Fótbolti

Belgarnir láta Elísa­betu fara

Sindri Sverrisson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir tók við Belgíu snemma árs 2025.
Elísabet Gunnarsdóttir tók við Belgíu snemma árs 2025. Getty/Mateusz Slodkowski

Belgíska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Elísabetu Gunnarsdóttur sem verið hefur þjálfari kvennalandsliðs Belgíu í tæp tvö ár.

Samningur Elísabetar við belgíska sambandið átti að gilda fram yfir næsta heimsmeistaramót, í Brasilíu 2027, en tap í vítaspyrnukeppni gegn Póllandi fyrr í þessum mánuði gerði út um HM-drauminn.

Elísabet tók við Belgíu í byrjun árs 2025 og stýrði liðinu á Evrópumótinu í Sviss í fyrra þar sem liðið vann sigur gegn Portúgal en féll út í riðlakeppninni.

Liðið féll svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar eftir afar naumt tap í umspili gegn Írlandi, endaði fyrir neðan Skotland í undankeppni HM í sumar, á einu marki, og tapaði svo umspilinu gegn Póllandi eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.

„Við viljum þakka Elísabetu fyrir framlag hennar til Red Flames,“ segir Pierre Locht, íþróttastjóri hjá belgíska knattspyrnusambandinu, en kvennalandsliðið er kallað „Red Flames“ eða „Rauðu logarnir“. Locht segir að nú muni Simon Mignolet, „tæknistjóri“ sambandsins, finna arftaka.

„Þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki staðið undir væntingum hefur Elísabet miðlað til okkar mikilli sérþekkingu á sviði kvennaknattspyrnu og henni tókst að mynda samheldinn hóp með mörgum ungum leikmönnum sem við getum byggt á til framtíðar.

Það er á þeim grunni sem við viljum búa okkur undir næstu áskoranir kvennalandsliðsins okkar.

Simon Mignolet, tæknistjóri okkar, vinnur að leit að nýjum þjálfara og að því að setja saman nýtt þjálfarateymi. Sú vinna er hluti af víðtækari umræðu um skipulag og framtíð kvennaknattspyrnu innan KBVB,“ segir Locht samkvæmt belgíska miðlinum Sporza.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×