Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Það var margt um manninn á vel heppnaðri frumsýningu verksins „Þegar ég sé þig sé ég mig“ í Borgarleikhúsinu. Fjölbreytileikinn var í fyrirrúmi og fjörið sömuleiðis. Menning 3.2.2026 20:00
Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður „Ég er hugfangin af hestum enda eru þeir einstaklega falleg dýr,“ segir listakonan og vöruhönnuðurinn Salóme Hollanders sem hefur algjörlega slegið í gegn með listræna spegla sína og einstök listaverk. Menning 3.2.2026 16:02
Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Pétur Gunnarsson var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands föstudaginn 30. janúar. Pétur hefur skrifað á annan tug skáldsagna, ævisöguleg rit um Þórberg og Laxness, sjálfsævisöguleg rit, pistla og þýtt öndvegisverk franskra bókmennta ásamt því hafa unnið merkt starf í dagskrárgerð útvarps og sjónvarps. Menning 3.2.2026 10:40
Húsó fjarlægðir af Rúv Sjónvarpsserían Húsó hefur verið fjarlægð fyrr en áætlað var af vefsíðu Ríkisútvarpsins. Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda þáttanna, segir að þættirnir verði settir inn aftur þegar framleiðandi afhendir réttan kreditlista. Hún sjálf berst fyrir því að nafn hennar sé sett á kreditlistann. Menning 24.1.2026 15:00
Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Franska kvikmyndahátíðin verður haldin í 26. sinn í Bíó Paradís frá 23. janúar til 1. febrúar. Á dagskrá eru tíu franskar kvikmyndir, nýjar í bland við samtímaklassík. Franska leikkonan Isabelle Huppert verður meðal gesta. Menning 23.1.2026 17:11
Viðbjóðurinn fær sviðsljósið: „Eilíft vakir minning þín, slef, prump, piss, og þvag og slím“ Kórverkið Mergur byggir á íslenskri þjóðlagahefð og tekst á við það sem við forðumst að nefna, líkamsvessa og aðra óværu. Höfundurinn vildi blanda saman viðbjóðslegum textum við háfleygt kórformið og finna þannig fegurðina í ógeðinu. Menning 22.1.2026 10:29
Blint stefnumót heppnaðist vel Menningarvitar landsins komu saman í Ásmundarsal síðastliðna helgi og skáluðu fyrir glæsilegri opnun samsýningarinnar Blint stefnumót eða Blind date. Þar mætast listamennirnir Kristín Karólína Helgadóttir og Sigurður Guðmundsson á skemmtilegan máta. Menning 21.1.2026 20:03
Halla T meðal sofandi risa Elegansinn var í fyrirrúmi í opnunarteiti Kristjáns Maack á ljósmyndasýningunni Sofandi risar. Meðal gesta voru Heiða Björg borgarstjóri og Halla Tómasdóttir forseti. Menning 20.1.2026 17:01
Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Listakonan Kristín Helga Ríkharðsdóttir fer einstakar leiðir í listsköpun sinni og hefur vakið mikla athygli hérlendis undanfarið ár. Kristín Helga, sem er fædd árið 1993 og lærði í New York, var að opna einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur sem ber heitið Silkimjúk. Viðfangsefnið snertir meðal annars á þráhyggju fyrir líkamsumhirðu og óútskýrðum ótta við stutt, svört hár. Menning 19.1.2026 20:03
Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Hvaða leiksýningar á síðasta leikári voru bestar og hverjar voru verstar? Hvernig endaði jólabókaflóðið og hefur vinsældarlistinn einhverja þýðingu? Hvernig tókst til við ráðningu nýs óperustjóra þjóðaróperunnar, eða óperu undir hatti Þjóðleikhússins? Menning 16.1.2026 15:37
Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem byggir á sígildu ævintýri Dr. Seuss. Söngleikurinn verður frumsýndur á stóra sviðinu í nóvember, Valur Freyr Einarsson leikstýrir honum og verður hulunni svipt af leikhópnum á næstunni. Menning 14.1.2026 16:17
Baltasar Samper látinn Katalónsk-íslenski listmálarinn Baltasar Samper er látinn, 88 ára að aldri. Menning 14.1.2026 13:14
Nýr óperustjóri: Lengri samningar og stöðugleiki nýlunda í íslensku óperulífi Nýskipaður óperustjóri segir nýja þjóðaróperu vera vettvang þar sem listamenn munu fá tækifæri til að vaxa í faginu og þar sem ópera, sem fag, verður byggð upp. Þjóðaróperan markar tímamót í faginu en óperustjóri segir nýjan kafla í íslenskri óperusögu að hefjast. Menning 13.1.2026 14:40
Vilhjálmur Bergsson er látinn Myndlistarmaðurinn Vilhjálmur Bergsson lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal, mánudaginn 5. janúar 2026, 88 ára að aldri. Menning 8.1.2026 14:41
Ólafur Jóhann er konungur bóksölunnar 2025 Kvöldsónata Ólafs Jóhanns Ólafssonar er mest selda bók síðasta árs samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Þetta segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda. Menning 7.1.2026 15:57
Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Áramótaskaupið 2025 vakti mikla lukku landsmanna en þar kenndi ýmissa grasa. Vísir hefur tínt til ýmsa forvitnilega mola sem vöktu athygli, svo sem sögulega fjarveru formanns Sjálfstæðisflokksins, skemmtilegar tengingar höfunda Skaupsins við viðföng þess og meint samsæri Rúv, Samfylkingar og Kaffi Vest gegn sitjandi borgarstjóra. Menning 2.1.2026 15:02
Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Húsfyllir var í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar á annan í jólum þegar jólasýning Þjóðleikhússins, gríski harmleikurinn Óresteia eftir Benedict Andrews, var frumsýnd. Ýmis þekkt nöfn létu sjá sig, Gísli Marteinn, Halla Tómasdóttir og Egill Ólafsson þar á meðal. Menning 30.12.2025 17:04
Tekur yfir borgina á nýársdag Auglýsingahlé verður á yfir 550 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg frá 1. til 3. janúar 2026 þegar verkið Sólarhringur eftir Þórdísi Erlu Zoëga tekur yfir þá. Í verkinu breytast skjáir borgarrýmisins með birtu dagsins, taka mið af litbrigðum sólarljóssins og verða þannig að stafrænni sólarklukku. Menning 30.12.2025 13:23
Græna gímaldið ljótast Niðurstöður liggja fyrir í kosningu Arkitektúruppreisarinnar, áhugamannahóps um framtíð arkitektúrs, um nýbyggingu ársins, bæði þá fallegustu og ljótustu. Græna gímaldið við Álfabakka 2a var valin ljótasta nýbyggingin og Hafnarstræti 75 á Akureyri sú fallegasta. Menning 30.12.2025 11:22
Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Sólveig Arnarsdóttir hóf leiklistarferilinn á Ísland sem barnastjarna, lærði þýsku sem barþjónn til að komast inn í leiklistarskólann Ernst Buch í Berlín og sló síðan í gegn í þýsku sjónvarpi. Sólveig hefur leikið mörg stærstu hlutverk leikhúsbókmenntana hérlendis og erlendis, upplifað sigra og einnig áföll. Menning 24.12.2025 07:00
Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Söguleg tíðindi er að finna í síðasta bóksölulista Fíbút fyrir þessi jólin. Kvöldsónata Ólafs Jóhanns Ólafssonar er komin í efsta sætið eftir stærstu bóksöluviku ársins. Hann skákar þar Arnaldi Indriðasyni sem hefur verið óskoraður konungur bóksölulistans undanfarin þrjátíu árin eða svo. Menning 23.12.2025 12:06
Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Hver er fallegasta nýbygging ársins? En sú ljótasta? Hópurinn Arkitektúruppreisnin á Íslandi stendur einmitt fyrir opinni atkvæðagreiðslu um fallegustu og ljótustu nýbyggingar 2025. Menning 21.12.2025 17:39
„Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Eftir að hafa tekist á við pólitískan samtíma í fyrstu skáldsögu sinni horfir Fríða Ísberg til fortíðar og vinnur upp úr þjóðsagnaarfinum í þeirri nýjustu. Brjóstaþoka eftir barneignir smitaðist inn í bókina en í marga mánuði sat Fríða föst í sögunni, komst ekki áfram í skrifunum og starði bara út í loftið. Menning 21.12.2025 07:01
Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Húsó, hefur birt bréf frá Bandalagi íslenskra listamanna sem lýsir stuðningi við mál hennar en RÚV og Glassriver hafa ekki brugðist við kröfu hennar um að nafn hennar verði birt í tengslum við Húsó. Hún segir að sér hafi verið boðnir samningar með greiðslu upp á fjórar milljónir, sem hún hafi hafnað. Menning 20.12.2025 22:26