Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Rakel Sveinsdóttir skrifar 26. október 2026 07:02 Anna Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Ísland Duty Free, er algjör fyrirmynd í því hvernig hún bendir á að lífið er of mikið alls konar - lífið getur aldrei verið bara vinna - en lífsreynslan getur nýst okkur í vinnu. Margir munu geta mátað sig við margt af því sem hún segir frá úr sinni sögu. Vísir/Anton Brink Anna Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Ísland Duty Free, segir lífsreynsluna hiklaust það dýrmætasta sem hún tekur með sér inn í vinnuna. Námið komi manni af stað, en það fleyti manni bara visst langt.
Því staðreyndin er þessi: Lífið er alls konar. Það getur aldrei verið bara vinnan. Samt eigum við það til að skilgreina okkur, spyrja frétta, fylgjast með framgangi vina og vandamanna og svo framvegis: Út frá vinnu, stöðugildum, starfsþróun. Í dag ætlum við að snúa þessu við. Kynnast Önnu og sjá það í samhengi, hvernig það er oft lífsins reynslan sem á endanum eflir okkur mest. Og jafnvel nýtist okkur sem styrkur í vinnunni hverju sinni. Eiginmaður Önnu Hildar er Sigurður Sigurðsson flugumferðarstjóri. Þau kynntust á Tinder og áttu þá tvö börn hvort um sig. Að aðlaga fjölskyldu og búa til eina samheldna einingu er alveg áskorun - eins og flestar samsettar fjölskyldur þekkja - og Anna Hildur lýsir vel. Fjölskyldan er líka alls konar Anna Hildur ólst upp í Suðursveit til sex ára en síðan í Hafnarfirði. Fór til Sardiníu á Ítalíu sem skiptinemi, kláraði ekki stúdentinn heldur fékk undanþágu í háskólanám – þurfti að þreifa fyrir sér þar, kláraði síðan sálfræði og síðar meistaragráðu í mannauðsstjórnun. Eitt af því skemmtilega í sögu Önnu Hildar er hversu flókin fjölskyldan er. Sem notabene: Svo margir á Íslandi þekkja af eigin raun. Því jú, fjölskyldurnar okkar eru líka alls konar. Í tilfelli Önnu var það þannig að foreldrar hennar skildu, mamma hennar eignaðist barn með öðrum manni og á endanum varð systkinahópurinn níu talsins í gegnum báða foreldra og þeirra sambönd. „Yngsti bróðir minn er 12 ára og þrír bræður mínir eru yngri en dóttir mín,“ segir Anna og hlær. Enda 29 ára aldursmunur á milli þess elsta og yngsta í hópnum. Anna Hildur á níu systkini. Hér er mynd af systkinahópnum pabba hennar megin. Til viðótar á Anna Hildur tvö systkini mömmu hennar megin. Þrír bræður Önnu Hildar eru yngri en eldri dóttir hennar. Svo dæmigert fyrir íslenska fjölskyldu: Þær eru svo alls konar! Anna Hildur fæddist 1. júní árið 1985. Í Suðursveit bjó hún með mömmu og pabba, ömmu og afa og langömmu og langafa í næstu húsum. Til viðbótar við stóran hóp af frændfólki á svipuðum aldri. Anna Hildur lýsir sér sem glöðu og forvitnu barni. „Alltaf tilbúin til að prófa eitthvað nýtt og alltaf að spyrja: Af hverju er þetta svona? Af hverju ekki hinsegin?“ segir Anna Hildur og bætir við að krakkaskarinn í sveitinni hafi verið óheyrilega uppátækjasamur. Enda alltaf langskemmtilegast að gera það sem ekki mátti. Eins og að vaða eftirlitslaus út í lónið fyrir neðan bæina eða leika sér fyrir ofan þjóðveginn. „Stundum áttu erlendir ferðamenn leið hjá og það brást varla að þeir stoppuðu og gáfu okkur krökkunum nammi.“ Ævintýragjörn sum sé. En líka verulega ákveðin. „Mamma segir mér reglulega söguna af því þegar ég var tveggja ára og hún ætlaði að kynna mig fyrir jólasveinunum. Það var bara þvert nei. Það kom ekki til greina og mér var ekki haggað,“ segir Anna Hildur og hlær. Til sex ára bjó Anna Hildur í Suðursveitum - þar sem hún dvaldi líka hjá pabba sínum á sumrin í mörg sumur á eftir. Anna Hildur segist hafa verið uppátækjasöm, enda krakkarnir í sveitinni ævintýragjarnir og ýmislegt brallað. Foreldrar Önnu Hildar eru Þórunn Wolfram, stjórnandi hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm, og Björn Borgþór Þorbergsson, bóndi í Suðursveit. Sem að sögn dótturinnar heldur bæði sauðfé og túrista. Sex ára flutti Anna Hildur með mömmu sinni og albróður í bæinn. Öllum sumrum, jólum og páskum var þó áfram varið í sveitinni. Anna flutti reyndar oft. „Ég aðlagaðist samt mjög hratt og var fljót að eignast vini. Þetta gekk allt saman stóráfallalaust fyrir sig.“ Anna Hildur átti afar erfitt með að sætta sig við þegar mamma hennar skildi við barnsföður númer tvö: Sigga. Þá á menntaskólaaldri. Seinna snerist þetta við og hún upplifði togstreitu í sínu sambandi þegar unglingsdóttirin var engan veginn að gúddera sambúðina með eiginmanni Önnu - sem reyndar heitir líka Siggi.Vísir/Anton Brink „Hvar er Siggi?“ Anna Hildur var átta ára þegar mamma hennar fór að vera með manninum sem síðar varð stjúpfaðir hennar: Siggi. Og þótt ætla mætti að nýr maður á heimilinu hafi kallað á einhverja aðlögun segist Anna Hildur hafa tekið honum opnum örmum. „Ég man það ekki sjálf en mamma hefur sagt mér að ég hafi verið rosalega fókuseruð á að við yrðum að vera fjölskylda. Einu sinni fórum við mæðgur í Húsdýragarðinn og þá spurði ég: Bíddu, hvar er Siggi? Þetta er sko fjölskyldugarðurinn!“ Þó voru mamma hennar og Siggi tiltölulega nýbyrjuð saman. Í dag lítur Anna svo á að hún sé einstaklega lánsöm að eiga tvo stjúpfeður til viðbótar við föður sinn. Anna Hildur segist einstaklega lánsöm að eiga tvo stjúpfeður og stjúpmóður. Annar stjúpfaðirinn ól hana upp á mótunarárunum en hinn býr nú með mömmu hennar í Róm. Stjúpmóðirin býr í sveitinni. „Öll hafa þau reynst mér afskaplega vel og eiga sinn sérstaka stað í hjartanu.“ Flækjustigin hafa þó að sjálfsögðu verið einhver. Til dæmis var Anna svakalega ósátt við skilnað móður sinnar við Sigga. „Ég átti rosalega erfitt með þennan skilnað. Ég var mjög reið. Eiginlega reið út í mömmu og þegar hún fór að vera með nýjum manni vildi ég ekki sjá hann,“ segir Anna Hildur. Sem brá á það ráð að yfirgefa frónið, fara til Sardiníu og vera þar í góðu yfirlæti í eitt ár. Gallinn var þó sá að fyrir vikið stöðvaðist, má segja, tíminn: Anna Hildur vann ekki úr svekkelsinu og þeirri tilfinningu að vera „yfirgefin“ eftir skilnaðinn. Afleiðingin var sú að eftir að heim var komið, eftir tvö ár í MR, missti hún tökin á náminu. Það varð henni eiginlega ofviða. „Ég fór því að vinna, byrjaði hjá afa í fiskverkuninni en entist í því starfi bara í klukkutíma,“ segir Anna og hlær. Næst tók við að vinna fyrir Útlendingastofnun við að búa til vegabréf og síðar sem þjónustufulltrúi. Fallegar mæðgnamyndir: Dætur Önnu Hildar heita Þórunn Gabríela (f. 2006) og Sara Katrín (f.2016). Sigurður átti líka tvö börn þegar hann og Anna Hildur tóku saman: Sigurð Rúnar (f.2005) og Sandra Rut (f.2011). Dóttirin sem bjargaði Anna eignaðist kærasta, þau keyptu íbúð og tvítug varð Anna Hildur óvænt ófrísk. Þórunn Gabríela fæðist síðan árið 2006. „Auðvitað var það risastór breyting að verða mamma. En ég er eiginlega þeirrar skoðunar að þetta barn hafi átt að koma til mín. Hún bjargaði mér svolítið,“ segir Anna Hildur og bætir við: „Allt í einu var komin lítil mannvera sem lagði allt sitt traust á mig. Og ég þurfti bara að gjöra svo vel að taka mig saman í andlitinu og hugsa um þetta barn.“ Anna og barnsfaðirinn hættu saman þegar Þórunn var um eins og hálfs árs. Anna Hildur flutti þá með Þórunni í Borgarfjörðinn til móður sinnar og byrjaði þar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Vann með skóla og á sumrin í Skessuhorni og í ferðaþjónustu föður síns í sveitinni. „Það var alltaf ætlunin að mennta mig. Ég hef alltaf átt auðvelt með bóklegt nám og lesið mikið, var með mikinn orðaforða sem krakki,“ segir Anna Hildur. Enda las hún allt sem hún komst í. Rauðu seríuna líka. Stúdentsprófið kláraði Anna Hildur þó aldrei. „Ég átti eitthvað eftir, kannski 12 eða 18 einingar.“ Árið 2009 sótti Anna Hildur um háskólanám á undanþágu Fékk inni í íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni. Þangað fluttu mæðgurnar á nemendagarða; Þórunn þá þriggja ára. En Anna Hildur áttaði sig fljótt á því að námið var ekki það sem hún hélt. „Það miðar mjög að því að mennta þig sem íþróttakennara og það var ekki mín stefna.“ Þá sótti hún um í sálfræði, fékk inni og aftur pökkuðu mæðgurnar niður og fluttu á nemendagarða í bænum. Sálfræðina kláraði Anna Hildur á þremur árum. Ein með dótturina og vann með námi aðra hverja helgi. Unga einstæða móðirin í námi. Saga sem margar ungar konur kannast eflaust við enn í dag. „Jú, þetta var vissulega erfitt. En ég var og er svo ótrúlega heppin að eiga mjög stóra fjölskyldu bæði í móður- og föðurætt sem hefur alltaf veitt allan þann stuðning sem þurft hefur. Líka fjárhagslega þegar þess þurfti,“ segir Anna Hildur og bætir við: Fyrsta árið var ég bíllaus, sem er eiginlega vonlaust þegar maður er einn með barn. Þá tók mamma sig til og keypti bíl til að létta undir. Ég veit ekki hvernig ég hefði farið í gegnum þetta án þessarar hjálpar.“ Anna Hildur kláraði sálfræðina og síðan meistaranám í mannauðsstjórnun. Anna Hildur starfar í dag sem framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Ísland Duty Free. Hún segir námið hafa verið góðan grunn fyrir mannauðstjórnarstarfið. Lífsreynslan sé þó það sem kenni og styrki mann mest í starfi.Vísir/Anton Brink Óvart í mannauðsstjórnun Þegar Anna Hildur hafði lokið tveimur árum í sálfræðinni kynntist hún barnsföður yngri dóttur sinnar. Eftir námið fluttu þau saman og fjórum árum eftir að þau byrjuðu saman kom Sara Katrín í heiminn, árið 2016. Að loknu BS-náminu tók Anna Hildur sér árs hlé. Klínísk sálfræði heillaði ekki og hún vissi ekki alveg hvert hugurinn stefndi. Einn daginn fékk Anna Hildur símtal frá föðursystur sinni og jafnöldru. Hún hringdi í mig, sagði ætla að skrá sig í mannauðsstjórnun í háskólanum, hvort við ættum ekki ara að skella okkur saman. Og ég sagði bara: Jú, ókei!“ Sumsé: Anna Hildur fór eiginlega óvart í mannauðsstjórnun. Námið var áhugavert. „Ég hef alltaf verið mjög fókuseruð á mannlegu hliðina. Hvernig fólk hugsar og þessar gildrur sem við föllum í í þankagangi. Sálfræðin fer eðlilega dýpra í það, þannig að ég græddi kannski mest á rekstrartengda hlutanum og breytingastjórnun.“ Á síðustu önninni, þegar hún skrifaði lokaverkefnið, var Anna Hildur orðin ólétt. Sem hún sagði að hefði svo sem ekki verið fréttnæmt í hópnum. Því allt að þrír fjórðu hópsins henti sér í barneignir í lok námsins. „Einhver bylgja,“ segir hún og hlær. Anna Hildur útskrifaðist því ólétt og fór beint í fæðingarorlof. Undir lok orlofsins fór hún að líta í kringum sig eftir starfi og hafði meðal annars sótt um hjá IKEA. En ekki fengið. „Síðan, rétt fyrir sumarið 2017, fékk ég símtal frá mannauðsstjóranum sem hafði geymt umsóknina mína og bauð mér í viðtal. Það gekk svona líka ljómandi vel og ég fékk starfstilboð.“ Anna með dótturinni Þórunni en Anna Hildur hefur upplifað að fá hræðilega símtalið sem ekkert foreldri vill fá: þegar hringt er og sagt að barnið manns hafi lent í alvarlegu slysi. Anna Hildur segir þess lags áfall lífsmótandi. Hjá IKEA starfaði Anna Hildur í tæp fimm ár og segist hafa fengið afskaplega gott uppeldi þar. „Málin sem komu upp spönnuðu allt sviðið. Ég átti frábæra fyrirmynd í Fjólu Kristínu, þáverandi yfirmanni mínum, og var partur af einstaklega samheldnu teymi,“ segir Anna Hildur og nefnir sérstaklega Covid-tímann, þegar allir lögðust á eitt við að tína til, pakka og afhenda vörur sem fólk sótti í unnvörpum. Sem minnir okkur á að Anna Hildur er líka mikil DIY-manneskja. Með einum fyrirvara: „Mér þykja leiðbeiningar almennt vera lausleg tillaga fremur en eitthvað sem á að fylgja vandlega. Og ef um IKEA-húsgögn er að ræða eru undantekningalaust grunsamlega margar skrúfur afgangs að verki loknu.“ Anna Hildur og Sigurður byrjuðu saman korter í Covid. Að vissu leyti var voða notalegt að geta verið bara í sinni búbblu að kynnast og kynna krakkana, svona á meðan heimsfaraldurinn geisaði. Anna Hildur segir þau hjónin eins og svart og hvítt þegar kemur að stundvísi: Hún er alltaf of sein en Siggi jafn stundvís og öguðustu Þjóðverjar. Ástin og rómantíkin Snemma árs 2020 skildu leiðir Önnu Hildar og barnsföður yngri dóttur hennar. „Ég ætlaði sko ekkert í samband,“ segir Anna Hildur og hlær. En lífið var ekki sammála því. Stuttu síðar kynntist Anna Hildur Sigurði Sigurðssyni flugumferðarstjóra. Hvernig kynntust þið? „Það er þessi afskaplega rómantíska saga um Tinder,“ segir Anna Hildur og hlær. Á fyrsta stefnumótinu bauð Sigurður henni heim í mat. „Hann grínast mikið með það að ég hljóti að vera mjög áhættusækin. Hitta ókunnugan mann uppi í Breiðholti á dimmu vetrarkvöldi í mars,“ segir Anna Hildur en bætir við að hún hafi að vísu verið búin að gera smá bakgrunnstékk. „Móðursystir mín er líka flugumferðarstjóri, svo ég var búin að tékka hvort hann væri til.“ Annað stefnumótið var bíóferð. Og þá munaði litlu að sagan hefði endað þar. Ég er hræðilega illa haldin af bæði tímablindu og tímabjartsýni og er eiginlega alltaf of sein. Hann er alveg andstæðan, rosalegur Þjóðverji í sér þegar kemur að því að vera tímanlega. Þannig að hann þurfti að bíða aðeins eftir mér og var farinn að halda að ég væri ekkert að fara að mæta.“ Sem betur fer gaf Siggi henni tækifæri. Korteri eftir að Anna Hildur og Siggi kynntust var öllu skellt í lás vegna Covid. Sem hentaði reyndar ungu pari vel – sem var að kynnast og þurfti líka aðlögunartíma fyrir börnin sín fjögur samtals að kynnast. Því fyrir átti Sigurður tvö börn líka: Sigurð Rúnar (f. 2005) og Söndru Rut (f. 2011). Anna Hildur fetaði sig upp metorðastigann í starfsframa. En óháð allri velgengni og starfsframa, eru flóknustu áskoranirnar oft einfaldlega lífið: Það er svo alls konar og ekkert handrit til. Engin fjölskylda er undanskilið því að vera alltaf að takast á við eitthvað og saga Önnu Hildar er mjög gott dæmi um það.Vísir/Anton Brink Vinnan og áskoranir heima fyrir Í starfi færði Anna Hildur sig yfir til Iceland Hotel Collection by Berjaya árið 2022. Sem þá var á lokametrunum að breytast úr Icelandair hótelum. Þar réði hún sig sem mannauðsstjóra tveggja hótela: Reykjavík Konsúlat og Iceland Parliament Hotel, sem þá var enn verið að byggja og opna. „Mér fannst það mjög spennandi en alveg stressandi líka. Þetta er stórt hlutverk því það snýr svo mikið að fólki, tilfinningum og upplifunum fólks. Helsta áskorunin var að ná jafnvægi á milli rekstrarhliðarinnar og fólksins.“ En að búa til nýja fjölskyldueiningu er alltaf áskorun. Líka þegar vel gengur. Þórunn var 14 ára þegar Anna Hildur og Sigurður kynntust. „Á meðan við bjuggum ekki saman gekk þetta mjög vel. Þau voru rosa góðir vinir og eins gekk vel með börnin sem hann lagði í púkkið,“ segir Anna Hildur. Eftir eitt og hálft ár fluttu þau saman. „Það fór ekki vel í hana. Henni fannst það mjög erfitt og lét hann reglulega heyra það, fyrir allt og ekkert,“ segir Anna Hildur og bætir við: „Þórunn er ekki dóttir móður sinnar fyrir ekki neitt. Það er þrjóska í hennar blóði líka.“ Og þá stóð Anna Hildur í miðjunni. Þetta var mjög erfiður tími. Þau sitt hvoru megin og ég einhvern veginn að reyna að miðla málum.“ Fjölskyldan leitaði sér aðstoðar hjá Valgerði Halldórsdóttur hjá Stjúptengslum. „Það lagar kannski ekki allt. En það hjálpaði okkur öllum að setja hlutina í aðeins annað samhengi.“ Með tímanum fór allt að róast. Kærasti Þórunnar flutti síðar í bæinn og inn til þeirra og í fyrrasumar fluttu ungu skötuhjúin saman á Nemendagarða, þegar Þórunn hóf nám í sálfræði. Já, í sálfræði eins og mamman. „Eftir að allir fengu sitt eigið rými varð viðsnúningurinn endanlegur. Sambandið hefur aldrei verið betra.“ Og það er eitthvað hálfskondið að sjá spegilmyndina í sögunni: Unglingsstúlkan sem eitt sinn var reið út í mömmu sína og nýja manninn hennar stendur nú sjálf í sporum mömmunnar. „Því málið er að í lífinu er einfaldlega ekkert handrit,“ segir Anna Hildur. Andstæðurnar sól og snjór. Sem er svo skemmtilegt að setja í samhengi við hversu ólík viðfangsefnin okkar geta verið. Hvort sem er í leik eða starfi. Anna á sér reyndar mörg áhugamál líka; snjóbretti, fjallahjól og að gera fínt heima fyrir. Hræðilega símtalið 3. janúar árið 2024 fékk Anna Hildur símtalið sem ekkert foreldri vill fá. Þórunn, þá sextán ára, hafði eytt jólunum með kærastanum hjá fjölskyldunni hans á Höfn í Hornafirði. Þau voru á heimleið í bæinn. Vinur þeirra keyrði. Í Öræfunum kom flughálka á veginn sem bílstjórinn áttaði sig ekki á. Og á móti kom Land Cruiser-jeppi. Anna Hildur var í vinnunni þegar síminn hringdi seinni partinn, rétt við að fara að leggja af stað heim. „Maður kynnir sig sem sjúkraflutningamann og reynir að fara varlega inn í það að segja mér að það hafi orðið slys. Að Þórunn sé hjá honum í sjúkrabílnum og hafi beðið hann um að hringja í mig,“ segir Anna Hildur en bætir við: „Ég man eiginlega ekki hvað fór fram í þessu samtali. Hausinn á mér fór bara í áfall.“ Anna Hildur fékk þó að tala við Þórunni, sem var auðvitað í sjokki sjálf, greyið. Kvartaði helst undan verk í bakinu. Enda kom í ljós að Þórunn var alvarlega slösuð: hafði þríbrotnað á hrygg, rifbeinsbrotnað og meiðst á þumli. „Þegar ég lagði á fékk ég kvíðakast. Ég gat ekki andað, tárin runnu og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við mig,“ segir Anna Hildur og bætir við: Síðan tók ég mér smá tíma til að ná tökum á andardrættinum og hugsaði: Nú er ég með verkefni. Ég þarf að láta Sigga vita. Ég þarf að láta pabba hennar vita. Ég þarf að upplýsa fjölskylduna.“ Þegar Anna Hildur gekk út af skrifstofunni mætti hún yfirmanni sínum. „Ég ætlaði að segja honum hvað hafði gerst en ég gat það ekki. Það komu tvenn orð og svo fór allt loft úr mér og tárin bara á fleygiferð.“ Anna Hildur keyrði heim í Árbæinn. Sat föst í umferðarþunga á Sæbrautinni. Mér datt ekki til hugar að ég væri ekki ökufær. Ég hefði aldrei átt að keyra. Það leið langur tími þar til ég treysti mér til að keyra Sæbrautina aftur. Hún var of sterkt tengd þessu.“ Styrkurinn í börnunum okkar Á bráðamóttökunni var Önnu Hildi og Sigga vísað inn í herbergi. Síðan kom hjúkrunarfræðingur og bjó þau undir það sem koma skyldi. Hún sagði: Þyrlan er lent. Ég vil bara vara þig við svo þér bregði ekki. Það er búið að klippa öll fötin utan af henni, hún er svolítið lemstruð og í sjokki.“ Anna Hildur dásamar heilbrigðisfólkið sem annaðist Þórunni og fjölskylduna. Ekki síst á Barnaspítalanum þangað sem Þórunn var flutt. „Þegar maður skoðar myndirnar af bílnum er bara mildi að hún hafi lifað. Það er bara staðreynd,“ segir Anna Hildur, þakklát fyrir að ekki fór verr. Anna Hildur segir svona áfall mjög lífsmótandi. Kenni manni líka hversu sterk börnin okkar geta verið. Enda bataferlið langt og strangt hjá Þórunni. Mánuðum saman var Þórunn í bataferli. Komst ekki í skólann en hélt náminu áfram og náði að klára stúdentsprófið með bekknum sínum: Annað kom eiginlega ekki til greina hjá henni. „Einurðin og seiglan sem hún sýndi voru ótrúleg. Ég dáist óhemjumikið að henni.“ Anna Hildur segir Þórunni dóttur sína eina af sínum stærstu fyrirmyndum. Það hversu dugleg hún var í bataferlinu eftir alvarlegt bílslys hafi verið aðdáunarvert. Rúmliggjandi mánuðum saman var hún ákveðin í að klára stúdentinn og tókst það með bekknum sínum; svo mikil var seiglan. Þriðja vaktin og kvöldmaturinn Utan vinnu nýtur Anna Hildur þess að leika sér til fjalla, hvort sem það er á fjallahjóli eða snjóbretti. Á snjóbrettinu segist hún reyndar eyða meiri tíma á andlitinu eða afturendanum en á ferð niður brekkurnar. Á heimilinu segist Anna Hildur hafa mikla ástríðu fyrir DIY-verkefnum og framkvæmdum. Þar eru leiðbeiningar jafnan álitnar frekar lausleg tillaga en heilagur sannleikur. Það kemur því ósjaldan fyrir að hún þurfi að bakka nokkur skref í verkinu og grunsamlega margar skrúfur standi út af þegar yfir lýkur. Að púsla saman vinnu, heimili, nýju sambandi, stjúpfjölskyldu, þriðju vaktinni og áhugamálunum er hins vegar ekkert grín. „Það gekk upp og ofan, ég ætla ekki að ljúga að þér. Þetta er ógeðslega flókið,“ segir Anna Hildur. „Ég upplifði oft að ég gæti verið að gera betur, því maður er svo dreifður. Það er svo margt sem þarf að sinna og maður vill standa sig alls staðar. Eðlilega fellur þá ýmislegt milli stafs og hurðar.“ Eins og? „Ég er til dæmis alveg hræðileg þegar kemur að kvöldmat. Ég hef bara ekki kapasítet í að hugsa um hann,“ segir Anna Hildur og hlær. Anna Hildur viðurkennir líka að hún eigi það til að verða hugfangin af vinnunni. „Mér finnst hún mjög skemmtileg og ég sé yfirleitt mýmörg tækifæri til umbóta. Sem ég vil helst hrinda öllum af stað á sama tíma,“ segir Anna Hildur og bætir við: Ég held að maður þurfi að vera góður við sjálfan sig og ekki of kröfuharður. Að vilja gera allt 100 prósent og standa sig gagnvart öllum alltaf, og helst aðeins betur, gengur ekki upp. Og að vera opinskár við makann og börnin, að því marki sem við á. Fá að vera bara maður sjálfur. Ekki bara mamman eða mannauðsstjórinn.“ Anna Hildur Anna Hildur Björnsdóttir mannauðstjóri Sem leiðir okkur aftur að vinnunni. Því þegar Anna Hildur er spurð að því hvort lífsreynslan nýtist henni í starfi mannauðsstjóra svarar hún strax játandi. Og grípur til enskunnar, enda vinnuumhverfið hennar að hluta til á ensku. „Lífsreynslan er stærsti styrkleikinn sem ég kem með inn í svona starf,“ segir Anna Hildur og bætir við: „Lífsreynslan kennir okkur nefnilega svo margt. Til dæmis það að þótt mín viðbrögð, hugsanir eða álit á einhverjum atburði séu á einn veg, þá er ekki þar með sagt að næsta manneskja við hliðina á mér upplifi nákvæmlega sama atburðinn á sama hátt.“ Anna Hildur segir fólk almennt gjarnt á að telja sig svo frábrugðið hvert öðru. „En þegar upp er staðið er fólk bara fólk. Með sömu grunnþarfirnar og tilhneigingu til að falla í sömu hugsanagildrurnar.“ Hvaða ráð myndi hún þá gefa stjórnendum þegar kemur að mannauðsmálum? Leyfið ykkur að láta ykkur þykja vænt um fólk. Það er ekki á ykkar ábyrgð að laga allt sem bjátar á. En oft má auka vellíðan einfaldlega með því að hlusta og vera til staðar.“ Því lífið er jú alls konar. Hjá okkur öllum.
Starfsframi Fjölskyldumál Mannauðsmál Tengdar fréttir Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði „Ætli hvert heimsbikarsmót sé ekki að færa vinningshöfum sem samsvarar átta milljónum íslenskra króna sem þeir sem eru í topp tíu besta hópnum eru þá að vinna nokkrum sinnum á ári,“ segir Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir afrekskona á skíðum. 12. mars 2026 07:00 Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei „Mín reynsla er sú að kennarar eru til í að breyta og mjög opnir fyrir nýjum lausnum. Margir eru hins vegar orðnir vonlitlir um breytingar því of oft er það eitthvað annað sem segir: Nei, þetta má ekki,“ segir Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir aðgengissérfræðingur, kennsluhönnuður, námskrárhönnuður og stofnandi menntatæknifyrirtækisins HARTS. 11. mars 2026 07:02 Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim „Góð spurning,“ segir Þórður Atlason hjá Atlas og hlær sem viðbragð við spurningunni: Hvers vegna fluttir þú til Rússlands? 16. febrúar 2026 07:02 Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum „Já, og við erum á hraðleið inn í sjálfkeyrandi bílabransann líka,“ segir doktor Finnur Pind, framkvæmdastjóri Treble Technologies. 26. janúar 2026 07:03 Öðruvísi starfsframi: „Davíð, getur þú mætt eftir 30 mínútur?“ Það er svo gott að vera minnt á það reglulega að við þurfum ekki öll að feta sömu leið. Og eins að lífið getur tekið okkur á svo skemmtilegar nýjar brautir. Það sem við kannski eitt sinn héldum að yrði framtíðin, reynist á endanum fjarri lagi. 6. október 2025 07:00 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Sjá meira
Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði „Ætli hvert heimsbikarsmót sé ekki að færa vinningshöfum sem samsvarar átta milljónum íslenskra króna sem þeir sem eru í topp tíu besta hópnum eru þá að vinna nokkrum sinnum á ári,“ segir Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir afrekskona á skíðum. 12. mars 2026 07:00
Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei „Mín reynsla er sú að kennarar eru til í að breyta og mjög opnir fyrir nýjum lausnum. Margir eru hins vegar orðnir vonlitlir um breytingar því of oft er það eitthvað annað sem segir: Nei, þetta má ekki,“ segir Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir aðgengissérfræðingur, kennsluhönnuður, námskrárhönnuður og stofnandi menntatæknifyrirtækisins HARTS. 11. mars 2026 07:02
Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim „Góð spurning,“ segir Þórður Atlason hjá Atlas og hlær sem viðbragð við spurningunni: Hvers vegna fluttir þú til Rússlands? 16. febrúar 2026 07:02
Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum „Já, og við erum á hraðleið inn í sjálfkeyrandi bílabransann líka,“ segir doktor Finnur Pind, framkvæmdastjóri Treble Technologies. 26. janúar 2026 07:03
Öðruvísi starfsframi: „Davíð, getur þú mætt eftir 30 mínútur?“ Það er svo gott að vera minnt á það reglulega að við þurfum ekki öll að feta sömu leið. Og eins að lífið getur tekið okkur á svo skemmtilegar nýjar brautir. Það sem við kannski eitt sinn héldum að yrði framtíðin, reynist á endanum fjarri lagi. 6. október 2025 07:00