Klára yfir fimm milljarða útboð eftir áhuga stórra danskra lífeyrisssjóða Amaroq Minerals verður stærsti leyfishafinn á Grænlandi eftir að hafa bætt við sig tveimur rannsóknarleyfum á svæðinu og samhliða því boðað til yfir þrjátíu milljóna punda hlutafjárútboðs, en stórir danskir lífeyrissjóðir eru umsvifamestu þátttakendurnir í þeirri fjármögnun, samkvæmt heimildum Innherja. Hlutabréfaverð Amaroq hefur farið lækkandi að undanförnu en áskriftargengið í útboðinu, sem er farið af stað með eftir áhuga frá erlendum stofnafjárfestum, er aðeins lítillega undir markaðsverði félagsins við lokun markaða í dag. Innherji 11.6.2025 21:57
„Fólk er í áfalli yfir þessu“ Fréttir af fyrirhuguðum breytingum hjá flugfélaginu Play voru áfall fyrir starfsfólk að sögn forseta Íslenska flugstéttafélagsins. Hann segir lagalega óvissu fylgja því að flugrekstur Play verði skráður í öðru landi og að fréttirnar hafi komið starfsfólki í opna skjöldu. Innlent 11.6.2025 21:49
Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Fyrirhugaðar breytingar á rekstri flugfélagsins Play mun auka samdrátt á framboði flugsæta til Íslands að sögn greinanda. Gengi hlutabréfa Play rauk upp við opnun markaða í morgun. Viðskipti innlent 11.6.2025 13:22
Verulegur munur í ávöxtun innlendra sjóða með virka stýringu síðustu þrjú ár Innherji 10.6.2025 07:50
Telur Nova verulega undirverðlagt og segir félagið „augljóst“ yfirtökuskotmark Núna þegar Nova er byrjað á vaxtarvegferð, eftir kaupin á minnihluta í Dineout, ásamt því að ráða yfir meiri innviðum en hin fjarskiptafyrirtækin þá er félagið meðal annars „augljóst“ yfirtökuskotmark, að mati hlutabréfagreinanda. Í frumskýrslu um Nova er félagið verðmetið langt yfir núverandi markaðsgengi, nokkuð hærra en hjá öðrum greinendum, en hlutabréfaverðið tók mikið stökk á markaði sama dag og hún birtist. Innherji 9. júní 2025 07:49
Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Það brutust út mikil fagnaðarlæti þegar einn heppinn viðskiptavinur N1 hlaut Gullna miðann sem tryggir honum frí flug með flugfélaginu Play í heilt ár. Þetta átti sér stað í þjónustustöð N1 á Ártúnshöfða í gær laugardag þar sem vinningurinn var afhentur við mikla viðhöfn. Lífið samstarf 8. júní 2025 10:01
Mæla með sölu í SVN og hækka áhættuálag vegna pólitískrar óvissu Þrátt fyrir traustan rekstur og sterka framlegð í síðasta uppgjöri hafa greinendur IFS lækkað virðismat sitt á Síldarvinnslunni, verðmætasta sjávarútvegsfélagið í Kauphöllinni, og mæla nú með því að fjárfestar minnki við stöðu sína í fyrirtækinu. Í nýrri umfjöllun greiningarfyrirtækisins er meðal annars nefnt að greinendur þess hafi ákveðið að hækka áhættuálag á félög í sjávarútvegi um heila 150 punkta vegna „sérstakrar óvissu“ sem umlykur greinina, meðal annars vegna boðaðrar hækkunar á veiðigjöldum. Innherji 7. júní 2025 10:54
Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Íslandsbanki hefur boðað alla hluthafa sína á hluthafafund sem haldinn verður næstu mánaðamót. Hluthafar í bankanum eru ríflega 30 þúsund talsins. Viðskipti innlent 6. júní 2025 16:47
Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Hvítasunnuhelgin er ein stærsta ferðahelgi ársins þar sem landsmenn eru á faraldsfæti ýmist innanlands eða erlendis. Það er því nokkuð gefið að það verði mikill erill á stöðvum N1 víða um land og hjá flugfélaginu Play en fyrirtækin ákváðu af því tilefni að efna til risastórs ferðaleiks þar sem viðskiptavinir á stöðvum N1 um allt land geta unnið fjölda vinninga. Lífið samstarf 6. júní 2025 15:35
Hækka verðmatið um ríflega tvöfalt og telja vanmetin tækifæri í lyfjapípu Oculis Eftir viðræður við lækna og aðra sérfræðinga um þær niðurstöður sem Oculis kynnti fyrr á árinu úr klínískum rannsóknum á OCS-05, lyf sem gæti veitt taugaverndandi meðferð við sjaldgæfum augnsjúkdómum, hefur bandarískur fjárfestingarbanki hækkað verðmatsgengi sitt á félaginu um meira en tvöfalt. Greinendur hans telja að lyfið, eitt af þremur sem eru í þróun hjá Oculis, sé „verulega vanmetið tækifæri“ og geti eitt og sér mögulega skilað milljörðum dala í tekjum fyrir félagið. Innherji 6. júní 2025 09:22
Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Félagsmenn ÍFF hafa samþykkt langtímakjarasamninga við flugfélagið Play. Samtök atvinnulífsins fóru með samningsumboð fyrir hönd Play og byggja samningarnir á ramma stöðugleikasamningsins sem undirritaður var í mars í fyrra. Viðskipti innlent 5. júní 2025 15:34
Forstjóri Alvotech er „í skýjunum“ með að fá inn fjörutíu nýja erlenda sjóði Erlendir fjárfestar, einkum sænskir og norskir, voru með samanlagt um níutíu prósenta hlutdeild þegar Alvotech kláraði seint í gærkvöldi jafnvirði um tíu milljarða króna hlutafjárútboð. „Markmiðið var að fá inn erlenda fjárfestingarsjóði, ekki sem mestan pening,“ segir forstjóri Alvotech, en talsverð umframeftirspurn var í útboðinu. Innherji 5. júní 2025 11:08
Alvotech efnir til um tíu milljarða útboðs til að „breikka“ hluthafahópinn Nokkrum vikum eftir að Alvotech var skráð á markað í Stokkhólmi hefur það ákveðið að fara í útboð á um 7,5 milljónum sænskra heimildarskírteina og hlutabréfa í félaginu, jafnvirði nærri ellefu milljarða íslenskra króna miðað við núverandi hlutabréfaverð, sem verður einkum beint að sænskum fjárfestum í því skyni að „breikka og styrkja“ hlutahafahópinn. Gengi bréfa félagsins á markaði í Bandaríkjunum lækkaði nokkuð skarpt eftir að tilkynnt var um útboðið. Innherji 4. júní 2025 17:50
Yfirvegaðri verðlagning íslenskra hlutabréfa Þrátt fyrir óróleika á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum, héldust hlutföll virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði og V/H hlutfall stöðug fyrir Úrvalsvísitöluna í apríl og maí. Umræðan 2. júní 2025 09:05
Fjárfestar minnka skortstöður sínar í Alvotech í fyrsta sinn á árinu Eftir að fjárfestar höfðu stækkað nánast stöðugt skortstöður sínar í bréfum Alvotech á markaði vestanhafs minnkaði umfang þeirra nokkuð á fyrstu vikum maímánaðar í fyrsta sinn á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech er upp um nærri fimmtíu prósent á fáeinum vikum og er nú komið á sama stað og það var áður en gengið tók mikla dýfu í lok marsmánaðar. Innherji 2. júní 2025 08:42
Kröftug einkaneysla dreif áfram hagvöxt sem fór langt fram úr væntingum Fyrsta mat Hagstofunnar um að landsframleiðslan hafi aukist um 2,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi, einkum drifin áfram af mikilli innlendri eftirspurn og atvinnuvegafjárfestingu, fór langt fram úr væntingum bæði greinenda og Seðlabankans. Að mati hagfræðinga Arion banka munu hagvaxtartölurnar styðja við vegferð peningastefnunefndar að halda þétt um taumana og velta þeir jafnframt fyrir sér af hverju hátt raunvaxtastig sé ekki að bíta sem skyldi á íslensk heimili. Innherji 31. maí 2025 12:03
Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Sigurður Gunnar Markússon og Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir hafa tekið við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni. Viðskipti innlent 30. maí 2025 10:24
Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Stjórn Íslandsbanka annars vegar og stjórn Arion banka hins vegar hafa báðar óskað eftir að hafnar verði samrunaviðræður við Kviku banka. Ritstjóri Innherja segir tilkynningarnar ekki koma á óvart en bæði séu kostir og gallar við báða samruna. Ekki er vitað hvort stjórn Kviku vilji eiga í samrunaviðræðum. Viðskipti innlent 28. maí 2025 22:21
Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Ýmissa grasa kennir meðal þeirra sem keyptu hluti í Íslandsbanka fyrir tuttugu milljónir króna, hámarkið sem einstaklingar gátu keypt fyrir. Umsvifamiklir athafnamenn eru mest áberandi en þó eru nokkur óvænt nöfn inn á milli. Þar má til að mynda sjá plötusnúð, leikkonu, poppstjörnur og lækna. Þá virðast kaup í útboðinu hafa orðið að fjölskyldusporti hjá mörgum. Viðskipti innlent 28. maí 2025 16:07
Samruni Arion og Kviku gæti skilað hluthöfum um sextíu milljarða virðisauka Verulega mikilli samlegð ætti að vera hægt að ná fram með mögulegum samruna Kviku og Arion, sérstaklega á kostnaðarhliðinni með fækkun nærri tvö hundruð stöðugilda, og þá ætti sameinaður banki að geta sparað sér talsverðan vaxtakostnað með bættu lánakjörum á erlendum mörkuðum, að mati hlutabréfagreinanda. Líklegt er að Samkeppniseftirlitið myndi helst horfa til þess að setja samrunanum skilyrði varðandi umsvif á eignastýringarmarkaði en nái hann fram að ganga gæti virðisaukningin fyrir hluthafa, einkum lífeyrissjóðir og að uppistöðu til þeir sömu í báðum félögum, numið um sextíu milljörðum. Innherji 28. maí 2025 14:24
Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital segir að Íslandsbanki sé líklegri en Arion banki að sameinast Kviku banka, einfaldlega vegna þess að Íslandsbanki býður betur. Væntanleg sameining mun taka marga mánuði, líklega ár, segir Snorri. Viðskipti innlent 28. maí 2025 13:11
Vísitölusjóðir Vanguard keyptu fyrir marga milljarða eftir útboð Íslandsbanka Hlutabréfasjóðir í stýringu alþjóðlega vísitölurisans Vanguard stækkuðu verulega stöðu sína í Íslandsbanka á nokkrum dögum í liðinni viku fyrir samanlagt um fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Eftir sölu ríkissjóðs á öllum hlutum sínum í bankanum þurftu sjóðirnir að bæta við sig bréfum á eftirmarkaði þannig að eignarhaldið væri í samræmi við þær vísitölur sem þeir fylgja. Innherji 28. maí 2025 10:44
Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggja. Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. Viðskipti innlent 28. maí 2025 09:25
Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, hefur nú innreið sína á húsnæðislánamarkað og mun opna þessa nýju þjónustu í dag. Viðskipti innlent 28. maí 2025 07:33
Vextir lækka hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur lækkað vexti á út- og innlánum og taka breytingarnar gildi þriðja júní næstkomandi. Ákvörðunin kemur í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans um 0,25 prósent 21. maí síðastliðinn. Viðskipti innlent 27. maí 2025 23:47