Fótbolti

„Það er aug­ljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Declan Rice sést hér með Harry Kane í leikslok en liðin sættust á jafntefli eftir hörku leik.
Declan Rice sést hér með Harry Kane í leikslok en liðin sættust á jafntefli eftir hörku leik. AP/Martin Meissner

Declan Rice skoraði jöfnunarmark Arsenal í 2-2 jafnteflinu við Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld en eftir leik hrósaði hann kollega sínum í enska landsliðinu.

Harry Kane skoraði bæði mark og gaf stoðsendingu í leiknum en Rice sá til þess að Englandsmeistarar Arsenal færu í burtu með stig.

Harry Kane kláraði viðtalið sitt rétt á undan Rice og miðjumaður Arsenal byrjaði sitt viðtal á því að lofa Kane.

„Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or. Tölfræðin talar sínu máli og árið sem hann hefur átt hefur verið stórkostlegt. Þegar maður spilar með honum áttar maður sig á því hversu góður hann er og þegar maður spilar á móti honum sér maður hversu erfiður hann er viðureignar,“ sagði Declan Rice.

„Hann er ótrúlegur, svo góður leikmaður, og ég er heppinn að fá að spila með honum en ekki jafnheppinn að þurfa að spila á móti honum,“ sagði Rice.

Rice stal samt fyrirsögnunum með mikilvægu marki undir lokin.

„Þegar maður spilar gegn liðum sem dekka mann á mann um allan völl þarf maður að fylgja ákveðnum grundvallarreglum. Þeir elta mann um allan völl en ég losnaði við manninn minn, hélt bara áfram að hlaupa, losnaði við þann sem elti mig og þá var ég kominn í færi. Ég er svo ánægður. Gyökeres hefur haft svo góð áhrif þegar hann kemur inn af bekknum. Hann tók frábær hlaup í kvöld og lagði upp markið fyrir mig,“ sagði Rice en Svíinn lagði upp markið.

Leikurinn var bráðfjörugur og bæði lið óhrædd við að sækja.

„Þetta er það sem stjórinn hefur innprentað í okkur. Við ætluðum ekki bara að koma hingað og liggja til baka. Á heimavelli eru þeir sennilega eitt besta lið Evrópu, svo það var virkilega gott að koma hingað í kvöld og standa okkur svona vel. Við verðum að halda áfram,“ sagði Rice.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×