Viðskipti erlent

Út­lit fyrir lökustu vín­fram­leiðslu í tæp sjö­tíu ár

Kjartan Kjartansson skrifar
Verkamaður hellir Chardonnay-vínþrúgum í kassa í Hautvillers í Champagne-héraði um miðjan ágúst. Uppskera hefur aldrei hafist svo snemma þar eins og í ár.
Verkamaður hellir Chardonnay-vínþrúgum í kassa í Hautvillers í Champagne-héraði um miðjan ágúst. Uppskera hefur aldrei hafist svo snemma þar eins og í ár. AP/Aurelien Morissard

Þurrkur og ítrekaðar hitabylgjur í sumar hafa leitt til einhverrar verstu vínuppskeru í Frakklandi í áratugi. Einna verst er ástandið í Champagne-héraði þar sem útlit er fyrir að framleiðsla á kampavíni dragist saman um helming á milli ára.

Spáð er að franskir vínbændir framleiði um 3,4 milljarða lítra af víni í ár. Það væri slakasta uppskera þeirra frá 1957, að því er kemur fram í umfjöllun evrópska blaðsins Politico.

Tölfræðistofnun franska landbúnaðarráðuneytisins segir að jarðvegur um allt land hafi skrælnað í sumarhitanum. Hitabylgjur af skemmt uppskeru á mörgum vínekrum.

Uppskerutímabilið hefur aldrei áður hafist jafnsnemma í Champagne-héraði, sem kampavín er kennt við, og í ár. Bændur þar byrjuðu að tína ber í ágúst til þess að forðast að sigurmagn verði of mikið í þeim.

Hitaöfgarnar í sumar hafa einnig komið illa niður á maísuppskeru í Frakklandi og víðar í Evrópu í sumar. Umhverfisráðherra Frakklands áætlaði að sumarhitinn hefði valdið tíu til fimmtán milljarða evra tjóni. Stjórnvöld kynntu aðgerðapakka að andvirði eins milljarðs evra til þess að styrkja bændur fyrir helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×