„Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í góðu tækifæri til að komast á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Liðið mætir Króatíu í undanúrslitum undankeppninnar um farmiða á heimsmeistaramótið og verða spilaðir leikir heima og heiman. Fótbolti 25.9.2026 09:00
Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Daníel Leó Grétarsson fagnar nýrri áskorun hjá AGF í Danmörku eftir streitumikinn lokadag félagsskiptagluggans. Skipti hans til félagsins frá Sönderjyske gengu í gegn á ögurstundu. Fótbolti 25.9.2026 08:01
Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Foreldrar Billy Vigar, knattspyrnumanns sem lét lífið eftir að hafa lent á steinsteyptum vegg umhverfis völl sem hann spilaði á með liði sínu, telja að hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða hans og skella sökinni á enska knattspyrnusamabndið. Enski boltinn 25.9.2026 07:30
Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Strákarnir í íslenska U21-landsliðinu eiga fyrir höndum tvo hörkuleiki á heimavelli í undankeppni EM og er ókeypis aðgangur á leikina, í boði bakhjarla Knattspyrnusambands Íslands. Fótbolti 24.9.2026 17:16
Landsliðin flúðu haustlægðina Karlalandslið Íslands flúði fyrstu haustlægð ársins og æfði innanhúss í Miðgarði í Garðabæ í morgun. U21 landsliðið gerði slíkt hið sama. Fótbolti 24.9.2026 16:30
Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára Brian Riemer, þjálfari danska landsliðsins, var að þjálfa U19 lið FC København þegar ungur norskur framherji var í prufu hjá liðinu í eina viku. Sá framherji var Erling Haaland og mætast þeir í kvöld í Þjóðadeildinni þegar Noregur tekur á móti Danmörku. Fótbolti 24.9.2026 15:46
„Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara dreymir ekki síður en leikmenn um að komast á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu næsta sumar. Tvö ljón eru á veginum og framundan mun sanngjarnara umspil en þegar HM-draumurinn dó í Portúgal fyrir fjórum árum. Fótbolti 24.9.2026 13:49
Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Emelía Óskarsdóttir, framherji Danmerkurmeistara Köge, eru báðar í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu. Fótbolti 24.9.2026 13:08
Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Vísir var með beina útsendingu frá Laugardalsvelli í dag þar sem Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, kynnti nýjasta landsliðshóp sinn. Fótbolti 24.9.2026 12:45
Braut kynferðislega á Andy Carroll Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Andy Carroll, var beittur kynferðislegu ofbeldi árið 2021 þegar hann var leikmaður Newcastle United. Enski boltinn 24.9.2026 11:51
Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Hákon Rafn Valdimarsson er laus við meiðsli og klár í slaginn fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeildinni. Leiða má að því líkur að hann standi milli stanganna í leikjunum fjórum í fjarveru Elíasar Rafns Ólafssonar. Fótbolti 24.9.2026 11:33
Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska landsliðsins, fékk högg á nýrað í leik við OB í dönsku úrvalsdeildina um helgina. Hann þurfti að fara undir hnífinn og verður lengi frá. Fótbolti 24.9.2026 11:17
Yoro ekki til Íslands Leny Yoro kemur ekki til Íslands að spila með U21 árs landsliði Frakka á morgun líkt og til stóð. Hann hefur tekið sæti í A-landsliðshópnum. Fótbolti 24.9.2026 10:45
„Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Kristall Máni Ingason er himinlifandi að vera með íslenska landsliðinu fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Hann er orðinn fastamaður í hópnum og nýtur þess vel. Fótbolti 24.9.2026 10:33
Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, langar að leyfa stuðningsmönnum að drekka bjór í stúkunni á fótboltaleikjum. Árið 1985 komu út lög sem bönnuðu bjórdrykkju á fótboltaleikjum til að sporna gegn óeirðum á fótboltavöllum. Enski boltinn 24.9.2026 10:01
George Gillett látinn George Gillett, fyrrverandi eigandi Liverpool, er látinn 87 ára að aldri. Enski boltinn 24.9.2026 09:31
Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, hæddist að dönsku pressunni á blaðamannafundi í gær fyrir grannslag Noregs og Danmerkur í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Fótbolti 24.9.2026 09:01
Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Leikmenn írska karlalandsliðsins í fótbolta munu funda saman á morgun um það hvernig þeir nálgist leikinn, og allt í kringum hann gegn Ísrael um komandi helgi. Mikil andstaða er gegn því að leikurinn fari fram á Írlandi. Fótbolti 24.9.2026 08:32
Dauði varnarmannsins „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu. Fótbolti 24.9.2026 08:00
Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Vísindamenn frá Gatorade Sports and Science Institute söfnuðu gögnum um svita leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og eru bundnar vonir við að niðurstöðurnar á prófunum, sem hafa verið til staðar hjá stórliðum á borð við Manchester City og Barcelona, geti skilað niðurstöðum sem gagnist leikmönnum og landsliðinu. Fótbolti 24.9.2026 07:31
Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Manchester United er enn með skuldir upp á meira en einn milljarð punda þrátt fyrir umfangsmikinn niðurskurð hjá félaginu undanfarin misseri. Enski boltinn 23.9.2026 23:16
Porro missir af sex leikjum Tottenham verður án hægri bakvarðarins Pedro Porro næstu vikurnar eftir að í ljós kom að hann verður frá keppni í um mánuð vegna meiðsla í aftanverðu læri. Enski boltinn 23.9.2026 22:31
Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Cristiano Ronaldo íhugaði alvarlega að hætta í landsliðsfótbolta eftir HM í sumar en ákvað að halda áfram þar sem hann telur sig enn geta hjálpað Portúgal að ná meiri árangri. Fótbolti 23.9.2026 21:45
Eriksen yfirgefur Wolfsburg Christian Eriksen er hættur hjá þýska félaginu Wolfsburg eftir að samkomulag náðist um að rifta samningi hans, aðeins rúmum þremur mánuðum eftir að hann hneig niður í vináttulandsleik með danska landsliðinu. Fótbolti 23.9.2026 21:00