Bíó og sjónvarp

Fréttamynd

Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“

Johnny Depp mun leika nánösina Ebeneser Skrögg í Ebenezeri, nýrri aðlögun á Christmas Carol eftir Charles Dickens, sem verður frumsýnd næstkomandi nóvember. Depp hefur verið fjarverandi Hollywood síðan Amber Heard, fyrrverandi eiginkona hans, sakaði hann um heimilisofbeldi árið 2018 og þau tókust í kjölfarið á fyrir dómstólum.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lofar nýrri Ódys­seifs­kviðu fyrir árs­lok

Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að gervigreindararlíkan hans, Grok Imagine, muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ali G snýr aftur

Gervitöffarinn Ali G sem varð frægur um aldamótin snýr aftur í framhaldsmyndinni Ali G: Who Iz I? í oktber. Fyrri myndin, Ali G In Da House, kom út 2002 og var fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Sacha Barons Cohen.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Joanna Pettet er látin

Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Pulp Fiction-stjarna heiðurs­gestur á RIFF

Portúgalska leikkonan Maria de Madeiros, sem lék Fabienne í Pulp Fiction, verður heiðursgestur á kvikmyndahátíðinni RIFF. Á hátíðinni verður haldin sérstök stemmingssýning á Pulp Fiction í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar þar sem gestum gefst tækifæri á að smakka hamborgarana sem koma við sögu í myndinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Britney á stóra skjáinn

Ævisöguleg kvikmynd um poppstjörnuna Britney Spears færist nær því að verða að veruleika. Aðlögunin á sjálfsævisögu Spears að stóra skjánum hefur verið í lausu lofti síðan 2024 en nú herma fregnir að búið sé að ráða handritshöfundinn Elizabeth Meriwether í verkið. Hún bætist í framleiðsluhópinn með leikstjóranum Jon M. Chu og framleiðandanum Marc Platt.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler

Í nýjustu kvikmyndinni um Skósveinana svokölluðu kemur fram að þeir hafi þjónað mörgum af helstu skúrkum mannkynssögunnar. Leikstjóri teiknimyndanna segir aftur á móti að þeir hafi ekki þjónað Adolf Hitler Þýskalandskanslara í seinni heimsstyrjöldinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Danny Glover með Alzheimer

Bandaríski leikarinn Danny Glover greindi frá því í dag að hann væri kominn með Alzheimer-sjúkdóm og hefði glímt við hann síðustu þrjú ár. Hann segist byrjaður að finna fyrir áhrifum sjúkdómsins á talanda sinn, hreyfingu og minningar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Michael Byrne er látinn

Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

James Burrows látinn

Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Lauf­ey Lín er mætt til Springfield

Laufey Lín, íslensku tónlistarstórstjörnunni, hefur á síðastliðnum mánuðum brugðið fyrir í tölvuleiknum Fortnite, á rauða dregli tískuhátíðarinnar Met Gala og í leiknum God of War. Þá var hún einnig valin söngkona ársins og var sigursælust á íslensku tónlistarverðlaununum en nú hefur hún tekið sig til og birst í nýjasta þætti The Simpsons.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Tyra Banks kærir Netflix fyrir æru­meiðingar

Tyra Banks hefur kært Netflix fyrir ærumeiðingar vegna heimildarþátta sem þau gerðu um America‘s Next Top Model. Þættirnir voru frumsýndir fyrr á árinu og vöktu mikla athygli. Í málsókn sinni segir Tyra að framleiðendur hafi klippt margra klukkustunda viðtal við hana niður í nokkra stutta búta til að búa til „falska frásögn“.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur

Leikarinn Seth Rogen segist ekki hafa talað við sinn gamla vin, James Franco, í áraraðir og hann hafi ekki í hyggju að vinna með honum frekar. Þeir hófu ferilinn saman í sjónvarpsþáttunum Freaks and Geeks og unnu náið saman við fjölda mynda. Í MeToo-bylgjunni stigu fram fimm konur og sökuðu Franco um kynferðislega áreitni sem gerði út af við feril hans í Hollywood og greinilega einhver vinasambönd.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Þórður leik­stýrir kvik­myndaút­gáfu Dead by Daylight

Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið fenginn til liðs við teymi sem vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á hrollvekju- og spennuleiknum Dead by Daylight. Hann vakti víða athygli fyrir hrollvekjuna „Hin fordæmdu“ (á ensku The Damned) sem var frumsýnd í janúar 2025. Hann hefur einnig skapað og leikstýrt fyrstu íslensku Netflix Original þáttaröðinni „Brot“ (á ensku The Valhalla Murders) sem var frumsýnd á streymisveitunni árið 2020.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Margaret Kerry er látin

Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Harbour rýfur þögnina

Leikarinn David Harbour hefur loksins tjáð sig um plötuna West End Girl eftir Lily Allen, fyrrverandi eiginkonu hans, en þar söng hún um skilnað þeirra og framhjáhald hans. Harbour segist bera virðingu fyrir því að Allen hafi unnið úr eigin reynslu á plötunni en upplifun hans af sambandi þeirra hafi verið önnur.

Bíó og sjónvarp