Ástarbréf til íslenskra költmynda Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 10:27 Alaska og Frumburður sem Stella og Robbi úr kvikmyndinni Blossa en þau bregða sér í ýmiss konar líki. Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna. „
Fokkamérupp“ er fjórða lagið af Helga á Prikinu, gestalistamannaplötu (e. feature album) tónlistarmannsins Orra Starrasonar, sem gengur undir listamannsnafninu Frumburður, og kemur út hjá Sticky Records. Platan samanstendur af sjö lögum en á hverju þeirra er nýr gestalistamaður og hverju lagi fylgir tónlistarmyndband. Platan kemur svo út í sjö hlutum á sjö vikum. Hugmyndin með Helga á Prikinu, sem er vísun í frægasta fastagest Priksins, er að fagna borginni, næturlífinu og fólkinu sem gefur henni sinn karakter. Tónlistin spannar popp, raftónlist og rapp og fær hvert lag sinn sérstaka blæ í gegnum ólíka gestalistamenn. Á plötunni koma fram Alaska1867, Kusk & Óviti, Straff (Spacestation), Skoffín, Countess Malaise, ICY- og Una Schram. Leikstjórinn Jóna Gréta Hilmarsdóttir leikstýrði svo tónlistarmyndbandinu sem hún lýsir sem eins konar samansafni af tilvitnunum úr íslenskum kvikmyndum og einum sjónvarpsþætti. Sá strax fyrir sér neonbláan kjól Stellu „Þegar ég hlustaði á lagið fannst mér strax vera mjög skýr „90’s eða early 2000’s“-fílingur yfir því. Ég sá nánast strax fyrir mér neonbláa kjólinn hennar Stellu úr költ-kvikmyndinni Blossi/810551 (1997) eftir Júlíus Kemp og svo fór boltinn bara að rúlla,“ segir Jóna Gréta um myndbandið. „Ég er algjör kvikmyndanördi og mér þykir óendanlega vænt um þessar óhefluðu myndir okkar sem teljast margar hverjar til klassíkur í dag og við sækjum innblástur í aftur og aftur,“ bætir hún við. Alaska og Frumburður í svipuðum málningargöllum og í Íslenska draumnum. Tónlistarmyndbandið er myndflétta af frægum íslenskum senum og var þar úr vöndu að ráða. Fyrst áttu það bara að vera íslenskar kvikmyndir en svo fékk Næturvaktin (2007) að fljóta með. Kvikmyndirnar sem urðu fyrir valinu eru: Blossi/810551 (1997), Íslenski draumurinn (2000), 101 Reykjavík (2000) og Ástrópía (2007). „Við reyndum eftir bestu getu að endurgera atriðin, finna svipaða búninga og fá leyfi til að taka upp á sömu tökustöðum. Stundum fannst okkur þó viðeigandi að stokka aðeins upp í atriðunum, eins og í tilfelli atriðisins með ryksuguna og skapahárin í Blossa en í okkar myndbandi er það karlinn sem verið er að raka,“ segir Jóna Gréta. Alaska sem Ylfa úr Næturvaktinni. Þau hafi ákveðið að taka upp á filmu sem Jónu fannst blasa við. „Við vildum reyna að vinna áfram með ákveðna nostalgíutilfinningu hjá áhorfendum, en líka einfaldlega vegna þess að ísskápurinn hjá mér og maka mínum Konráði Kárasyni Þormar, sem tekur upp myndbandið, var smekkfullur af filmum. Næst var það bara að hringja í Ara Eldjárn og plata þennan elskulega mann til að lána okkur filmuvélina sína fyrir smáaura,“ segir hún. Orri bregður sér í hlutverk Úlfs úr Blossa. Það kosti sitt að framkalla á filmu en framleiðsla hafi þó verið ódýr. „Við unnum þetta í raun eins og um skólaverkefni væri að ræða: thrift-uðum fötin, gengum inn á tökustaði og spurðum um leyfi, unnum með lítið teymi og treystum að miklu leyti á náttúrulega lýsingu, þetta var smá svona „old-school style“ en það bauð líka upp á frelsi og leik á tökustað. Ég get því sagt með öryggi að þetta sé skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í og ég vona að það skili sér á skjáinn.“ Íslenski draumurinn er sígildur.
Tónlist Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Fleiri fréttir Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira