Viðskipti innlent

Finnska hug­búnaðar­fyrir­tækið Fina­go kaupir Reglu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Magnús Björnsson, forstjóri Reglu.
Magnús Björnsson, forstjóri Reglu.

Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago sem jafnframt er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Norðurlanda á sviði fjármála-, mannauðs- og rekstrarlausna hefur keypt íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Reglu. Íslenska fyrirtækið býður skýjalausnir fyrir bókhald, launavinnslu og reikningagerð.

Í tilkynningu frá Finago kemur fram að seljendur séu Hawk Infinity og aðrir hluthafar Reglu, Finago hafi undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Reglu. Með kaupunum muni Finago stíga sín fyrstu skref inn á íslenskan markað og kemur fram að kaupin séu einnig þáttur í áframhaldandi vexti fyrirtækisins. Gert sé ráð fyrir því að þau verði frágengin í nóvember.

„Við bjóðum Reglu og starfsfólk fyrirtækisins innilega velkomin til okkar í Finago. Regla hefur byggt upp nútímalegan skýjahugbúnað sem er mikils metinn meðal íslenskra fyrirtækja og bókhaldsstofa og er því frábær viðbót við starfsemi Finago. Sókn á nýja markaði og í ný lönd er mikilvægur þáttur í vaxtarstefnu okkar og kaupin eru mikilvægt skref á þeirri vegferð – og fleiri slík eru framundan,“ segir Lars Engbork, forstjóri Finago-samstæðunnar.

„Markmið okkar er að vera leiðandi fyrirtæki á öllum mörkuðum sem við störfum á, með skýjalausnir fyrir bókhald og launavinnslu sem hornsteininn í starfseminni. Þessi kerfi eru kjarninn í rekstri fyrirtækja og þegar viðskiptavinirnir eru ánægðir með stuðninginn við mikilvægustu rekstrarferla sína munu þeir vilja treysta okkur fyrir sífellt fleiri af sínum þörfum. Sterk staða Reglu meðal íslenskra viðskiptavina tryggir okkur framúrskarandi grunn til að þróa áfram hugbúnað sem hjálpar bókhaldsstofum og fyrirtækjum að ná árangri á Íslandi, á Norðurlöndum og víðar.“

Fram kemur í tilkynningunni að Regla hafi verið stofnuð árið 2008, fyrirtækið sé með höfuðstöðvar í Reykjavík. regla bjóði skýjahugbúnað sem mætir bókhalds- og rekstrarþörfum lítilla fyrirtækja og bókhaldsstofa. Lausnirnar nái meðal annars yfir fjárhagsbókhald, reikningagerð, launavinnslu, innkaup og sölukerfi. Með kaupunum fái Regla aðgang að reynslu Finago af samstarfi við bókhaldsstofur um öll Norðurlönd, en muni áfram þjóna viðskiptavinum sínum með þekkingu á íslenskum markaði.

„Regla hefur haldið áfram að vaxa í okkar eigu og við erum stolt af því sem Magnús og teymið hafa byggt upp fyrir íslensk fyrirtæki. Umfang Finago á Norðurlöndunum og mikil reynsla af vinnu fyrir bókhaldsfyrirtæki gerir Finago að rétta eigandanum til að leiða Reglu inn í næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. Við óskum Reglu og Finago alls hins besta,“ segir Joakim Karlsen, forstjóri Snowball Software Group, dótturfélags Hawk Infinity.

Þannig muni nýtt eignarhald ekki hafa áhrif á daglegan rekstur Reglu, starfsmannahald eða samskipti við viðskiptavini. Regla munistarfa áfram sem sjálfstæð eining innan Finago-samstæðunnar undir stjórn núverandi stjórnenda. Eftir því sem fram líða stundir muni fyrirtækin þróa í sameiningu öflugri viðskiptalausnir og stuðningsþjónustu með það í huga að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk og fjárfesta.

„Með því að verða hluti af Finago öðlast Regla öflugan samstarfsaðila á Norðurlöndum sem hefur reynslu og getu til að vaxa með bókhaldsstofum og litlum fyrirtækjum. Viðskiptavinir okkar munu í framtíðinni fá aðgang að fjölbreyttara úrvali lausna, þar á meðal gervigreindarlausnum Finago sem sjálfvirknivæða rekstrarumsýslu og skýrslugerð og draga úr þeim tíma sem nú fer í rútínuverkefni. Regla mun einnig geta boðið viðskiptavinum á nýjum mörkuðum nokkrar af sínum öflugustu lausnum og þá mun starfsfólk okkar fá aukin tækifæri til að læra nýja hluti og eflast í samstarfi við starfsfólk um öll Norðurlönd. Fyrir viðskiptavini okkar heldur þjónustan hins vegar áfram eins og áður: sama teymi, sama þjónusta og sama áherslan á að einfalda daglegan rekstur íslenskra fyrirtækja,“ segir Magnús Björnsson, forstjóri Reglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×