Viðskipti erlent

Fréttamynd

Paramount sigrar Netflix í bar­áttunni um Warner Bros.

Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Davos-toppur hættir vegna Ep­stein-tengsla

Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hefja aftur við­ræður við Paramount

Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery segja viðræður við eigendur Paramount Skydance um yfirtöku hafnar á nýjan leik. Það er eftir að eigendur Paramount hækkuðu kauptilboð sitt en fyrirtækið hefur staðið í baráttu við Netflix um að kaupa WBD eða hluta félagsins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Allar aug­lýsingar Ofurskálarinnar á einum stað

Seattle Seahawks báru sigur úr býtum í Ofurskálinni í nótt, þegar þeir sigruðu New Englands Patriots 29-13 í miklum varnarleik. Eins og alltaf var mikið húllumhæ í kringum þennan úrslitaleik og á hverju ári vekja auglýsingar sem eru framleiddar sérstaklega fyrir þessa útsendingu mikla athygli.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Skemmtigarðastjóri Disney verður for­stjóri

Stjórn stórfyrirtækisins Walt Disney hefur ráðið Josh D‘Amaro til að taka við sem forstjóri af Robert A. Iger. D‘Amaro, sem hefur á undanförnum árum stýrt skemmtigarða- og skemmtiferðaskipadeild fyrirtækisins, verður þar af leiðandi níundi forstjóri Disney en 102 ár eru liðin frá því það var stofnað.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lækkar tolla á Ind­land

Bandaríkin og Indland hafa komist að viðskiptasamkomulagi. Þeir fyrrnefndu hafa samþykkt að lækka töluvert tolla sína á indverskar vörur gegn því að Indland hætti að eiga í viðskiptum við Rússland.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon

Tæknirisinn Amazon ætlar í niðurskurð og geta sextán þúsund starfsmenn fyrirtækisins átt von á uppsagnarbréfi. Tilkynnt var um niðurskurðinn nokkrum klukkustundum eftir að tölvupóstur sem innihélt trúnaðarupplýsingar var sendur á starfsfólkið fyrir mistök.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Eitt besta leitarárið á norska land­grunninu

Nýliðið ár reyndist eitt það gjöfulasta í sögu olíuleitar á norska landgrunninu í seinni tíð. Miðað við undanfarinn áratug var aðeins árið 2021 betra í magni nýrra olíu- og gasfunda. Þörf er hins vegar á frekari olíu- og gasleit ef draga á úr yfirvofandi framleiðsluminnkun.

Viðskipti erlent