Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 4. september 2026 16:21 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristrún Frostadóttir. Vísir/Lýður Valberg Utanríkisráðuneytið vill ekki veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara sérstökum spurningalista sem ríkisstjórn Bandaríkjanna sendi á önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og hvernig honum hafi verið svarað, ef svo er. Eðli umræddra upplýsinga og hagsmunir sem þær tengjast mæli gegn opinberun þeirra.
Umræddur listi var sendur í síðasta mánuði en hann er liður í áætlunum Bandaríkjamanna í að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Ein spurningin á honum snýst um það hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti. Önnur er um það hvort ríkisstjórnirnar hafi bannað Bandaríkjamönnum að nota herstöðvar í ríkjum þeirra og er meðal annars vísað til stríðs Bandaríkjanna gegn Íran og hernaðaraðgerðarinnar þegar Nicolas Maduro, forseti Venesúela, var numinn á brott. Í báðum tilfellum höfðu bandalagsríki Bandaríkjanna ekki verið látin vita af því að hernaðaraðgerðir stæðu til. Spurningarnar snúast einnig um það hvort viðkomandi ríki kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum. Þá er einnig spurt, samkvæmt Bloomberg, um það hvaða afstöðu umræddar ríkisstjórnir hafi til viðmiða innan Evrópusambandsins gagnvart vopnakaupum frá Bandaríkjunum. Ríkisútvarp Finnlands sagði frá því fyrr í vikunni að Finnar væru búnir að svara spurningalistanum. Þá var haft eftir heimildarmönnum miðilsins að svörin væru byggð á „staðreyndum“ og þeim væri ekki ætlað að skjalla Trump. Vísir sendi á dögunum fyrirspurn á ráðuneytið um það hvort búið væri að svara spurningalistanum og hvort hægt væri að sjá hann og svörin. Svarið má sjá hér að neðan: „Bandaríkin og aðildarríki Atlantshafsbandalagsins eiga í virku samráði um langtímaviðbúnað og hernaðarlega getu Bandaríkjanna í Evrópu. Samráð fer fram innan bandalagsins með þátttöku allra aðildarríkja og er umræddur spurningalisti einn af mörgum þáttum í þeirri heildarvinnu. Umrætt gagn varðar samskipti Íslands og Bandaríkjanna sem byggjast á gagnkvæmu trausti - og samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins á sviði öryggis- og varnarmála. Utanríkisráðuneytið telur að eðli upplýsinganna og þeir hagsmunir sem þeim tengjast mæli gegn afhendingu gagnsins.“
NATO Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira