Sport

„Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir voru laufléttir í bragði áður en keppnin hófst í Sundhöllinni.
Strákarnir voru laufléttir í bragði áður en keppnin hófst í Sundhöllinni. Sýn Sport

Annar þeirra hefur aldrei lokið sundprófi en hinn er vægast sagt mjög tengdur sundheiminum. Það bjuggust sjálfsagt fáir við spennandi keppni þegar þeir Andri Már Eggertsson og Tómas Steindórsson kepptu í bringusundi á Extraleikunum í Körfuboltakvöldi Extra á Sýn Sport Ísland.

Fyrir keppnina kvartaði Andri talsvert yfir dýpt laugarinnar en keppt var í Sundhöll Reykjavíkur. Þá var hann ekki með sín vanalegu sundgleraugu, með sjónstyrk, heldur bara venjuleg sundgleraugu.

Andstæðingurinn, Tómas, gat því verið ansi kokhraustur og býr þar að auki að því að maki hans er sjálf Hrafnhildur Lúthersdóttir, tvöfaldur silfurverðlaunahafi á EM sem náði 6. sæti í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Ríó fyrir tíu árum.

„Ég er mjög tengdur sundheiminum núna. Konan mín hefur farið tvisvar á Ólympíuleikana og vinnur fyrir Sundsamband Íslands. En bakgrunnurinn er ekkert meiri en hjá öðrum sem fóru í grunnskóla,“ sagði Tómas og kvaðst hafa sleppt því að leita sérstaklega ráða hjá Hrafnhildi.

Andri fór ekki leynt með það að sinn grunnur mætti vera betri:

„Ég hef aldrei lokið sundprófi og á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi,“ sagði Andri en þá var keppnin hins vegar ekki hafin. Hana má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Extraleikarnir - Skrautleg keppni í bringusundi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×