Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. október 2026 10:02 Stellan Skarsgård og Elle Fanning í verðlaunamyndinni Sentimental Value sem var hlutskörpust í kvikmyndaflokki verðlauna Norðurlandaráðs. Söguleg úrslit urðu við verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í dag þegar Norðmenn hlutu verðlaun í öllum fimm flokkum. Norska kvikmyndin Sentimental Value varð hlutskörpust í flokki kvikmynda og norsk-samíska skáldið Sigbjørn Skåden í bókmenntaflokknum.
Norðurlandaráð hefur tilkynnt þá sem hljóta verðlaun ráðsins í ár. Verðlaunaféð fyrir hver verðlaun eru 300 þúsund danskar krónur (tæplega 5,5 milljónir króna) og eru þau veitt í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki hinn 27. október. Veitt eru verðlaun í fimm flokkum: kvikmyndum, tónlist, bókmenntum, barna- og unglingabókmenntum og umhverfi. Verðlaunin í ár eru söguleg að því leyti að í fyrsta sinn í sögunni koma allir verðlaunahafarnir frá sama landinu, Noregi. Verðlaunamynd, samísk-norsk skáldsaga og fleira til Verðlaunin í ár marka einnig tímamót því í fyrsta skiptið í 35 ár hlýtur verk skrifað á samísku bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, skáldsagan Láŋtdievvá/Planterhaug eftir Sigbjørn Skåden. Bókin sem kom út samtímis á norsku og samísku og var framlag bæði Noregs og samíska málsvæðisins til verðlaunanna. Skåden hafði þar betur gegn tólf öðrum höfundum, þar á meðal Íslendingunum Jóni Kalman Stefánssyni og Evu Rún Snorradóttur. Kvikmyndaverðlaunin hlýtur hin margverðlaunaða norska kvikmynd Affeksjonsverdi (Sentimental Value), eftir leikstjórann og handritshöfundinn Joachim Trier, handritshöfundinn Eskil Vogt og framleiðendurna Maria Ekerhovd og Andrea Berentsen Ottmar. Kvikmyndin hefur farið sigurför um heiminn, var valin besta erlenda kvikmyndin á Óskarsverðlaununum og hlaut Grand Prix-verðlaunin á Cannes. Trier og félagar höfðu þar betur gegn fimm öðrum kvikmyndum, þar á meðal Ástinni sem eftir er í leikstjórn Hlyns Pálmasonar. Sjá einnig: Ástin sem eftir er tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs Barna- og unglingabókmenntaverðlaunin hlýtur ungmennaskáldsagan Du eneste – historien om Gunvor Hofmo og Ruth Maier eftir Hilde Hagerup. Bókin er angurvær ástarsaga sem gerist í Noregi í Seinni heimsstyrjöldinni og hafði betur gegn tólf öðrum verkum, þar á meðal hinum íslensku Árstíðarverum eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen og Skólastjóranum eftir Ævar Þór Benediktsson og Elínu Elísabetu Einarsdóttur. Tónlistarverðlaunin hlýtur verkið Elja eftir Kristine Tjøgersen og Benedicte Maurseth, verk fyrir strengjakvintett sem flutt er á sérsmíðuð harðangurshljóðfæri. Þær höfðu þar betur gegn tólf öðrum verkum, þar á meðal Intraloper eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur og Stropha eftir Ingibjörgu Turchi. Umhverfisverðlaunin hljóta dönsku barna- og ungmennasamtökin Miljøagentene, sem virkja þúsundir norskra ungmenna til þátttöku í loftslags- og umhverfisstarfi á forsendum þeirra sjálfra. Allar dómnefndirnar starfa sjálfstætt og því ekki um nein samantekin ráð að ræða, heldur einfaldlega yfirburði Norðmanna í öllum fimm flokkum. Verðlaunin verða afhent þann 27. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki.
Bíó og sjónvarp Bókmenntir Umhverfismál Börn og uppeldi Tónlist Noregur Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Fleiri fréttir Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira