Erlent

Vučić játar ó­sigur

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Alexander Vučić hefur verið fastur liður í stjórnmálum landsins í langan tíma.
Alexander Vučić hefur verið fastur liður í stjórnmálum landsins í langan tíma. Getty

Aleksandar Vučić formaður stjórnarflokks Serbíu hefur viðurkennt ósigur sinn í skyndikosningum til þings sem fóru fram þar í landi í dag.

Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsætisráðherra og forseta. Knúið var á um kosningar í flýti eftir tvö ár af nær látlausum mótmælum undir forystu stúdenta.

Samkvæmt bráðabirgðatölum stefnir allt í stórsigur lista stúdenta.

„Lokatölur liggja ekki fyrir en það er ljóst að við höfum tapað þessum kosningum,“ sagði Vučić við stuðningsmenn sína á kosningavöku flokks síns á tíunda tímanum í kvöld að íslenskum tíma.

Kjörsóknartölur hafa ekki verið staðfestar enda stutt síðan kjörkössum var lokað en allt bendir til þess að þátttaka hafi verið sögulega mikil.

Kosningarnar marka hápunkt tæplega tveggja ára mótmælaöldu sem hófst eftir að steypt skyggni við lestarstöðina í Novi Sad hrundi í nóvember 2024 með þeim afleiðingum að sextán létust.

Slysið varð að tákni fyrir það sem mótmælendur telja útbreidda spillingu, frændhygli og ábyrgðarleysi í serbneskum stjórnmálum. Stúdentar tóku forystu í mótmælunum og lokuðu um tíma háskólum og götum víða um land.

Í kosningunum bauð mótmælahreyfingin fram lista 250 frambjóðenda sem voru valdir á fundum stúdenta við háskóladeildir landsins. Þeirra á meðal eru háskólakennarar, læknar, leikarar og aðrir einstaklingar utan hefðbundinnar flokkspólitíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×