leiksins í kvöld. Körfubolti 14. apríl 2025 17:17
Spilaði í sex sekúndur til að missa ekki úr leik Mikal Bridges spilaði alla 82 leiki í boði í NBA deildinni í körfubolta á þessu tímabili og þessi járnmaður deildarinnar heldur því áfram að missa ekki úr leik. Körfubolti 14. apríl 2025 16:32
Jokic sá þriðji með þrefalda tvennu að meðaltali í leik á tímabili Nikola Jokic, leikmaður Denver Nuggets, heldur áfram að skrifa nafn sitt í sögubækur NBA-deildarinnar í körfubolta. Körfubolti 12. apríl 2025 09:32
Jokic tjáir sig um óvæntan brottrekstur þjálfarans Nikola Jokic var með þrefalda tvennu í fyrsta leik Denver Nuggets eftir að Michael Malone var óvænt rekinn sem þjálfari liðsins. Jokic sagði að síðustu klukkutímar hafi verið erfiðir. Körfubolti 10. apríl 2025 13:00
Barðist við tárin fyrir leik en skoraði svo 45 stig gegn gamla liðinu Luka Doncic gat ekki haldið aftur af tárunum fyrir endurkomu sína til Dallas. Hann var þó fljótur að núllstilla sig og skoraði 45 stig þegar Los Angeles Lakers vann gamla liðið hans, 97-112, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 10. apríl 2025 10:33
LeBron fær Barbie dúkku af sér Bandaríski körfuboltamaðurinn LeBron James skrifar ekki aðeins nýja kafla í söguna í raunheimi því hann gerir það einnig í heimi Barbie dúkknanna. Körfubolti 9. apríl 2025 22:31
Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta er handan við hornið en það stöðvaði ekki forráðamenn Denver Nuggets í að reka Michael Malone, þjálfara liðsins. Körfubolti 8. apríl 2025 23:16
Lögmál leiksins: Hver verður MVP í NBA? Strákarnir í Lögmáli leiksins veltu vöngum yfir því hvaða leikmaður sé líklegastur til að verða valinn MVP í NBA-deildinni í vetur. Körfubolti 7. apríl 2025 16:30
Lakers vann toppliðið í vestrinu Luka Doncic skoraði þrjátíu stig þegar Los Angeles Lakers sigraði Oklahoma City Thunder, 99-126, í NBA-deildinni í körfubolta í gær. Körfubolti 7. apríl 2025 11:31
Tólf ára fangelsi fyrir að svindla á NBA stjörnum Kaupsýslumaður frá Georgíu er á leiðinni á bak við luktar dyr í langan tíma eftir að hann var dæmdur sekur um að svindla NBA leikmönnunum Dwight Howard og Chandler Parsons, sem báðir voru stórar stjörnur í deildinni á sínum tíma. Körfubolti 4. apríl 2025 23:16