Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Manchester City mun óska eftir sérstöku leyfi frá ensku deildinni til að Marc Guéhi fái að spila í úrslitaleik Carabao-bikarsins en Pep Guardiola talaði um þetta eftir sigurinn á Newcastle í undanúrslitunum í gær. Enski boltinn 5.2.2026 11:01
Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet verður ekki leikmaður Liverpool fyrr en í júlí. Liverpool og Rennes höfðu að sögn fjölmargar ástæður til að samþykkja sextíu milljóna punda samning en seinka komu hans um hálft ár. Sú helsta var vilji enska úrvalsdeildarliðsins til að forðast að brjóta fjármálareglur. Enski boltinn 5.2.2026 09:02
Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik enska deildarbikarsins í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir að City valtaði yfir Newcastle United í einvígi liðanna í undanúrslitum samanlagt 5-1. Enski boltinn 4.2.2026 19:33
Andri aftur með og loksins vannst sigur Blackburn hefur endurheimt Andra Lucas Guðjohnsen úr meiðslum og það virðist hafa haft góð áhrif því liðið vann í kvöld sinn fyrsta sigur síðan fyrir jól. Enski boltinn 3.2.2026 21:45
Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Harvey Elliott fór á lán til Aston Villa frá Liverpool í ágúst þegar hann var nýorðinn enskur meistari og hafði verið valinn leikmaður Evrópumóts U21 landsliða síðasta sumar. Fimm mánuðum síðar er hann að upplifa martröð sem hann hefur litla sem enga stjórn á sjálfur. Enski boltinn 3.2.2026 16:02
Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Lokadagur félagaskiptagluggans í ensku úrvalsdeildinni hefur aldrei verið jafn rólegur og í gær en þá var aðeins gengið frá aðeins sjö samningum. Enski boltinn 3.2.2026 09:30
Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Er hættulegt fyrir börn að skalla boltann? Fræðimenn hafa komist að því og vilja fjarlægja þann þátt fótboltans úr æfingum og leikjum ungs fótboltafólks. Enski boltinn 3.2.2026 08:03
Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld ákvað Chelsea að endurkalla Mamadou Sarr aftur úr láni frá Strasbourg í Frakklandi. Enski boltinn 2.2.2026 23:18
Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Tottenham fær James Wilson að láni frá Hearts í Skotlandi en þessi átján ára gamli leikmaður hafnaði tilboði frá Arsenal. Enski boltinn 2.2.2026 22:29
Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Sunderland vann þægilegan 3-0 sigur gegn Burnley í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og þriðja mark leiksins var einkar glæsilegt. Enski boltinn 2.2.2026 22:03
Mateta fer ekki til Mílanó Jean-Philippe Mateta er ekki á leið til AC Milan eftir allt saman. Samkomulag var í höfn við Crystal Palace og franski framherjinn var búinn að semja um launakjör en á síðustu stundu ákváðu stjórnarmenn í Mílanó að bakka út. Enski boltinn 2.2.2026 18:30
Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Arsenal var krýndur sigurvegari í fyrsta Meistarabikar kvenna í fótbolta í gær eftir að varamaðurinn Caitlin Foord tryggði liðinu 3-2 sigur á brasilíska liðinu Corinthians í framlengdum úrslitaleik. Enski boltinn 2.2.2026 14:00
Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool og besti maður liðsins á tímabilinu, hefur viðurkennt að hann myndi gjarnan vilja framlengja dvöl sína hjá félaginu en sagði að ákvörðunin væri „ekki í hans höndum“. Enski boltinn 2.2.2026 11:31
Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur samþykkt sextíu milljóna punda kaupverð fyrir varnarmanninn Jeremy Jacquet frá franska liðinu Rennes. Miðvörðurinn kostar meira en tíu milljarða íslenskra króna en mun þó ekki ganga til liðs við félagið í núverandi félagaskiptaglugga. Enski boltinn 2.2.2026 07:23
Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Það var nóg af mörkum í leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ekki var dramatíkin minni, Leikhús draumanna iðar af lífi og Dominic Solanke skoraði eitt af flottustu mörkum ársins gegn Manchester City. Enski boltinn 2.2.2026 07:02
Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Spænski landsliðsmaðurinn Mikel Merino, leikmaður Arsenal, verður frá í einhvern tíma vegna meiðsla en óttast er að hann hafi brotið bein í fæti. Enski boltinn 1.2.2026 20:47
Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Tottenham kom til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og tókst að landa jafntefli gegn Manchester City á heimavelli þegar að liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. City færist fjær toppsætinu milli umferða. Enski boltinn 1.2.2026 16:00
Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Tíu leikmenn Brentford sóttu 1-0 sigur gegn Aston Villa en Crystal Palace tókst að setja 1-1 jöfnunarmark á útivelli gegn tíu leikmönnum Nottingham Forest í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 1.2.2026 16:26
Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Manchester United fagnaði þriðja sigrinum í röð undir stjórn Michael Carrick þegar Fulham kom í heimsókn í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 3-2 eftir mikla dramatík. Heimamenn misstu niður tveggja marka forystu en Benjamin Sesko skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Enski boltinn 1.2.2026 13:31
Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekki vantaði sviptingarnar í leiki gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. Alls voru sextán mörk skoruð í leikjunum fimm í gær. Enski boltinn 1.2.2026 08:01
Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Eftir fimm deildarleiki í röð án sigurs vann Liverpool Newcastle United, 3-1, í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tvö mörk frá Hugo Ekitike á jafn mörgum mínútum sneru leiknum Liverpool í vil. Enski boltinn 31.1.2026 19:32
Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Chelsea kom til baka eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik gegn West Ham United og vann 3-2 sigur á Stamford Bridge í kvöld. Þreföld skipting Liams Rosenior, knattspyrnustjóra Chelsea, gaf góða raun. Enski boltinn 31.1.2026 17:01
Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Bournemouth vann sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum þegar liðið lagði Wolves að velli, 0-2, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma gerðu Brighton og Everton jafntefli, 1-1. Afmælisbarnið Beto reyndist hetja gestanna frá Liverpool. Enski boltinn 31.1.2026 17:08
Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Arsenal náði sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 0-4 sigri á Leeds United á Elland Road í dag. Þetta var fyrsti sigur Arsenal í fjórum deildarleikjum. Enski boltinn 31.1.2026 14:32