Neytendur

Fengu ekki bætur þrátt fyrir ó­hreint her­bergi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur fimm manna hóp ekki eiga rétt á bótum frá ferðaskrifstofu eftir að hótelgistingu þeirra reyndist ábótavant. Hópurinn taldi sig eiga rétt á bótum og sagði hótelíbúðina hafa verið óhreina, ýmis tæki biluð, gat hafi verið á hurðinni og ljósaperur vantaði í mörg ljós.

Fimm manna hópur átti bókaða pakkaferð erlendis með ónefndri ferðaskrifstofu og greiddi annar sóknaraðilinn 571.825 krónur fyrir hann og annan í hópnum en hinn sóknaraðilinn greiddi 774.489 krónur fyrir sig og tvo aðra.

Upphaflega hafi hópurinn ætlað á ónefndan áfangastað en eftir að flugfélagið hafi hætt að fljúga á áfangastaðinn var hópnum því boðin full endurgreiðsla eða önnur pakkaferð í staðinn. Önnur pakkaferð varð fyrir valinu, sem átti að kosta meira, en veitti ferðaþjónustufyrirtækið tuttugu þúsund króna afslátt af kaupverðinu. 

Þegar hópurinn, sem var á leið í fjölskyldufrí erlendis, kom á nýja áfangastaðinn hafi aðstaða hótelíbúðanna hins vegar verið ófullnægjandi. 

„Hafi íbúðirnar verið afar óhreinar og ýmis tæki biluð og hlutir skemmdir, til að mynda hafi klósettseta á baðherbergi verið brotin, gat verið á útidyrahurð og ljósaperur vantað í mörg ljós. Þá vísa sóknaraðilar til þess að engin þrif hafi farið fram í herbergjunum á gistitímanum, aðeins skipt um handklæði og búið um rúm,“ segir í úrskurðinum.

Einnig hafi verið töluvert ónæði á næturnar sökum drykkjuskapar og óláta frá öðrum hótelgestum.

Fengu að sjá sjö íbúðir

Hópurinn hafði samband við ferðaskrifstofuna meðan á ferðinni stóð og kvartaði undan gistingunni. Þeim hafi verið boðið að skoða aðrar íbúðir á hótelinu en þau sögðu þær hafa verið í jafn slæmu eða jafnvel verra ásigkomulagi og því ekki séð tilganginn í því að skipta um íbúðir.

Þá óskuðu þau eftir flutningi á annað hótel gegn greiðslu sanngjarns kostnaðar en því hefur ferðaskrifstofan hafnað nema gegn greiðslu sanngjarns kostnaðar.

Í máli ferðaskrifstofunnar segir að umrætt hótel sé vinsælt fjögurra stjörnu hótel á góðum stað með snyrtilega innréttuðum hótelíbúðum. Það sé í miðbæ áfangastaðarins og hafi hópurinn dvalið þar á háannatíma svo hávaði frá öðrum gestum hafi ekki verið óeðlilegur. Þegar hópurinn kvartaði hafi þau samstundis haft samband við umboðsaðila sem sýndi hópnum sjö íbúðir sem voru betri að gæðum og á rólegri stöðum. 

Meðferðis hafði ferðaskrifstofan ljósmyndir teknar af starfsmönnum hótelsins af herbergjunum. Þeim hafi þá verið boðinn flutningur á önnur hótel gegn greiðslu aukagjalds.

„Þá kveður varnaraðili að bætt hafi verið úr ýmsum ágöllum sem sóknaraðilar töldu vera á íbúðum þeirra á meðan á dvöl þeirra stóð auk þess sem aukaþrif hafi verið útveguð. Bendir varnaraðili jafnframt á að samskipti aðila hafi verið erfið.“

Hafnað um bætur

Við yfirferð málsins tekur kærunefndin undir að ljósmyndir hópsins af hótelinu sýni að aðbúnaði hótelíbúðanna hafi verið nokkuð ábótavant. Þeim hafi verið boðinn flutningur og lagði hópurinn ekki fram sönnun á því að þær íbúðir hafi verið lakari gæðum.

Einnig lá fyrir að starfsmennirnir brugðust við kvörtunum hópsins varðandi ýmis atriði tengd aðbúnaði íbúðanna með lagfæringu og frekari þrifum. 

„Með hliðsjón af öllu framangreindu og framlögðum gögnum telur kærunefndin að ekki sé unnt að fallast á kröfu sóknaraðila um afslátt af pakkaferðinni,“ segir í úrskurðinum og var því hópnum hafnað um bætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×