Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2026 14:14 Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir skuldabréfamarkaðinn verðleggja meiri verðbólgu á næsta ári eftir framlagningu fjárlagafrumvarpsins. Vísir/Ívar Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar.
Skuldabréfamarkaðurinn brást við fjárlagafrumvarpinu í morgun með hækkun verðbólguálags, einkum í bréfum með styttri líftíma. Verðbólguálagið er munurinn á ávöxtun óverðtryggðra og verðtryggðra skuldabréfa og gefur vísbendingu um hversu mikilli verðbólgu fjárfestar búast við. „Við getum klárlega lesið þessa hreyfingu á skuldabréfamarkaði sem viðbrögð við fjárlagafrumvarpinu,“ segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Hann segir erfiðara að greina skýr viðbrögð á hlutabréfamarkaði. Skilaboðin frá skuldabréfamarkaðnum séu hins vegar greinileg. „Verðbólguálagið hafði lækkað eftir vaxtaákvörðun Seðlabankans en hreyfingin er í hina áttina núna.“ Gjaldahækkanir mælast strax Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir fimm milljarða króna afgangi. Aðhald á útgjaldahliðinni nemur 44 milljörðum króna og nýjar tekjuráðstafanir 22,6 milljörðum. Krónutölugjöld ríkisins eiga almennt að hækka um 5,2 prósent og kílómetragjaldið enn meira, eða 16%. Jón Bjarki segir gjaldahækkanirnar koma beint inn í verðbólgumælinguna í janúar. Þær hafi því áhrif til hækkunar á verðbólgu til skemmri tíma, þótt aðhaldið í fjárlögunum geti dregið úr henni síðar. „Þetta eru vonbrigði eftir allt talið um að ríkið ætli að leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og styðja við endurskoðun kjarasamninga. Maður hefði haldið að ríkisstjórnin hefði lært af gjaldahækkununum um síðustu áramót, sem ýttu undir verðbólgu.“ Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru nú til endurskoðunar eftir að verðbólga fór yfir forsendur þeirra. Jón Bjarki segir 5,2 prósenta hækkun gjalda ekki hjálpa til við þá vinnu. „Þetta er ekki það sem Seðlabankinn hefur kallað eftir. Verðtrygging er mjög útbreidd í gjaldskrám hins opinbera og viðheldur verðbólgunni.“ Hann segir hækkunina jafnframt senda óheppileg skilaboð til fyrirtækja sem eru hvött til að halda aftur af verðhækkunum. Aðhaldið kælir hagkerfið síðar Jón Bjarki tekur þó fram að markmiðið um hallalaus fjárlög sé verðugt. Meira aðhald dragi úr eftirspurn og kæli hagkerfið þegar fram í sækir. Áhrifin til lækkunar verðbólgu hefðu þó verið skýrari til skemmri tíma ef aðhaldið hefði í meira mæli falist í lægri útgjöldum en síður í hækkun gjalda. Minni eftirspurn geti síðar hert samkeppni fyrirtækja um viðskipti almennings og dregið úr verðhækkunum. Kólnun á fasteigna- og vinnumarkaði og minna launaskrið geti einnig hjálpað til. Mestu skipti þó að endurskoðun kjarasamninga leiði ekki til viðbótarhækkana launa. „Það heyrist á verkalýðsleiðtogum að þessar gjaldahækkanir hafi ekki hjálpað til. Ég held að það sé töluvert til í því.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Íslandsbanki Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Sjá meira