Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Árni Sæberg skrifar 21. október 2026 17:02 Jón Hilmar er viðskiptamaður eins og faðir hans en hann er annar stofnenda nýsköpunarfyrirtæksins Noona. Vísir Félag í eigu Jóns Hilmars Karlssonar, sonar Karls Emils Wernerssonar, hefur verið dæmt til að greiða tortólsku félagi í eigu þrotabús Karls Emils um 340 milljónir króna auk dráttarvaxta allt aftur til ársins 2018. Jón Hilmar hefur áður verið dæmdur til að greiða þrotabúinu fleiri milljarða króna.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis á mánudag. Í honum segir að félagið Nordic Pharma Investment Ltd. á Tortóla á Bresku jómfrúareyjunum hafi höfðað mál á hendur Toska ehf. til greiðslu skuldar samkvæmt tveimur skuldabréfum, sem gefin voru út árið 2012 í tengslum við svokallaða fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Annað skuldabréfið var að fjárhæð 90 milljónir króna og hitt 150 milljónir króna. Fjárfestingarleið Seðlabankans var liður í því að losa um fjármagnshöft eftir bankahrunið árið 2008 og fólst í því að kallað var eftir tilboðum um sölu á erlendum gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Karl Emil sótti samkvæmt dómnum um að taka þátt í fjárfestingarleiðinni og keypti í framhaldinu skuldabréf af íslensku félagi sínu, Toska ehf., í gegnum aflandsfélagið Nordic Pharma Investment. Afsalaði báðum félögum í aðdraganda gjaldþrots Karl Emil afsalaði Toska ehf. til Jóns Hilmars sonar síns með kaupsamningi dagsettum árið 2014 og varð gjaldþrota árið 2018. Því afsali hefur verið rift með dómi árið 2024. Félagið er þó enn í fullri eigu Jóns Hilmars þar sem afsali þess til þrotabús Karls Emils varð ekki komið við og Jón Hilmar var þess í stað dæmdur til að greiða þrotabúinu 2.652.753.000 krónur með dráttarvöxtum frá 19. janúar árið 2019. Með vöxtum er ekki óvarlegt að reikna með að heildargreiðsla nemi um fimm milljörðum króna. Þá afsalaði Karl Emil Nordic Pharma Investment til sambýliskonu sinnar Gyðu Hjartardóttur árið 2018, rétt áður en hann varð gjaldþrota. Í dóminum segir að þrotabúið hafi gert samning við Gyðu um að ekki yrði krafist riftunar á afsalinu, gegn því að hún ábyrgðist að Nordic Pharma Investment væri eignalaust félag, að frátalinni einni kröfu í þrotabú Háttar ehf., sem hafði verið í eigu Karls Emils. Eftir að skiptastjóri komst á snoðir um skuldabréf þau sem um var tekist í málinu sem hér er um rætt hafi hann krafist riftunar á afsalinu og félagið eignaðist félagið í kjölfar dóms árið 2024. Vísaði ekki til nokkurra haldbærra gagna Í dóminum segir að Toska ehf. hafi helst borið fyrir sig að kröfuréttur samkvæmt skuldabréfunum tveimur hefði verið gefinn eftir af Nordic Pharma Investment árið 2013. Skuldin hafi hins vegar ekki verið færð niður í bókum félagsins á þeim tíma vegna tiltekinna skilmála í útgáfulýsingu skuldabréfanna. Í niðurstöðu dómsins hvað þá málsástæðu varðar segir að Toska hafi ekki getað vísað til nokkurra haldbærra skjala eða annarra gagna sem styðja málatilbúnað þess heldur byggist hann fyrst og fremst á sjónarmiðum um að athafnir, viðhorf og hvatir þáverandi og núverandi fyrirsvarsmanna félagsins beri með sér að báðir aðilar málsins hafi litið svo á að skuldin hafi verið gefin eftir. Hvorugur þeirra hafi komið fyrir dóm og svarað spurningum um þessi málsatvik. „Þegar lagt er heildstætt mat á þau sjónarmið og gögn sem rakin hafa verið verður ekki talið að stefnda hafi tekist að axla þá sönnunarbyrði sem á honum hvílir og með því sýnt fram á að aðilar þessa máls hafi gert samkomulag um eftirgjöf skuldarinnar eða að hún hafi með öðrum hætti verið gefin eftir. Málatilbúnaði stefnda um að umþrætt krafa samkvæmt skuldabréfunum tveimur á stefnda hafi verið gefin eftir er þess vegna hafnað.“ Vextir fyrndir að hluta Dómurinn féllst þó á varakröfu Toska þess efnis að óuppgerðir vextir af þremur gjalddögum skuldabréfanna árin 2018, 2019 og 2020 hefðu verið fyrndir og því skyldi lækka kröfur Nordic Pharma Investment um það sem því nemur. Nordic Pharma Investment krafðist þess að Toska yrði annars vegar gert að greiða 165 milljónir króna auk nánar tilgreindra dráttarvaxta vegna annars skuldabréfsins og 275 milljónir króna vegna hins. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, sem var fjölskipaður, var að Toska skyldi greiða 127,5 milljónir og 212,5 milljónir vegna skuldabréfanna tveggja, auk nánar tilgreindra dráttarvaxta, sem ná lengst til ársins 2018. Því má ætla að endanleg greiðsla verði miklum mun hærri en 340 milljónir króna. Þá var Toska gert að greiða 2,5 milljónir króna í málskostnað. Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má lesa hér.
Hrunið Milestone-málið Dómsmál Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Sjá meira