Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Kristján Már Unnarsson skrifar 16. ágúst 2026 10:10 Frumkvöðullinn Anders Forslund ásamt Bill Gates, sem er einn af bakhjörlum Heart Aerospace. Hér er ræða þeir saman á fjárfestafundi árið 2021. Heart Aerospace Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða.
Tilraunaútgáfa þrjátíu sæta flugvélar Heart, sem kallast X1, flaug í fyrsta sinn á miðvikudag, sólmyrkvadaginn, og varð þar með stærsta rafknúna flugvél heims til þessa. Sagt var frá fluginu í sjónvarpsfrétt Sýnar: „Við flugum,“ sagði Anders í yfirlýsingu eftir þetta fyrsta flug, sem var frá Plattsburgh-alþjóðaflugvellinum í New York-ríki, en aðeins sjö ár eru liðin frá því hann og eiginkona hans stofnuðu fyrirtækið í Gautaborg í Svíþjóð. „Með 106 feta (32 metra) vænghaf og flugtaksþyngd yfir 25.000 pund (11,3 tonn) er X1 stærsta rafknúna flugvél sem flogið hefur,“ sagði Anders og bætti við að það sem vekti ekki síður athygli væri að raforkan sem notuð var í fluginu, sem stóð í 27 mínútur, kostaði aðeins um fimm Bandaríkjadali. Flugvélinni ekið í hlað eftir fyrstu lendinguHeart Aerospace „Þessi flugferð færði okkur stóru skrefi nær framtíðarsýn Heart Aerospace um fjölbreyttara flug: Hagkvæmari, tíðari og umhverfisvænni ferðir til fleiri áfangastaða – frá flugvöllum sem eru nær þeim stöðum þar sem fólk býr og starfar. Þessi merki áfangi í þróun rafknúins flugs er afrakstur ótrúlegrar vinnu teymisins sem hannaði, smíðaði, prófaði og flaug X1. Takk fyrir að gera þessa framtíðarsýn að veruleika,“ sagði Svíinn. Anders var augljóslega létt þegar hann horfði á flugvélina lenda eftir fyrsta reynsluflugið.Heart Aerospace Óhætt er að telja flugvélina norræna að uppruna því þróun hennar var upphaflega hugsuð til að mæta aðstæðum innan Norðurlanda. Í viðtali við sænskt tímarit, Gothenburg Magazine, árið 2022 röktu þau Anders Forslund og eiginkona hans, Klara Andreasson, aðdraganda þess að þau stofnuðu Heart Aerospace árið 2019. Forsíða Gothenburg Magazine árið 2022 þar sem hjónin Klara og Anders lýstu draumnum um smíði rafknúinnar farþegaflugvélar. Einnig hvernig þeim sem einstaklingum tókst að hleypa af stokkunum og fjármagna svo risavaxið og tæknilega krefjandi verkefni að smíða rafmagnsflugvél til farþegaflugs, á tímum þegar þróun og smíði nýrra farþegaflugvéla telst vart á færi nema gríðarstórra flugvélarisa. Það sem gerði útslagið í að þau réðust í verkefnið var sú yfirlýsing norskra stjórnvalda árið 2018 að stefna að rafvæðingu alls innanlandsflugs í Noregi fyrir árið 2040. Þau vissu ekki til þess að neinn aðili í heiminum væri að smíða rafmagnsflugvél sem gæti hentað norskum staðháttum og spurðu sig: Hversvegna ekki við? Með doktorsgráðu í flug- og geimverkfræði hafði Anders vissulega góðan bakgrunn, bæði frá sænskum háskólum og hinum bandaríska MIT. Flugáhugann fékk hann strax í æsku við að alast upp í næsta nágrenni Säve-flugvallar í útjaðri Gautaborgar. Þar lék hann sér í fótbolta á túnum skammt frá flugskýlunum og horfði á Saab Viggen-herþotur sænska flughersins þjóta um háloftin. Eiginkonan Klara er sömuleiðis hámenntuð frá Stanford og Harvard-háskólunum í mannauðsstjórnun og félagssálfræði. Anders Forslund stofnaði Heart Aerospace ásamt eiginkonu sinni upphaflega til að smíða umhverfisvæna flugvél fyrir norrænan heimamarkað.Heart Aerospace Anders setti af stað rannsóknarverkefni við tækniháskóla í Gautaborg til að skoða hvernig innviði þyrfti að byggja upp á Norðurlöndum fyrir rafmagnsflugvélar. Einnig fengu þau Anders og Klara stuðning sænsks fjárfestis til að sækja fjögurra mánaða námsbúðir í uppbyggingu sprotafyrirtækja. Þau lögðu af stað með þá hugmynd að smíða 19-sæta rafknúna flugvél sem gæti þjónað stuttum flugleiðum og fámennum stöðum með arðbærum hætti. Þau höfðu í huga fjölda smærri byggða innan Norðurlanda sem misst höfðu áætlunarflug sökum þess að það var ekki talið borga sig lengur. Þeim tókst að kveikja áhuga opinberra aðila í Svíþjóð og Noregi en einnig norrænu flugfélaganna SAS, Braathens, Widerø og Icelandair, sem öll skrifuðu upp á viljayfirlýsingar um kaup á flugvélinni og veittu þannig verkefninu mikilvægan stimpil. Norrænir nýsköpunar- og þróunarsjóðir, bæði á vegum opinberra og einkaaðila, komu að málum og Saab var meðal fyrstu fjárfesta. Upphaflega hugmyndin var að smíða nítján sæta rafmagnsflugvél, ES-19, fyrir norrænan heimamarkað.Heart Aerospace Þau leituðu einnig eftir stuðningi frá Bandaríkjunum og þar var þeim sömuleiðis vel tekið. Stærstu þáttaskilin urðu þegar loftslagssjóður Bills Gates, Breakthrough Energy Ventures, kom inn í dæmið. Tvær risapantanir fylgdu, frá United Airlines og Mesa Air Group, um kaup á samtals tvöhundruð eintökum af rafmagnsflugvélinni. Air Canada bættist fljótlega við með því að panta þrjátíu eintök. Anders hefur frá upphafi verið forstjóri. Klara var framan af einn af framkvæmdastjórum en hefur ekki snúið aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Auk stofnendanna eru norrænir og evrópskir þróunar- og nýsköpunarsjóðir ásamt sjóði Bill Gates í hópi helstu fjárfesta. Einnig eru í hluthafahópnum fyrirtæki í fluggeiranum, eins og United Airlines, Air Canada og Saab. Haustið 2022 tilkynnti Heart að það hefði fallið var frá því að smíða 19-sæta rafmagnsflugvél. Í staðinn yrði stefnt á 30-sæta tvinn-flugvél. Anders Forslund útskýrði breytinguna með því að ES-19 vélin hafi upphaflega eingöngu verið hugsuð og sérsniðin fyrir norrænan heimamarkað. Eftir að tilkynnt hafi verið um smíði hennar hafi óskir komið alls staðar að úr heiminum um stærri flugvél með meira flugdrægi. Í farþegarými ES-30 er gert ráð fyrir 2+1 sætaskipan með alls 30 sætum.Heart Aerospace Heart Aerospace kynnti jafnframt ákvörðun um að flugvélarnar yrðu smíðaðar í nýrri verksmiðju, sem félagið hygðist reisa á Säve-flugvellinum í Gautaborg. Gert væri ráð fyrir að starfsmönnum fyrirtækisins, sem þá voru 130 talsins, myndi fjölga hratt og verða 500 talsins árið 2025. Fram kom að fyrir lægju staðfestar pantanir um 250 flugvélar og viljayfirlýsingar um kaup á 120 til viðbótar. Haustið 2024 var frumgerð ES-30 flugvélarinnar fyrst sýnd opinberlega, með sænska fánann málaðan á skrokkinn. Fyrirtækið sýndi þá frá æfingu í því að afgreiða flugvélina; að koma farþegum og farangri um borð, og svo út aftur, en einnig hvernig gengi að fullhlaða hana rafmagni í stuttu stoppi. ES-30 flugvélin á Säve-flugvellinum í Gautaborg haustið 2024. Þarna var verið að prófa hvernig gengi að hlaða flugvélina.Heart Aerospace Vorið 2025 fengu Svíar áfall. Heart Aerospace tilkynnti að það hefði ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg til Los Angeles í Kaliforníu. Starfsstöð fyrirtæksins í Svíþjóð yrði lokað og 75 starfsmönnum þar sagt upp. Fyrirtækið sagði að með þessu væri ætlunin að efla þróun ES-30 rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug en flugprófanastöð var sett upp í norðanverðu New York-ríki. „Við erum afar þakklát teymi okkar í Svíþjóð fyrir að vera hluti af þessum kafla í ferðalagi Heart og fyrir allan þann stuðning sem við höfum fengið í Svíþjóð,“ sagði Anders Forslund í yfirlýsingu. „Hins vegar, þar sem viðskiptavinir okkar, samstarfsaðilar og fjárfestar eru í auknum mæli staðsettir í Bandaríkjunum, sjáum við meiri tækifæri í að beina kröftum okkar þangað. Með því að sameina starfsemi okkar í Los Angeles getum við hraðað þróun, styrkt samstarf og betur undirbúið Heart Aerospace fyrir framtíðina.“ Skilaboðin þóttu nöturleg. Fyrsta lendingin eftir 27 mínútna velheppnað reynsluflug. Bandaríski fáninn kominn á flugvélina í stað þess sænska.Heart Aerospace „Svona fréttir ýta undir þá skoðun að Bandaríkin séu betri staður til nýsköpunar og þróunar - það er vandi Evrópu,“ var haft eftir sænskum fjárfestingasérfræðingi, Tobias Bengtsdahl, sem sagði að flutningur Heart til Bandaríkjanna ætti að klingja viðvörunarbjöllum í evrópska tæknigeiranum. „Reglugerðafargan Evrópu og skortur á vilja til að hlusta á óskir markaðarins eru að hrekja nýsköpun í burtu,“ sagði Bengtsdahl, sem starfar hjá áhættufjárfestafyrirtækinu Antler í Stokkhólmi. Í fyrsta reynslufluginu í New York-ríki í síðustu viku var flugvél Heart ekki lengur með sænska fánann á skrokknum. Komnir voru bandarískir skráningarstafir og bandaríski fáninn, eins og sjá má í myndbandi Heart:
Flug Rafmagn Svíþjóð Bandaríkin Nýsköpun Orkuskipti Samgöngumál Icelandair Umhverfismál Tengdar fréttir Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Stærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með rými fyrir þrjátíu farþega, hóf sig til flugs í fyrsta sinn í gær. Flugvélin gæti hentað innanlandsleiðum á Íslandi og hefur Icelandair skrifað sig fyrir fimm eintökum. 13. ágúst 2026 21:20 Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22 Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Stærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með rými fyrir þrjátíu farþega, hóf sig til flugs í fyrsta sinn í gær. Flugvélin gæti hentað innanlandsleiðum á Íslandi og hefur Icelandair skrifað sig fyrir fimm eintökum. 13. ágúst 2026 21:20
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22