Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Agnar Már Másson skrifar 6. september 2026 13:19 Æfingin er haldin annað hvert ár á grundvelli 75 ára varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands. Bandaríkin sendu samt ekki herskip til Íslands til að taka þátt í æfingunni. (Á mynd er breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales frá æfingunni 2022) Vísir/Vilhelm Hvorki skip né þota frá Bandaríkjunum tók þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur, sem er hluti af Norður-Víkingi. Frá 2006 hafa Bandaríkjamenn leitt æfinguna en þáttaka þeirra var minni í ár en áður. Á næstu misserum stefna Bandaríkin á að draga úr herafla sínum í NATO-ríkjum í Evrópu. „Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir Martin O'Donnell, ofursti og háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), í samtali við Vísi. Æfingunni lauk formlega á föstudag og lukkaðist vel að sögn utanríkisráðuneytisins. Á kafbátaleitaræfingunni var að sjá skip og þotur frá Íslandi, Belgíu, Þýskalandi, Kanada og Frakklandi sem eltust við kafbáta. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi leitt æfinguna frá 2006 – enda byggir hún á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna sem fagnar 75 ára afmæli í ár – var bandarísk skip og loftför í fyrsta sinn hvergi að sjá á æfingunni. Trump ætlar að draga úr herafla Bandaríkjanna í Evrópu.AP/Alex Brandon Þetta er tilbreyting frá því sem tíðkast hefur í Norður-Víkingi; árið 2024 tóku til dæmis bandarísk landgönguskip með landgönguliðum og flugvélum þátt. O'Donnel ofursti kvaðst ekki geta svarað fyrir það hvers vegna Bandaríkjamenn væru ekki meðal þátttakenda og vísaði þeim spurningum á Bandaríkjastjórn. Þátttaka Bandaríkjamanna í NATO hefur farið minnkandi undanfarin misseri og ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum gaf út í sumar að hún myndi draga úr hernaðarlegu framlagi til NATO í Evrópu. Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006. „Sterkari Evrópa og sterkara NATO“ Bandaríkjamenn voru þó ekki fjarverandi með öllu, heldur tóku þeir þátt í öðrum smærri æfingum í kringum Norður-Víking; svokallaðar SeaBee-herdeildir reistu tjaldbúðir á Keflavíkurflugvelli, æfðu viðgerðir og tóku þátt í ýmsum æfingum með viðbragðsaðilum á Íslandi. Einnig æfðu þeir sig í því að lenda stórri C-130J Hercules-flugvél í erfiðum aðstæðum. Íslenskir sprengjusérfræðingar með bandarískum hermönnum við leit að sprengjum á gömlu æfingasvæði varnarliðsins við Fagradalsdjall á heræfingunni Norður-víkingur.Landhelgisgæslan „Bandaríkin voru enn mjög stór þátttakandi í þessu – þó með öðrum hætti – og ég held að það sýni í raun sterkari Evrópu núna og sterkara NATO, sem er einmitt stefnan sem NATO hefur tekið,“ segir O'Donnel, sem tekur fram að það sé ekki endilega óalgengt að lönd taki þátt í mismunandi æfingum hverju sinni. En kafbátaæfingin er engu að síður krúnudjásn Norður-Víkings og því er það tilbreyting að bandarísk herskip hafi ekki tekið þátt. Pakka saman í Evrópu Á sama tíma hafa Bandaríkin sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum. Listinn er liður í áætlunum Bandaríkjamanna um að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Utanríkisráðuneytið hefur ekki viljað veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara spurningalistanum. Þrátt fyrir fjarveru Bandaríkjamanna í kafbátaleitaræfingunni tilkynnti utanríkisráðuneytið á föstudag að varnaræfingin hefði lukkast vel. NATO Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Landhelgisgæslan Utanríkismál Donald Trump Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira
„Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir Martin O'Donnell, ofursti og háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), í samtali við Vísi. Æfingunni lauk formlega á föstudag og lukkaðist vel að sögn utanríkisráðuneytisins. Á kafbátaleitaræfingunni var að sjá skip og þotur frá Íslandi, Belgíu, Þýskalandi, Kanada og Frakklandi sem eltust við kafbáta. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi leitt æfinguna frá 2006 – enda byggir hún á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna sem fagnar 75 ára afmæli í ár – var bandarísk skip og loftför í fyrsta sinn hvergi að sjá á æfingunni. Trump ætlar að draga úr herafla Bandaríkjanna í Evrópu.AP/Alex Brandon Þetta er tilbreyting frá því sem tíðkast hefur í Norður-Víkingi; árið 2024 tóku til dæmis bandarísk landgönguskip með landgönguliðum og flugvélum þátt. O'Donnel ofursti kvaðst ekki geta svarað fyrir það hvers vegna Bandaríkjamenn væru ekki meðal þátttakenda og vísaði þeim spurningum á Bandaríkjastjórn. Þátttaka Bandaríkjamanna í NATO hefur farið minnkandi undanfarin misseri og ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum gaf út í sumar að hún myndi draga úr hernaðarlegu framlagi til NATO í Evrópu. Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006. „Sterkari Evrópa og sterkara NATO“ Bandaríkjamenn voru þó ekki fjarverandi með öllu, heldur tóku þeir þátt í öðrum smærri æfingum í kringum Norður-Víking; svokallaðar SeaBee-herdeildir reistu tjaldbúðir á Keflavíkurflugvelli, æfðu viðgerðir og tóku þátt í ýmsum æfingum með viðbragðsaðilum á Íslandi. Einnig æfðu þeir sig í því að lenda stórri C-130J Hercules-flugvél í erfiðum aðstæðum. Íslenskir sprengjusérfræðingar með bandarískum hermönnum við leit að sprengjum á gömlu æfingasvæði varnarliðsins við Fagradalsdjall á heræfingunni Norður-víkingur.Landhelgisgæslan „Bandaríkin voru enn mjög stór þátttakandi í þessu – þó með öðrum hætti – og ég held að það sýni í raun sterkari Evrópu núna og sterkara NATO, sem er einmitt stefnan sem NATO hefur tekið,“ segir O'Donnel, sem tekur fram að það sé ekki endilega óalgengt að lönd taki þátt í mismunandi æfingum hverju sinni. En kafbátaæfingin er engu að síður krúnudjásn Norður-Víkings og því er það tilbreyting að bandarísk herskip hafi ekki tekið þátt. Pakka saman í Evrópu Á sama tíma hafa Bandaríkin sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum. Listinn er liður í áætlunum Bandaríkjamanna um að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Utanríkisráðuneytið hefur ekki viljað veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara spurningalistanum. Þrátt fyrir fjarveru Bandaríkjamanna í kafbátaleitaræfingunni tilkynnti utanríkisráðuneytið á föstudag að varnaræfingin hefði lukkast vel.
Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006.
NATO Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Landhelgisgæslan Utanríkismál Donald Trump Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira