Elma seld til útlanda Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 10:55 Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu. Juliette Rowland Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glassriver. Elma hefur þegar verið seld til Finnlands en sala þáttanna á fleiri mörkuðum hefst á MIPCOM í Cannes, stærstu kaupstefnu heims fyrir sjónvarpsefni, sem haldin verður dagana 12. til 15. október. Þar koma framleiðendur, dreifingaraðilar og fulltrúar sjónvarpsstöðva og streymisveitna saman til að kynna nýtt efni og semja um kaup og dreifingu þess. „Við erum mjög ánægð með samstarfið við Mediawan. Það er eitt af öflugri dreifingarfyrirtækjum Evrópu og bindur miklar vonir við Elmu. Reynsla þeirra og þekking á erlendum mörkuðum skipta miklu máli þegar við kynnum þættina fyrir kaupendum,“ segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri og framleiðandi hjá Glassriver. Glassriver framleiðir Elmu í samstarfi við belgíska framleiðslufyrirtækið Lunanime og kemur finnska sjónvarpsstöðin MTV einnig að verkefninu. Þættirnir gerast á Akranesi, þangað sem lögreglukonan Elma snýr aftur á æskuslóðir eftir sambandsslit. Þegar kona finnst látin við vita í bænum hefst rannsókn sem leiðir í ljós gömul leyndarmál. Katrín Björgvinsdóttir og Þóra Hilmarsdóttir leikstýra þáttunum. Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir er aðalhandritshöfundur og skrifar handritið ásamt Elísabetu Hall og Urði Egilsdóttur. Unnur Birna Backman fer með aðalhlutverkið og með önnur hlutverk fara Nikulás Hansen Daðason, Hjálmar Hjálmarsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Katla Njálsdóttir, Jörundur Ragnarsson og Sólveig Arnarsdóttir. Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum:
Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Finnland Frakkland Tengdar fréttir Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust. 30. september 2026 07:01 Unnur Birna verður Elma Leikkonan og rísandi stjarnan Unnur Birna Bachman fer með hlutverk Elmu í samnefndri þáttaröð sem er væntanleg næsta vetur. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur. 24. september 2025 10:56 Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Fleiri fréttir Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust. 30. september 2026 07:01
Unnur Birna verður Elma Leikkonan og rísandi stjarnan Unnur Birna Bachman fer með hlutverk Elmu í samnefndri þáttaröð sem er væntanleg næsta vetur. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur. 24. september 2025 10:56