Sport

Sturlaðar og geggjaðar mót­tökur og freyðivínsglasið af­hent

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anna hljóp 26 hringi.
Anna hljóp 26 hringi. Sportmyndir/Bjarki Már

„Mér líður mjög vel en auðvitað er ég mjög þreytt,“ segir bakgarðshlauparinn Anna Margrét Arthúrsdóttir, sem lauk áðan keppni í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk.

Hún sló persónulegt met og hljóp 26 hringi eða 174,2 kílómetra.

„Ég hélt ég væri búin rétt fyrir 24. hring. Ég ætlaði bara að hlaupa 24 hringi og það var markmiðið. Ég er mjög sátt.“

Tekið var á móti Önnu eftir 26 hringi með freyðivíni og henni mikið fagnað.

„Þessar móttökur voru sturlaðar, bara geggjaðar. Aðstoðarfólkið mitt stendur upp úr eftir helgina. Þær eru búnar að vera frábærar og síðan var æðislegt að spjalla við alla í brautinni og það var ótrúlega góður andi,“ sagði Anna í samtali við Garp I. Elísabetarson og fékk síðan afhent freyðivínsglas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×