Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 29. október 2026 07:01 Hjá hugbúnaðarfyrirtækjum eins og Gangverk hefur einfaldlega allt breyst: Starfsemin, verkefnin, tækifærin, viðskiptamódelið. Breytingarnar sem orðið með gervigreindinni eru svakalega miklar, hraðar og í raun eins og kapphlaup. Vísir/Anton Brink „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu. Ég ætla bara að segja það alveg eins og er,“ segir Ása Rún Björnsdóttir rekstrarstjóri Gangverks um breytingarnar sem orðið hafa á notkun gervigreindarinnar síðastliðið ár eða svo. Enda er Ása ein þeirra sem segja of mörg íslensk fyrirtæki ekki tilbúin fyrir gervigreind. „Það eru of mörg fyrirtæki ekki að kveikja á því í hvaða spretthlaupi við erum í dag.“ Á meðan fyrirtækin taki sér langan tíma í að móta stefnu sé starfsfólkið þegar farið að nýta sér gervigreindina á eigin vegum. „Og þá er í raun ekkert öryggi,“ segir Ása og útskýrir: Starfsfólk fer þá bara að nota gervigreindina í gegnum sína eigin einkaaðganga og þá er öryggið ekkert.“ Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið um það hversu mörg íslensk fyrirtæki eru ekki tilbúin fyrir gervigreindina. Allt breyttist hjá þeim Það er auðvitað ekki hægt að ræða stöðu annarra fyrirtækja án þess að spyrja fyrst hvort Gangverk sjálft sé búið að aðlaga sína starfsemi að breyttum veruleika, þar með talið viðskiptamódelið. Því eitt af því sem mögulega hræðir íslensk fyrirtæki er sú tilhugsun að gervigreindin geti í raun kollvarpað því viðskiptamódeli sem ríkt hefur í bransanum í áratugi. Svo var til dæmis hjá hugbúnaðarhúsum eins og Gangverki. Því Gangverk er fyrirtæki sem vinnur með viðskiptavinum að stafrænum lausnum, allt frá hönnun vefsíða yfir í tengingar á flóknum kerfum. Gangverk er hugbúnaðarhús sem var stofnað árið 2011. Fyrirtækið vinnur með viðskiptavinum sínum að stafrænum lausnum, allt frá vefsíðum yfir í tengingar flókinna kerfa. Starfsmenn eru í kringum 40 talsins. Lengst af hefur Gangverk unnið fyrir bandarísk stórfyrirtæki. Fyrsta verkefnið var app fyrir útvarpsstöðvar fjölmiðlasamsteypunnar CBS en stærsta verkefnið var unnið fyrir Sotheby's, eitt elsta og stærsta uppboðshús heims. Þar vann Gangverk í um sjö ár að því að stafrænt væða alla ferla uppboðshússins. Þegar mest lét voru 40 til 50 manns frá Gangverki að vinna fyrir Sotheby's og í dag berast um 90 prósent allra boða þar í gegnum netið. Þegar Covid skall á var verkefnið svo langt komið að uppboðin gátu haldið áfram nánast vandræðalaust. Aðrir viðskiptavinir eru til dæmis History Channel, uppboðshúsið Phillips og Lindblad Expeditions, sem skipuleggur leiðangursferðir í samstarfi við National Geographic. Síðustu árin hefur Gangverk þó í auknum mæli unnið fyrir íslensk fyrirtæki. En vindum okkur aftur í samtalið um gervigreindina. Og hvernig hún hefur breytt „öllu“ hjá Gangverki. Þetta gerist svo hratt. Fyrir tæpu ári voru forritararnir aðeins byrjaðir að vinna með gervigreind og fá hana til að hjálpa sér að skrifa kóða. Í dag hugsa ég að það sé enginn í húsinu sem forritar eins og þetta var.“ Í stuttu máli sé starfsfólk að vinna meira með þekkinguna sína og reynslu. Leiði verkefni og hafi yfirumsjón með þeim en láti gervigreindina um handavinnuna, sbr. að forrita. Tímasparnaðurinn sé svakalegur. Enda hægt að vera með mörg verkefni í gangi í einu. „Þú ert með einn erindreka sem prófar, annan sem gerir þetta og þann þriðja sem gerir hitt,“ segir Ása og vísar þar til svokallaðra gervigreindar-erindreka (e. AI agents). Ása segir stóru verkefnin enn til staðar, en þau taki skemmri tíma og séu nú unnin af minni teymum. En hvað með viðskiptamódelið – það hlýtur þá að hafa breyst líka? „Já, við erum ekki að fara aftur í einhver 40 manna verkefni eins og var með Sotheby’s. Og forritunin gengur hraðar og afköstin aukast sem þýðir að við getum gert meira fyrir minni pening en áður var hægt.“ Þetta segir Ása fela í sér ný tækifæri líka. Því þessi þróun hafi opnað á ný verkefni. Oft veigruðu fyrirtæki sér við að ráðast í ákveðin verkefni því þau voru svo umfangsmikil. Þetta er að breytast og mörg fyrirtæki að sjá tækifæri til að leysa úr málum sem þau hafa lengi horft á og eru nú loks orðin hagkvæmari kostnaðarlega.“ Ása bendir á að starfsfólk sé ekki að bíða eftir því að stefna sé mótuð hjá fyrirtækjum. Það vilji nota gervigreindina og geri það þá bara í gegnum sinn eiginn aðgang. Sem getur þýtt mikla öryggishættu fyrir sum fyrirtæki.Vísir/Anton Brink Starfsfólkið bíður ekki En hvers vegna telur Ása of mörg íslensk fyrirtæki ekki tilbúin fyrir gervigreindina? Ása segir nokkur atriði spila þar inn í. Eitt sé ótti. „Eðlilega er pínu hræðsla við það hvað gervigreindin er og getur. Meðal annars með tilliti til persónuverndar og upplýsingaöryggis.“ Þar vilji íslensk fyrirtæki vanda sig. Séu mörg óviss um hvaða leiðir eigi að fara, hvað sé mögulegt, hvað sé best og svo framvegis. Málið sé hins vegar þetta: Starfsfólkið bíður ekki eftir stefnunni. Fyrirtæki vilja vanda sig og taka sér tíma í að móta stefnu og skoða málin. Á sama tíma fer allt á fullt hjá starfsfólki því það er ekkert að bíða, heldur byrjar að nota gervigreindina og prófa sig áfram.“ Starfsfólk sæki sér þá einkaaðgang að Claude eða ChatGPT, láti gervigreindina lesa tölvupóstana sína, vinna viðskiptaáætlanir og fleira. „Þarna er mesta öryggishættan. Því þegar starfsfólk er að vinna á sínum eigin einkaaðgöngum er öryggi fyrirtækisins ekkert.“ Sem dæmi nefnir Ása að það séu allt aðrir skilmálar á fyrirtækjasamningum við gervigreindarkerfi miðað við einkaaðganga: Með fyrirtækjaaðgangi sé það hluti af skilmálum gervigreindarfyrirtækjanna að gögn viðskiptavina séu ekki notuð til þjálfunar. „Fyrirtæki þurfi því að hlaupa hraðar og fara sem fyrst að hugsa út frá því hvernig þau geti búið til eins öruggt umhverfi og hægt er þannig að starfsfólkið geti áfram nýtt gervigreindina í sínum störfum – en á fyrirtækisaðgangi.“ Þá segir Ása tímann ekki vinna með fyrirtækjum. Á meðan eitt fyrirtæki tekur marga mánuði í stefnumótun getur nýr samkeppnisaðili komið inn á markaðinn og náð forskoti á skömmum tíma. Ása segir viðskiptamódel fyrirtækja vissulega geta breyst mikið með tilkomu gervigreindarinnar. Það hafi til dæmis gerst hjá þeim. Á móti komi ný tækifæri og verkefni sem fyrirtæki veigruðu sér áður við að ráðast í vegna þess að þau voru mun dýrari og umfangsmeiri fyrir tíma gervigreindar.Vísir/Anton Brink Þitt að ákveða Ása segir Gangverk búa vel að þeirri reynslu í dag að hafa sjálft þurft að stokka upp sína starfsemi, viðskiptamódel og framtíðarsýn með tilkomu gervigreindarinnar. Allir séu að pæla í þessu – of margir þó miðað við lausnir sem í raun leysa ekki neitt. „Það er algengt að fyrirtæki velti fyrir sér hvernig gervigreindin geti séð um ákveðin verkefni á sama hátt og þau eru að leysa úr þeim í dag. Í staðinn fyrir að nýta gervigreindina til að skoða svolítið málin upp á nýtt,“ segir Ása og bætir við: „Tækifærin felast hins vegar í því að fá gervigreindina til að ná fram umbótum og hagræðingu. Fyrirtæki ættu því að hugsa: Hvaða ferlar eru að skaða okkur mest í dag? Hvernig og hvar getum við gert hlutina betur? Hvernig getum við aukið afköstin og unnið með skynsamari hætti en áður?“ Gott sé að taka skref til baka og hugsa: „Hvernig get ég byrjað frá grunni og endurskrifað það sem ég er að gera?“ Annað sem Ása segir mikilvægt að fólk hafi í huga sé þetta: Ekki láta gervigreindina taka ákvarðanirnar. „Hugbúnaðargeirinn er á allt öðrum stað en flestir aðrir geirar. Því í þessum geira hefur þegar allt breyst með tilkomu gervigreindarinnar. Við erum samt enn að vinna verkefnin því við búum yfir sérfræðiþekkingunni, reynslunni og náum dýptinni sem mannlegir eiginleikar geta náð fram en ekki tæknin,“ segir Ása og bætir við: Allt þetta þýðir að gervigreindin er að hjálpa okkur að vinna hraðar og búa til ný tækifæri. En við eigum ekki að láta hana taka ákvarðanir fyrir okkur.“ Ráð Ásu til fyrirtækja eru að búa til umhverfi þar sem starfsfólkið getur prófað sig áfram og nýtt gervigreindina til að leysa raunveruleg vandamál í sínu starfi. „Veljið tvö til þrjú verkefni, búið til frumgerðir, prófið, mælið, greinið. Ekki ráðast í eitthvað of stórt strax,“ segir Ása og bætir við að oft horfi fólk of stórt á þetta. Miklu skipti samt að vera við stjórnvölinn; mannfólkið er alltaf það sem stjórnar. „Gervigreindin er svo dugleg. Hún er svo viljug til verka. En ef þú veist ekki alveg hvað þú ert að gera geturðu komið þér í ótal vandræði,“ segir Ása og bætir við: „En þetta er pínulítið eins og kapphlaup. Þú vilt ekki dragast aftur úr.“ Gervigreind Tækni Tengdar fréttir Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW. 27. september 2026 08:02 Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst. 21. september 2026 07:03 Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Það sem hljómaði nánast eins og vísindaskáldskapur í fyrra er orðið að daglegum veruleika í dag. Þar sem aðkoma gervigreindarinnar er að aukast í daglegu lífi hjá okkur dag frá degi. 10. september 2026 07:02 Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ „Ég skal alveg viðurkenna að ég hef meiri áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þeim stóru,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi hjá Strategíu, í samtali um gervigreindina. 9. september 2026 07:02 Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02 Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Sjá meira
Enda er Ása ein þeirra sem segja of mörg íslensk fyrirtæki ekki tilbúin fyrir gervigreind. „Það eru of mörg fyrirtæki ekki að kveikja á því í hvaða spretthlaupi við erum í dag.“ Á meðan fyrirtækin taki sér langan tíma í að móta stefnu sé starfsfólkið þegar farið að nýta sér gervigreindina á eigin vegum. „Og þá er í raun ekkert öryggi,“ segir Ása og útskýrir: Starfsfólk fer þá bara að nota gervigreindina í gegnum sína eigin einkaaðganga og þá er öryggið ekkert.“ Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið um það hversu mörg íslensk fyrirtæki eru ekki tilbúin fyrir gervigreindina. Allt breyttist hjá þeim Það er auðvitað ekki hægt að ræða stöðu annarra fyrirtækja án þess að spyrja fyrst hvort Gangverk sjálft sé búið að aðlaga sína starfsemi að breyttum veruleika, þar með talið viðskiptamódelið. Því eitt af því sem mögulega hræðir íslensk fyrirtæki er sú tilhugsun að gervigreindin geti í raun kollvarpað því viðskiptamódeli sem ríkt hefur í bransanum í áratugi. Svo var til dæmis hjá hugbúnaðarhúsum eins og Gangverki. Því Gangverk er fyrirtæki sem vinnur með viðskiptavinum að stafrænum lausnum, allt frá hönnun vefsíða yfir í tengingar á flóknum kerfum. Gangverk er hugbúnaðarhús sem var stofnað árið 2011. Fyrirtækið vinnur með viðskiptavinum sínum að stafrænum lausnum, allt frá vefsíðum yfir í tengingar flókinna kerfa. Starfsmenn eru í kringum 40 talsins. Lengst af hefur Gangverk unnið fyrir bandarísk stórfyrirtæki. Fyrsta verkefnið var app fyrir útvarpsstöðvar fjölmiðlasamsteypunnar CBS en stærsta verkefnið var unnið fyrir Sotheby's, eitt elsta og stærsta uppboðshús heims. Þar vann Gangverk í um sjö ár að því að stafrænt væða alla ferla uppboðshússins. Þegar mest lét voru 40 til 50 manns frá Gangverki að vinna fyrir Sotheby's og í dag berast um 90 prósent allra boða þar í gegnum netið. Þegar Covid skall á var verkefnið svo langt komið að uppboðin gátu haldið áfram nánast vandræðalaust. Aðrir viðskiptavinir eru til dæmis History Channel, uppboðshúsið Phillips og Lindblad Expeditions, sem skipuleggur leiðangursferðir í samstarfi við National Geographic. Síðustu árin hefur Gangverk þó í auknum mæli unnið fyrir íslensk fyrirtæki. En vindum okkur aftur í samtalið um gervigreindina. Og hvernig hún hefur breytt „öllu“ hjá Gangverki. Þetta gerist svo hratt. Fyrir tæpu ári voru forritararnir aðeins byrjaðir að vinna með gervigreind og fá hana til að hjálpa sér að skrifa kóða. Í dag hugsa ég að það sé enginn í húsinu sem forritar eins og þetta var.“ Í stuttu máli sé starfsfólk að vinna meira með þekkinguna sína og reynslu. Leiði verkefni og hafi yfirumsjón með þeim en láti gervigreindina um handavinnuna, sbr. að forrita. Tímasparnaðurinn sé svakalegur. Enda hægt að vera með mörg verkefni í gangi í einu. „Þú ert með einn erindreka sem prófar, annan sem gerir þetta og þann þriðja sem gerir hitt,“ segir Ása og vísar þar til svokallaðra gervigreindar-erindreka (e. AI agents). Ása segir stóru verkefnin enn til staðar, en þau taki skemmri tíma og séu nú unnin af minni teymum. En hvað með viðskiptamódelið – það hlýtur þá að hafa breyst líka? „Já, við erum ekki að fara aftur í einhver 40 manna verkefni eins og var með Sotheby’s. Og forritunin gengur hraðar og afköstin aukast sem þýðir að við getum gert meira fyrir minni pening en áður var hægt.“ Þetta segir Ása fela í sér ný tækifæri líka. Því þessi þróun hafi opnað á ný verkefni. Oft veigruðu fyrirtæki sér við að ráðast í ákveðin verkefni því þau voru svo umfangsmikil. Þetta er að breytast og mörg fyrirtæki að sjá tækifæri til að leysa úr málum sem þau hafa lengi horft á og eru nú loks orðin hagkvæmari kostnaðarlega.“ Ása bendir á að starfsfólk sé ekki að bíða eftir því að stefna sé mótuð hjá fyrirtækjum. Það vilji nota gervigreindina og geri það þá bara í gegnum sinn eiginn aðgang. Sem getur þýtt mikla öryggishættu fyrir sum fyrirtæki.Vísir/Anton Brink Starfsfólkið bíður ekki En hvers vegna telur Ása of mörg íslensk fyrirtæki ekki tilbúin fyrir gervigreindina? Ása segir nokkur atriði spila þar inn í. Eitt sé ótti. „Eðlilega er pínu hræðsla við það hvað gervigreindin er og getur. Meðal annars með tilliti til persónuverndar og upplýsingaöryggis.“ Þar vilji íslensk fyrirtæki vanda sig. Séu mörg óviss um hvaða leiðir eigi að fara, hvað sé mögulegt, hvað sé best og svo framvegis. Málið sé hins vegar þetta: Starfsfólkið bíður ekki eftir stefnunni. Fyrirtæki vilja vanda sig og taka sér tíma í að móta stefnu og skoða málin. Á sama tíma fer allt á fullt hjá starfsfólki því það er ekkert að bíða, heldur byrjar að nota gervigreindina og prófa sig áfram.“ Starfsfólk sæki sér þá einkaaðgang að Claude eða ChatGPT, láti gervigreindina lesa tölvupóstana sína, vinna viðskiptaáætlanir og fleira. „Þarna er mesta öryggishættan. Því þegar starfsfólk er að vinna á sínum eigin einkaaðgöngum er öryggi fyrirtækisins ekkert.“ Sem dæmi nefnir Ása að það séu allt aðrir skilmálar á fyrirtækjasamningum við gervigreindarkerfi miðað við einkaaðganga: Með fyrirtækjaaðgangi sé það hluti af skilmálum gervigreindarfyrirtækjanna að gögn viðskiptavina séu ekki notuð til þjálfunar. „Fyrirtæki þurfi því að hlaupa hraðar og fara sem fyrst að hugsa út frá því hvernig þau geti búið til eins öruggt umhverfi og hægt er þannig að starfsfólkið geti áfram nýtt gervigreindina í sínum störfum – en á fyrirtækisaðgangi.“ Þá segir Ása tímann ekki vinna með fyrirtækjum. Á meðan eitt fyrirtæki tekur marga mánuði í stefnumótun getur nýr samkeppnisaðili komið inn á markaðinn og náð forskoti á skömmum tíma. Ása segir viðskiptamódel fyrirtækja vissulega geta breyst mikið með tilkomu gervigreindarinnar. Það hafi til dæmis gerst hjá þeim. Á móti komi ný tækifæri og verkefni sem fyrirtæki veigruðu sér áður við að ráðast í vegna þess að þau voru mun dýrari og umfangsmeiri fyrir tíma gervigreindar.Vísir/Anton Brink Þitt að ákveða Ása segir Gangverk búa vel að þeirri reynslu í dag að hafa sjálft þurft að stokka upp sína starfsemi, viðskiptamódel og framtíðarsýn með tilkomu gervigreindarinnar. Allir séu að pæla í þessu – of margir þó miðað við lausnir sem í raun leysa ekki neitt. „Það er algengt að fyrirtæki velti fyrir sér hvernig gervigreindin geti séð um ákveðin verkefni á sama hátt og þau eru að leysa úr þeim í dag. Í staðinn fyrir að nýta gervigreindina til að skoða svolítið málin upp á nýtt,“ segir Ása og bætir við: „Tækifærin felast hins vegar í því að fá gervigreindina til að ná fram umbótum og hagræðingu. Fyrirtæki ættu því að hugsa: Hvaða ferlar eru að skaða okkur mest í dag? Hvernig og hvar getum við gert hlutina betur? Hvernig getum við aukið afköstin og unnið með skynsamari hætti en áður?“ Gott sé að taka skref til baka og hugsa: „Hvernig get ég byrjað frá grunni og endurskrifað það sem ég er að gera?“ Annað sem Ása segir mikilvægt að fólk hafi í huga sé þetta: Ekki láta gervigreindina taka ákvarðanirnar. „Hugbúnaðargeirinn er á allt öðrum stað en flestir aðrir geirar. Því í þessum geira hefur þegar allt breyst með tilkomu gervigreindarinnar. Við erum samt enn að vinna verkefnin því við búum yfir sérfræðiþekkingunni, reynslunni og náum dýptinni sem mannlegir eiginleikar geta náð fram en ekki tæknin,“ segir Ása og bætir við: Allt þetta þýðir að gervigreindin er að hjálpa okkur að vinna hraðar og búa til ný tækifæri. En við eigum ekki að láta hana taka ákvarðanir fyrir okkur.“ Ráð Ásu til fyrirtækja eru að búa til umhverfi þar sem starfsfólkið getur prófað sig áfram og nýtt gervigreindina til að leysa raunveruleg vandamál í sínu starfi. „Veljið tvö til þrjú verkefni, búið til frumgerðir, prófið, mælið, greinið. Ekki ráðast í eitthvað of stórt strax,“ segir Ása og bætir við að oft horfi fólk of stórt á þetta. Miklu skipti samt að vera við stjórnvölinn; mannfólkið er alltaf það sem stjórnar. „Gervigreindin er svo dugleg. Hún er svo viljug til verka. En ef þú veist ekki alveg hvað þú ert að gera geturðu komið þér í ótal vandræði,“ segir Ása og bætir við: „En þetta er pínulítið eins og kapphlaup. Þú vilt ekki dragast aftur úr.“
Lengst af hefur Gangverk unnið fyrir bandarísk stórfyrirtæki. Fyrsta verkefnið var app fyrir útvarpsstöðvar fjölmiðlasamsteypunnar CBS en stærsta verkefnið var unnið fyrir Sotheby's, eitt elsta og stærsta uppboðshús heims. Þar vann Gangverk í um sjö ár að því að stafrænt væða alla ferla uppboðshússins. Þegar mest lét voru 40 til 50 manns frá Gangverki að vinna fyrir Sotheby's og í dag berast um 90 prósent allra boða þar í gegnum netið. Þegar Covid skall á var verkefnið svo langt komið að uppboðin gátu haldið áfram nánast vandræðalaust. Aðrir viðskiptavinir eru til dæmis History Channel, uppboðshúsið Phillips og Lindblad Expeditions, sem skipuleggur leiðangursferðir í samstarfi við National Geographic. Síðustu árin hefur Gangverk þó í auknum mæli unnið fyrir íslensk fyrirtæki.
Gervigreind Tækni Tengdar fréttir Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW. 27. september 2026 08:02 Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst. 21. september 2026 07:03 Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Það sem hljómaði nánast eins og vísindaskáldskapur í fyrra er orðið að daglegum veruleika í dag. Þar sem aðkoma gervigreindarinnar er að aukast í daglegu lífi hjá okkur dag frá degi. 10. september 2026 07:02 Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ „Ég skal alveg viðurkenna að ég hef meiri áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þeim stóru,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi hjá Strategíu, í samtali um gervigreindina. 9. september 2026 07:02 Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02 Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW. 27. september 2026 08:02
Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst. 21. september 2026 07:03
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Það sem hljómaði nánast eins og vísindaskáldskapur í fyrra er orðið að daglegum veruleika í dag. Þar sem aðkoma gervigreindarinnar er að aukast í daglegu lífi hjá okkur dag frá degi. 10. september 2026 07:02
Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ „Ég skal alveg viðurkenna að ég hef meiri áhyggjur af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þeim stóru,“ segir Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi hjá Strategíu, í samtali um gervigreindina. 9. september 2026 07:02
Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02