Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2026 08:44 Auður Marteinsdóttir, Þórhallur Ólafsson og Katrín Erna Gunnarsdóttir. Katrín Erna Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður vörumerkja- og markaðsmála hjá Íslandshótelum. Þá hafa Þórhallur Ólafsson og Auður Marteinsdóttir jafnframt tekið við stöðum forstöðumanna á sölu- og markaðssviði félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að Katrín Erna muni bera ábyrgð á vörumerkja- og markaðsmálum félagsins með áherslu á þróun markaðsstarfs, styrkingu vörumerkja og samræmda upplifun viðskiptavina. „Katrín Erna hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, samskiptum, markaðsmálum og verkefnastjórnun innan ferðaþjónustunnar. Hún starfaði um árabil hjá Icelandair og leiddi þar fjölbreytt verkefni á sviði stafrænnar þróunar, vörumerkja- og markaðsmála. Hún vann jafnframt náið með stjórnendum að miðlun stefnu og samskiptum við innri og ytri hagaðila. Á starfsferli sínum hefur hún stýrt umfangsmiklum verkefnum þvert á starfssvið með áherslu á vöxt, breytingar og nýsköpun. Katrín Erna er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og er að ljúka meistaragráðu í samskiptastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Samhliða ráðningu Katrínar Ernu hafa Þórhallur Ólafsson og Auður Marteinsdóttir tekið við aukinni ábyrgð á sölu- og markaðssviði Íslandshótela. Þórhallur hefur tekið við sem forstöðumaður tekna og dreifileiða og Auður sem forstöðumaður söludeildar. Með breytingunum er verið að laga skipulag sölu- og markaðssviðs að auknu umfangi starfseminnar, skýra ábyrgð og styrkja samstarf milli deilda. Þórhallur hefur langa reynslu af hótelrekstri og tekjustýringu. Hann var hótelstjóri á Fosshóteli Rauðará á árunum 2004–2006 og á Hótel Reykjavík Centrum frá 2006 til 2016. Síðastliðinn áratug hefur hann gegnt starfi tekjustjóra hjá Íslandshótelum. Í nýju hlutverki ber hann ábyrgð á tekjustýringu, dreifileiðum og hópabókunum félagsins. Þórhallur hefur lokið bókhaldsnámi við ÍTV, tölvutækninámi við TTÍ og leiðtoganámi fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu við Opna háskólann í Reykjavík. Auður hefur starfað hjá Íslandshótelum frá árinu 2016, fyrst sem viðskiptastjóri á sviði funda, hvataferða og ráðstefna (MICE) og sem sölustjóri á sama sviði frá 2021. Áður starfaði hún hjá ferðaskrifstofunni Atlantik við skipulag hvataferða og ráðstefna á Íslandi. Hún hefur því víðtæka reynslu af bæði sölu og skipulagningu slíkra ferða. Í nýju hlutverki stýrir Auður söludeild félagsins sem annast sölu til ferðaskrifstofa og fyrirtækja, auk funda, hvataferða og ráðstefna. Hún er með BS-gráðu í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands.“ Íslandshótel rekur nítján hótel með um 2.400 herbergjum víða um land undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík, auk Hilton Reykjavík.
Vistaskipti Hótel á Íslandi Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira