Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Full­yrðingar um ETS-kerfi og strand­siglingar standast ekki

Innanlandsflug hefur fallið undir evrópskt kerfi með losunarheimildir frá upphafi þvert á það sem starfshópur innviðaráðuneytis um strandsiglingar fullyrti. Ekki er heldur nein heimild til þess að fella niður skuldbindingar vegna kerfisins á strandsiglingar eins og ráðherra hefur boðað.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent
Fréttamynd

Ný nefnd hefur náðað þrjá

Frá því ný náðunarnefnd tók til starfa í nóvember hafa þrír verið náðaðir. Allir voru náðaðir á grundvelli heilsufars en nefndin hefur hafnað 24 beiðnum.

Innlent
Fréttamynd

Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur samþykkt að leggja fram frumvarp þess efnis að laun kjörinna fulltrúa og embættismanna hækki um 3,5 prósent nú í júlí. Sú hækkun kemur í stað fyrirhugaðrar 9,7 prósenta launahækkunar.

Innlent
Fréttamynd

Vönduð niður­staða Feneyjanefndarinnar

Þegar tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið kom til umræðu á Alþingi kom fram hugmynd frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um að óska eftir áliti Feneyjanefndar Evrópuráðsins á tillögunni.

Skoðun
Fréttamynd

Leggur til laga­breytingar vegna smæðar þjóðarinnar

Alma Möller heilbrigðisráðherra hyggst ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjógvun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Meðal áforma er að koma í veg fyrir of náinn skyldleika vegna smæðar þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Lægri húsnæðis­vextir með evru (stað­fest)

Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lensk orka er svarið við olíukrísunni

Hækkanir og sveiflur á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna innrásar Bandaríkjanna í Íran og lokunar Hormússunds minna okkur á að orkuskiptin eru ekki aðeins umhverfis- og loftslagsmál heldur líka grjóthart efnahagsmál.

Skoðun
Fréttamynd

Dyflinarreglugerðin ekki af­numin þótt orða­lag breytist

Dómsmálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi til breytingar á útlendingalögum og lögreglulögum sem felur meðal annars í sér styttri kærufresti fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og skýrari stjórn á landamærunum. Formaður Miðflokksins segir frumvarpið fela í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar og aðlögun að Evrópusambandinu á einu erfiðasta sviðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Alma Möller fagnar nýjum sótt­varna­lögum

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 og hefur síðan verði lagt fjórum sinnum fyrir þingið. 

Innlent
Fréttamynd

Sig­ríður Björk aftur færð til

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi Ríkislögreglustjóri, hefur þegar látið af störfum í dómsmálaráðuneytinu en hún varð sérfræðingur þar á bæ eftir að hafa sagt af sér embætti Ríkislögreglustjóra í nóvember. Hún er nú sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Þór­dís Kol­brún skipuð sendi­herra í London

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi.

Innlent
Fréttamynd

Nánast hreint kókaín í um­ferð en ekkert fentanyl

Adam Erik Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi, hefur í tvö ár rannsakað magn ópíóíða, ketamíns og annarra vímuefna í fráveitu með það að markmiði að tryggja rétt viðbragð og auka forvarnir. Nýjustu niðurstöður sýna að kókaín í umferð sé nánast hreint og að töluvert magn sé af oxycontin í umferð. Hann segir þó jákvætt að ekkert fentanýl finnist í fráveitu eða annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Inga sendir boltann á sveitar­fé­lögin

„Eins vil ég ítreka að það er gildandi samningur og ég kann því afar illa við fyrirsögn um að ég sé of upptekin að funda. Það er bara ótrúlega skrítið. Sér í lagi þegar við erum með gildandi samning.“

Innlent
Fréttamynd

„Aðild að Evrópu­sam­bandinu myndi skapa stöðug­leika“

Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Mörg dæmi um að tekið sé sér­stakt til­lit til umsóknarríkja

Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópu­sam­bandið“

Formaður Miðflokksins segir stjórnarliða annað hvort viljandi eða óviljandi hafa sagt þinginu og þjóðinni ósatt varðandi eðli þeirra viðræðna við Evrópusambandið, sem kosið verður um í ágúst. Þingmaður Viðreisnar vísar því á bug og segir ekki hægt að plata þjóðina inn í ESB.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ó­satt, ó­satt með öllu“

Barna- og menntamálaráðherra segir það rangt að formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) hafi fyrst heyrt af fyrirhuguðum breytingum hennar á námsmatskerfi grunnskóla á þingi KÍ í gær. Þær fyrirætlanir að hverfa frá notkun bókstafa við námsmat hafa reynst umdeildar meðal kennara.

Innlent
Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á ein­kunna­gjöf

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá.

Innlent
Fréttamynd

Hvað sagði konan?

Inga Sæland hélt ræðu á þingi Kennarasambands Íslands í gær sem skildi salinn eftir í nokkru uppnámi.

Skoðun