NATO

NATO

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Banda­menn taka fá­lega í aðstoðarkröfur Trumps

Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran.

Erlent
Fréttamynd

„Þá er Ís­land kannski næsti biti“

Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 

Innlent
Fréttamynd

Staða Ís­lands í breyttum heimi

Umræða um framtíð Íslands ætti að snúast um tímasetningu, hagsmuni og ábyrgð. Spurningin er ekki hvort Ísland eigi að vinna þétt og náið með Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess – það gerum við nú þegar – heldur hvort rétt sé að breyta grundvallarforsendum samstarfsins einmitt á þeim tíma þegar kerfið sjálft er í uppnámi.

Umræðan
Fréttamynd

Norð­menn geti ekki úti­lokað inn­rás Rússa

Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­menn og Rússar taka upp form­leg sam­skipti á ný

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi.

Erlent
Fréttamynd

Þjóðin klofin gagn­vart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu

Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Opinn fundur um áfallaþol Ís­lands

Varðberg, dómsmálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið halda fund í Norræna húsinu á milli klukkan 12:00 og 13:00 um áfallaþol Íslands. Kynnt verður áfangaskýrsla stjórnvalda sem byggir á sjö grunnviðmiðum Atlantshafsbandalagsins um áfallaþol en hún markar einn áfanga í vinnu stjórnvalda að heildstæðri kortlagningu, stefnumótun og tillögum að aðgerðum til að efla áfallaþol samfélagsins. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Segir Trump ekki reiðan Ís­landi

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs.

Erlent
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Sam­komu­lagið sem ekkert sam­komu­lag er um

Mikil óvissa ríkir varðandi meint samkomulag sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerðu í gær. Óljóst er um hvað þeir sömdu eða hvort þeir sömdu um eitthvað yfir höfuð.

Erlent
Fréttamynd

Sam­komu­lagið veiti Banda­ríkjunum að­gang að auð­lindum Græn­lands

Drög að samkomulagi Bandaríkjastjórnar við Atlantshafsbandalagið veitir Bandaríkjunum og bandalagsþjóðum í Evrópu aðgang að réttindum til jarðefnavinnslu í Grænlandi. Þá munu ríki vinna saman að þróun svokallaðrar Gullhvelfingar sem er viðurnefni á loftvarnarkerfi sem Trump vill að spanni hnöttinn og notist við gervihnetti.

Erlent
Fréttamynd

Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“

Mikil spenna hefur ríkt milli Bandaríkjanna og ríkja Evrópu vegna ásælni Trumps í Grænland og var ræðu hans á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins því beðið með mikilli eftirvæntingu í dag. Þar sagðist hann verða að eignast þetta „stóra fal­lega stykki af ís“ en nokkrum tímum síðar mátti greina meiri sáttatón hjá Bandaríkjaforseta. 

Erlent
Fréttamynd

Beiting her­valds ó­lík­leg en ekki úti­lokuð

Grænlendingar eru að ganga í gegnum erfiða tíma en ólíklegt er að Bandaríkjamenn muni beita hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þarf þó að vera undirbúin fyrir hvað sem er, í samvinnu við Dani, Evrópusambandið og aðra bandamenn.

Erlent