Viðskipti innlent

Tinna leiðir stefnu­mótun og við­skiptaþróun hjá Sjó­vá

Atli Ísleifsson skrifar
Tinna Molphy.
Tinna Molphy. Sjóvá

Sjóvá hefur ráðið Tinnu Molphy til að leiða stefnumótun og viðskiptaþróun félagsins.

Í tilkynningu segir að Tinna búi að yfir tuttugu ára reynslu á sviði samskipta, markaðsmála og fjárfestatengsla á íslenskum fjármálamarkaði og hjá leiðandi félögum í alþjóðlegum rekstri.

„Hún kemur til Sjóvá frá Alvotech en var áður hjá Marel í um átta ára skeið. Þar vann hún náið með stjórnendum að miðlun stefnu og samskipta við innri og ytri hagaðila og framsetningu lykilskilaboða til fjárfesta, fjölmiðla og starfsfólks, auk þess að styðja við stefnumótandi verkefni, umbreytingar og vaxtarverkefni á alþjóðlegum vettvangi.

Tinna starfaði hjá Landsbankanum og Íslandsbanka á árunum 2003 til 2017 á sviði markaðs- og kynningarmála, fjárfestatengsla og viðskiptatengsla við erlenda banka og lánshæfismatsfyrirtæki. Hún er með BA- og meistaragráðu í viðskiptafræði og japönsku frá Trinity College Dublin á Írlandi,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×