Sport

Littler hótar að hætta að keppa í Hollandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Luke Littler á móti fyrr á þessu ári.
Luke Littler á móti fyrr á þessu ári. Vísir/Peter Byrne/PA Images via Getty Images

Luke Littler er orðinn langþreyttur á framkomu áhorfenda í Hollandi og segir að hann muni hugsanlega hætta að taka þátt í mótum þar verði baulið og flautið ekki úr sögunni.

BBC greinir frá.  Heimsmeistarinn þurfti að þola óvægnar móttökur á World Series of Darts Finals í Amsterdam um helgina. Dómarinn stöðvaði meðal annars leik Littler gegn Nathan Aspinall í átta liða úrslitum og bað áhorfendur að hætta ólátunum.

Littler hafði einnig verið baulað á í leiknum gegn heimamanninum Danny Noppert deginum áður.

Hinn 19 ára Englendingur hefur áður lent í svipuðum aðstæðum í Þýskalandi og hefur af þeim sökum hætt að taka þátt í mótum þar. Aðspurður hvort hann væri tilbúinn að gera slíkt hið sama í Hollandi svaraði hann einfaldlega: „100 prósent.“

Littler segir enga ástæðu til að leggja á sig ferðalög og keppni ef hann eigi von á því að vera baulað á.

„Ef Hollendingarnir halda þessu áfram þá ætla ég ekki að fara á nein Euro Tour-mót þar. Það er bara enginn tilgangur með því að ferðast og eyða tíma mínum í þetta á meðan verið er að baula á mig,“ sagði Littler.

Hann segir jafnframt að hann hafi hætt að heilsa áhorfendum eftir leiki helgarinnar.

„Ég vil bara spila pílu og auðvitað gefa eiginhandaráritanir. Síðustu tvö kvöld hef ég ekkert gert, bara gengið af sviðinu. Það er enginn tilgangur í því að þakka öllum þegar þeir eru að baula á mig.“

Littler á að keppa á Evrópumótinu í Dortmund í október og verður því fróðlegt að sjá hvort viðhorf hans til keppni í Þýskalandi hafi breyst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×