Körfubolti

„Ég hefði frekar kýlt hana í and­litið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Ben Jónsdóttir missti stjórn á skapi sínu eftir orðaskipti við Stjörnukonuna Evu Wium.
María Ben Jónsdóttir missti stjórn á skapi sínu eftir orðaskipti við Stjörnukonuna Evu Wium. Sýn Sport

Keflvíkingurinn María Ben Jónsdóttir missti stjórn á skapi sínu eftir orðaskipti við Stjörnukonuna Evu Wium í leik Keflavíkur og Stjörnunnar í síðustu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Körfuboltakvöld skoðaði atvikið betur.

María snöggreiddist eftir eitthvað sem Eva sagði við hana og hrinti Evu hraustlega beint fyrir framan dómarann. Ólöf Helga Pálsdóttir og sérfræðingar hennar í Körfuboltakvöldi gátu ekki annað en hlegið að atvikinu alveg eins og María sjálf gerði þegar hún gekk af velli.

„Þetta var svakalegt. Hún veit upp á sig sökina og svo hlær hún bara,“ sagði Ólöf Helga.

„Eva er líka góður leikari,“ sagði Ólöf.

Klippa: Körfuboltakvöld: Hrinti mótherja fyrir framan dómarann

„Eva lítur út eins og hún hafi orðið fyrir rútu og kastar sér aftur á bak,“ sagði Hallveig Jónsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds.

„María er náttúrulega ekkert eðlilega sterk,“ sagði Ingibjörg Jakobsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds.

„Ég vil líka nefna það að María átti góðan leik í gær,“ sagði Ólöf og sérfræðingarnir tóku undir það.

„Stelpur, við erum búnar að heyra hvað var sagt sem olli þessu en ég held að við megum ekki nefna þetta í sjónvarpi,“ sagði Ólöf. Hefði Hallveig brugðist eins við?

„Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið,“ sagði Hallveig. „Ég hefði allavega tekið einn góðan ollara [olnbogaskot] á næsta skríni,“ sagði Ingibjörg.

„Ef þetta er satt sem fór þarna á milli þeirra þá finnst mér þetta bara líka ógeðslega lélegt af Evu eins og mér finnst hún frábær leikmaður. Hún er orðin ofboðslega flottur leiðtogi og stelpur eru farnar að líta upp til hennar. Hún er líka farin að taka landsliðssæti og þá þarf hún líka að spá aðeins í það sem hún segir og hvernig hún hagar sér,“ sagði Ingibjörg. Hallveig vildi ekki gera eins mikið úr þessu.

„Mér finnst þetta bara svo lítið mál. Þetta er einhver lítil hrinding og einhver að kalla einhverja eitthvað ljótt. Mér finnst þetta bara pínu gaman,“ sagði Hallveig en það má sjá hrindinguna og umræðuna hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×