Svíþjóð

Svíþjóð

Höfuðborg: Stokkhólmur. Mannfjöldi: 10,6 milljónir (2025). Flatarmál: 450.295 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng

Niðurstöður þingkosninga í Svíþjóð eru enn óráðnar en flest bendir þó til þess að ríkisstjórn hægri manna sé fallin. Óljóst er þó hvernig stjórnarandstaðan ætlar að setja saman ríkisstjórn og stjórnmálaskýrandi sænska ríkissjónvarpsins segir að framundan sé langt pólitískt haust.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku

Enn er afar mjótt á munum milli hægri og vinstri blokkanna í sænsku þingkosningunum nú þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða. Fylking stjórnarandstöðunnar leiðir með örlitlum meirihluta en aðeins eitt þingsæti skilur að fylkingarnar tvær sem berjast um stjórnartaumana.

Erlent
Fréttamynd

Munurinn minnkar í nýrri spá

Forskot stjórnarandstöðunnar minnkar samkvæmt nýrri spá SVT í Svíþjóð um úrslit þingkosninga þar í landi. Aðeins 0,2 prósentustig skilja hægri og vinstri blokkina að. 

Erlent
Fréttamynd

Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF

Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á setningu RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í ár sem sett verður í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september. Skarsgård tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Af­þakkar Grammy-tilnefningu

Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni.

Tónlist
Fréttamynd

Mynd af sverði birt um hálf­tíma fyrir morðið

Um tuttugu og fimm mínútum áður en lögreglunni í nágrenni Fagersta barst tilkynning um að maður hefði ráðist á nemendur í Brinell-skólanum með sverð að vopni var mynd af sverði birt á TikTok-aðgangi. Aðgangurinn tengist undirmenningu á netinu sem snýst um dýrkun á fjöldamorðingjum og þeim sem gera skólaárásir.

Erlent
Fréttamynd

Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“

Sprunga er komin í hægriblokkina í Svíþjóð sem stendur höllum fæti fyrir þingkosningar í næsta mánuði. Leiðtogi Svíþjóðardemókrata hvatti fólks til þess að kjósa ekki samstarfsflokkinn Frjálslynda en ráðherra þeirra sakar hann á móti um að „pissa í eigið tjald“.

Erlent
Fréttamynd

Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Sví­þjóð nafn­greindur

Hinn átján ára gamli Liam Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann er grunaður um morð og tilraun til manndráps eftir að 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárás í Fagersta í Svíþjóð. Hann var sjálfur nemandi við skólann þar sem hann gekk berserksgang vopnaður sverði föstudaginn 22. ágúst.

Erlent
Fréttamynd

Hand­tekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth

Lögreglan í Svíþjóð hefur handtekið norskan mann sem er talinn tengjast hvarfi Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018. Maðurinn var þó ekki handtekinn vegna þessa máls heldur vegna gruns um umfangsmikil fíkniefnabrot.

Erlent
Fréttamynd

Fram­tíðar­sýn Svíans að færa flugið nær fólkinu

Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins

Carola Häggkvist, ein ástsælasta söngkona Norðurlanda og sigurvegari Eurovision, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu þar sem hún flytur lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögur úr eigin lífi.

Tónlist
Fréttamynd

Fylgdust með rúss­neskum njósnara gefa út­sendara gjöf

Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið.

Erlent
Fréttamynd

Urður yfir­gefur Kast­ljós

„Ég ætla að nýta þetta ár í að hlaða batteríin, læra nýtt tungumál og sjá hvaða tækifæri eru í boði í nýju landi,“ segir fréttakonan Urður Örlygsdóttir sem landsmenn kannast eflaust flestir við af skjánum. Urður hefur í áraraðir starfað við fjölmiðla hérlendis og undanfarin ár verið í Kastljósi og kvöldfréttum hjá Rúv. Nú í ágústbyrjun tóku við miklar breytingar í hennar lífi þegar hún flutti með fjölskyldu sinni til Stokkhólms.

Lífið
Fréttamynd

Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir

Ekki er vitað um ferðir um tuttugu eþíópískra drengja, sem saman mynduðu fótboltalið, á fótboltamótinu Gothia Cup sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð á dögunum.

Erlent