Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. október 2026 12:34 Magnús Björnsson, forstjóri Reglu. Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago sem jafnframt er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Norðurlanda á sviði fjármála-, mannauðs- og rekstrarlausna hefur keypt íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Reglu. Íslenska fyrirtækið býður skýjalausnir fyrir bókhald, launavinnslu og reikningagerð.
Í tilkynningu frá Finago kemur fram að seljendur séu Hawk Infinity og aðrir hluthafar Reglu, Finago hafi undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Reglu. Með kaupunum muni Finago stíga sín fyrstu skref inn á íslenskan markað og kemur fram að kaupin séu einnig þáttur í áframhaldandi vexti fyrirtækisins. Gert sé ráð fyrir því að þau verði frágengin í nóvember. „Við bjóðum Reglu og starfsfólk fyrirtækisins innilega velkomin til okkar í Finago. Regla hefur byggt upp nútímalegan skýjahugbúnað sem er mikils metinn meðal íslenskra fyrirtækja og bókhaldsstofa og er því frábær viðbót við starfsemi Finago. Sókn á nýja markaði og í ný lönd er mikilvægur þáttur í vaxtarstefnu okkar og kaupin eru mikilvægt skref á þeirri vegferð – og fleiri slík eru framundan,“ segir Lars Engbork, forstjóri Finago-samstæðunnar. „Markmið okkar er að vera leiðandi fyrirtæki á öllum mörkuðum sem við störfum á, með skýjalausnir fyrir bókhald og launavinnslu sem hornsteininn í starfseminni. Þessi kerfi eru kjarninn í rekstri fyrirtækja og þegar viðskiptavinirnir eru ánægðir með stuðninginn við mikilvægustu rekstrarferla sína munu þeir vilja treysta okkur fyrir sífellt fleiri af sínum þörfum. Sterk staða Reglu meðal íslenskra viðskiptavina tryggir okkur framúrskarandi grunn til að þróa áfram hugbúnað sem hjálpar bókhaldsstofum og fyrirtækjum að ná árangri á Íslandi, á Norðurlöndum og víðar.“ Fram kemur í tilkynningunni að Regla hafi verið stofnuð árið 2008, fyrirtækið sé með höfuðstöðvar í Reykjavík. regla bjóði skýjahugbúnað sem mætir bókhalds- og rekstrarþörfum lítilla fyrirtækja og bókhaldsstofa. Lausnirnar nái meðal annars yfir fjárhagsbókhald, reikningagerð, launavinnslu, innkaup og sölukerfi. Með kaupunum fái Regla aðgang að reynslu Finago af samstarfi við bókhaldsstofur um öll Norðurlönd, en muni áfram þjóna viðskiptavinum sínum með þekkingu á íslenskum markaði. „Regla hefur haldið áfram að vaxa í okkar eigu og við erum stolt af því sem Magnús og teymið hafa byggt upp fyrir íslensk fyrirtæki. Umfang Finago á Norðurlöndunum og mikil reynsla af vinnu fyrir bókhaldsfyrirtæki gerir Finago að rétta eigandanum til að leiða Reglu inn í næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. Við óskum Reglu og Finago alls hins besta,“ segir Joakim Karlsen, forstjóri Snowball Software Group, dótturfélags Hawk Infinity. Þannig muni nýtt eignarhald ekki hafa áhrif á daglegan rekstur Reglu, starfsmannahald eða samskipti við viðskiptavini. Regla munistarfa áfram sem sjálfstæð eining innan Finago-samstæðunnar undir stjórn núverandi stjórnenda. Eftir því sem fram líða stundir muni fyrirtækin þróa í sameiningu öflugri viðskiptalausnir og stuðningsþjónustu með það í huga að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk og fjárfesta. „Með því að verða hluti af Finago öðlast Regla öflugan samstarfsaðila á Norðurlöndum sem hefur reynslu og getu til að vaxa með bókhaldsstofum og litlum fyrirtækjum. Viðskiptavinir okkar munu í framtíðinni fá aðgang að fjölbreyttara úrvali lausna, þar á meðal gervigreindarlausnum Finago sem sjálfvirknivæða rekstrarumsýslu og skýrslugerð og draga úr þeim tíma sem nú fer í rútínuverkefni. Regla mun einnig geta boðið viðskiptavinum á nýjum mörkuðum nokkrar af sínum öflugustu lausnum og þá mun starfsfólk okkar fá aukin tækifæri til að læra nýja hluti og eflast í samstarfi við starfsfólk um öll Norðurlönd. Fyrir viðskiptavini okkar heldur þjónustan hins vegar áfram eins og áður: sama teymi, sama þjónusta og sama áherslan á að einfalda daglegan rekstur íslenskra fyrirtækja,“ segir Magnús Björnsson, forstjóri Reglu.
Fjármálafyrirtæki Mest lesið Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Framúrskarandi fyrirtæki Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent