Erlent

Tveir á­kærðir vegna upp­ákomu við banda­ríska her­stöð á Eng­landi

Kjartan Kjartansson skrifar
Bandarísk B1-sprengjuflugvél á Fairford-flugherstöðinni á Englandi í september. Bandaríkjaher dró sprengjuvélar sínar þaðan af ótta við árásir Írana.
Bandarísk B1-sprengjuflugvél á Fairford-flugherstöðinni á Englandi í september. Bandaríkjaher dró sprengjuvélar sínar þaðan af ótta við árásir Írana. AP/Alastair Grant

Bresk yfirvöld hafa ákært tvo breska karlmenn á grundvelli þjóðaröryggislaga vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi í síðasta mánuði. Annar þeirra er sakaður um að veita írönsku leyniþjónustunni liðsinni.

Ákærurnar tengjast uppákomu fyrir utan Fairford-flugherstöðina á vestanverðu Englandi 27. september. Fimm manns voru handteknir þar og var viðbúnaður líkt og þeir hefðu hugað á hryðjuverk þar. Flugvöllurinn var notaður undir bandarískar sprengjuflugvélar sem tóku þátt í loftárásum á Íran áður en Bandaríkjaher lagði á flótta frá nokkrum herstöðvum í þessum mánuði.

Breskir saksóknarar segja að annar mannanna sé ákærður fyrir að aðstoða írönsku leyniþjónustuna. Hann var handtekinn í vikunni.

Hinn maðurinn var á meðal þeirra fimm sem voru handteknir við herstöðina. Honum var sleppt strax á eftir en svo handtekinn aftur í síðustu viku. Hann sætir nú ákæru fyrir innbrot á lokað svæði í tilgangi sem sé skaðlegur breskum þjóðarhagsmunum.

Uppi varð fótur og fit þegar mennirnir voru handteknir á sínum tíma. Fjöldi íbúa í nágrenninu var látinn yfirgefa heimili sín á meðan sprengjusérfræðingar voru sendir inn. Engar sprengjur fundust þó í bíl mannanna, en töluvert magn af eldsneyti.

Írönsk stjórnvöld hafa hafnað því að hafa nokkuð með uppákomuna að gera. Þau telji þó allar herstöðvar sem notaður séu í stríði gegn Íran lögmæt skotmörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×