Körfubolti

Hætti við Lakers sökum hroka Kobe

Valur Páll Eiríksson skrifar
Garnett valdi milli Phoenix Suns, Los Angeles Lakers og Boston Celtics. Hann valdi síðastnefnda liðið og vann Lakers í úrslitum vorið eftir.
Garnett valdi milli Phoenix Suns, Los Angeles Lakers og Boston Celtics. Hann valdi síðastnefnda liðið og vann Lakers í úrslitum vorið eftir. Samsett/EPA

Kevin Garnett greindi nýverið frá því í hlaðvarpsviðtali að nokkrir kostir hafi verið í stöðunni þegar hann samdi við Boston Celtics árið 2007. Þar á meðal Los Angeles Lakers.

Garnett yfirgaf Minnesota Timberwolves árið 2007 en hafði þá verið leikmaður liðsins allan sinn áratug í NBA-deildinni. Hann vildi prófa eitthvað nýtt og keppa um titla.

Hann valdi frekar að fara til Boston til að spila með Ray Allen og Paul Pierce heldur en að fara til Los Angeles Lakers og vera hluti af liði Kobe Bryant þar á bæ.

„Ég hafði spilað með Paul (Pierce) áður og ég hafði spilað með Ray (Allen), en ekki opinberlega. Ray er frá Suður-Karólínu, þannig að ég þekkti hann. Þannig að mér líkaði það,“ segir Garnett.

„Mér leist betur á hugmyndina en hina kostina sem ég hafði. Ég held að ég hafi átt möguleika hjá Phoenix (Suns). Ég átti möguleika hjá (Los Angeles) Lakers. En ég náði ekki í Kobe í síma. Hann var alveg rosalega hrokafullur. Þannig að ég hugsaði bara: ‚Veistu hvað? Ég ætla bara að [fara til] þeirra.‘ Og þannig endaði ég í Boston. Það var fullkomið.“

Bryant og Garnett háðu ýmsa baráttuna.EPA

Garnett vann sinn eina NBA-meistaratitil á fyrsta ári sínu með þeim grænklæddu. Celtic urðu meistarar eftir sigur á Lakers í úrslitaeinvíginu um titilinn.

Lakers urðu svo meistarar árið eftir, vorið 2009, og vörðu titilinn árið 2010 þar sem liðið náði hefndum með sigri á Celtics í úrslitum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×