Körfubolti

„Vonandi ekki okkar ein­kennis­merki“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Adam Ramstedt var öflugur hjá KR í kvöld.
Adam Ramstedt var öflugur hjá KR í kvöld. Vísir/Anton Brink

„Þetta er góð tilfinning. Við erum að vinna þriðja leikinn í röð svo við erum að ná smá skriðþunga núna. Auðvitað var þetta ekki fullkomið, það eru hlutir sem við þurfum að vinna í en við getum ekki verið annað en ánægðir með 30+ stiga sigur,“ segir Svíinn Adam Ramstedt eftir 108-74 sigur KR gegn Ármanni í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld.

Ramstedt hefur komið sterkur inn í lið KR og hjó nærri tvöfaldri tvennu í kvöld. KR-ingar byrjuðu leik kvöldsins hins vegar illa, líkt og þeir hafa gert alla leiki í deildinni til þessa.

„Fram að hálfleik var þetta mikil vinna. Fyrsti fjórðungurinn var ekki fallegur, eins og það hefur verið í öðrum leikjum hingað til. Við höfum verið að fara hægt af stað en þegar við komumst af stað finnum við hraðann og finnum út úr hlutunum,“

„Mér líkar vel við það sem ég sé hjá okkur hingað til. Sama hvort við erum undir eða tíu yfir erum við lið sem mun halda vinnunni áfram allan leikinn,“ segir Ramstedt en KR sneri leiknum rækilega við í öðrum leikhluta og lagði þar grunninn að stórsigri kvöldsins.

En hvers vegna byrja KR-ingar svona illa trekk í trekk?

„Það er frábær spurning,“ segir Adam og hlær.

„Ef ég ætti svarið myndi ég laga það strax. En við erum bara rétt að byrja, tímabilið er rétt að byrja og það er kjarni hér sem hefur verið í liðinu lengi en við nýju gæjarnir erum að finna út úr hlutunum. Vonandi verður þetta ekki okkar einkennismerki á tímabilinu. Það eru bara þrír leikir búnir og úrslitin eru alltaf mikilvægi hluturinn og við getum tekið helling af jákvæðum hlutum út úr þessu hingað til,“ segir Ramstedt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×