Neytendur

Fréttamynd

Bankarnir byrjaðir að hækka vexti

Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtabreytingar í kjölfar nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag og standa þeir í 7,50%.

Neytendur

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ó­vænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum

Jón Jóhannsson, eigandi ísgerðarinnar Skúbb, segir það nokkuð óvæntar fréttir að mjólk og rjómi séu ekki meðal helstu innihaldsefna í rjómaís frá Emmessís og mjúkís frá Kjörís. Hann segir yfirleitt ekki fleiri en fimm innihaldsefni í ísnum sem hann framleiðir og að það sé alltaf mjólk í grunninn.

Neytendur
Fréttamynd

Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó

Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar.

Neytendur
Fréttamynd

Sönnuðu ekki full­yrðingar um lækninga­mátt og fá háa sekt

ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.

Neytendur
Fréttamynd

Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi aug­lýsinga

Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir.

Neytendur
Fréttamynd

Á að fá endur­greidd gler eftir gallaða sjónmælingu

Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.

Neytendur
Fréttamynd

Engin svör að fá sem skýra „rán um há­bjartan dag“

Trúnaður ríkir um innihald samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila í flugstöðinni og sökum þessa getur Isavia ekki veitt upplýsingar um það hvaða skilyrði eru fyrir hendi í samningi flugvallarins við fyrirtæki sem rekur fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar eru þeir samningar sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila þess eðlis að þeir eru jafnan tengdir við veltu. Af því má ráða að Isavia fái meira upp úr krafsinu eftir því sem rekstraraðilar í flugstöðinni fá meira í kassann. Það tók níu mánuði að fá svör frá Isavia um samning vegna fjármálaþjónustu á flugvellinum, sem var á þá leið að ekki væri unnt að veita umbeðnar upplýsingar.

Neytendur
Fréttamynd

Fjölga verslunum í Danaveldinu

66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum.

Neytendur
Fréttamynd

Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár

Pósturinn hefur birt nýja verðskrá sem tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Mesta verðhækkunin er á sendingum eins til tveggja kílóa smápakka til Evrópulanda annarra en Norðurlanda, sem hækka um 120 prósent.

Neytendur
Fréttamynd

„Ó­skiljan­leg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar

Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða.

Neytendur
Fréttamynd

Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs

Miklar hækkanir urðu á gosdrykkjum og brauðmeti um áramótin, að því er verðlagseftirlit ASÍ leiðir í ljós. Samkvæmt því hækkaði Bónus og Krónan verð talsvert meira en Prís en þó Prís sé langódýrasta matvöruverslunin þá hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Segir að hækkanirnar komi fyrr fram en í janúar í fyrra.

Neytendur
Fréttamynd

Hvetur eig­endur Tesla til að fylgjast með bilunum

Eigendur rafbíla af gerðinni Tesla og þá sérstaklega af gerðinni Tesla Y eru hvattir til þess að fylgjast vel með ástandi bíla sinna af hálfu FÍB. Tilefnið eru fréttir af því að tæplega helmingur Tesla Y bíla komist ekki í gegnum fyrstu skoðun í Danmörku.

Neytendur
Fréttamynd

Ó­sann­gjarnt að skatt­greið­endur borgi framkvæmdaruslið

Neytendur lýsa yfir óánægju með há förgunargjöld á endurvinnslustöðvum Sorpu og segja gjöldin ýta undir hvata til þess að skilja úrgang eftir á víðavangi. Upplýsingafulltrúi Sorpu segir ekki sanngjarnt að skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu borgi fyrir framkvæmdaruslið hjá þeim sem kjósa að fara í framkvæmdir.

Neytendur
Fréttamynd

Dæmi um kol­ranga á­ætlun Skattsins

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir mikilvægt að fólk skrái kílómetrastöðu ökutækja áður en fresturinn rennur út á morgun. Þá gæti verið sniðugt að fara yfir hvort skráningin sé alveg örugglega rétt. 

Neytendur