Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Skorar á Kraft að jafna fram­lag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa

Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vilja verða jafningjar Eng­lendinga

Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð.

Erlent
Fréttamynd

Fara­ge kemur frönskum skoðana­bróður í klandur

Hart er nú sótt að Jordan Bardella, forseta Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, vegna samkomulags sem hann gerði við Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins í Bretlandi nýlega. Samkomulagið er sagt ganga í berhögg við stefnu Þjóðfylkingarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Banna breskum þing­mönnum að koma til Ísraels

Ísraelsk stjórnvöld ætla að banna ellefu breskum þingmönnum að koma til landsins og láta loka bresku ræðisskrifstofunni í Jerúsalem. Það er hluti af svari þeirra var refsiaðgerðum Breta gegn landtökubyggðum gyðinga á hernumndum svæðum Palestínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn hefur nám við Eton-skóla

Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda.

Lífið
Fréttamynd

Greiða 4,3 milljarða vegna sölu per­sónu­upp­lýsinga

Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lést eftir mis­lukkaða typpastækkun í Taí­landi

Bresk-nígeríski viðskiptajöfurinn Igho „Tiny“ Ubiribo lést eftir að farið í typpastækkunaraðgerð í Taílandi en hann var þar í fríi með eiginkonu sinni í mars. Upphaflega var talið að Ubiribo hefði dáið úr hjartaáfalli en nú hefur dánardómstjóri úrskurðað að typpastækkunin hafi dregið hann til dauða.

Lífið
Fréttamynd

Skrifaði sig í sögu­bækur Cambridge

„Maður finnur drifkraftinn og brennandi áhugann í loftinu frá öllu fólkinu í kringum mann og það er mjög smitandi,“ segir hin 25 ára gamla og kraftmikla Guðrún Diljá Agnarsdóttir sem er búsett í Cambridge í Bretlandi þar sem hún er á lokaárinu sínu í doktorsnámi og rannsakar líffræðilegar afleiðingar stökkbreytinga í geni sem valda Parkinson-sjúkdómi. Samhliða krefjandi námi stundar hún róður af fullum krafti en hún féll fyrir sportinu á fyrstu vikunum sínum úti og vann nýverið til virtra verðlauna á því sviði. 

Lífið
Fréttamynd

Á­kærður fyrir að brjóta á börnum

Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews.

Erlent
Fréttamynd

Hættir með stefnumótaþættina vin­sælu

Amelia Dimoldenberg hefur ákveðið að hætta með þættina geysivinsælu Chicken Shop Date. Hún hefur haldið úti þáttunum í rúman áratug og fengið til sín yfir hundrað gesti á „stefnumót.“ 

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… London?

London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum.

Lífið
Fréttamynd

Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn að­dáandi“

„Ég er sáttur með það,“ svaraði Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út í þær fréttir að Harry Bretaprins og Meghan, hertogaynja af Sussex, væru flutt frá Bandaríkjunum aftur til Bretlands.

Erlent
Fréttamynd

Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter

HBO hefur birt aðra stiklu fyrir fyrstu þáttaröðina um ævintýri galdradrengsins Harry Potter og félaga í Hogwarts. Stiklan sýnir meðal annars frá flokkun nýnema, þegar flokkunarhatturinn velur skikkar Harry og aðra á heimavistir skólans síhættulega.

Lífið
Fréttamynd

Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýska­landi

Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést en hún hafði hlotið mjög alvarlega áverka. Maður sem er grunaður um verknaðinn verður leiddur fyrir dómara á eftir.

Erlent
Fréttamynd

Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára ill­deilur

Harry prins og Meghan, hertogaynja af Sussex, komu til Bretlands í dag ásamt börnum sínum, sex árum eftir að þau hættu opinberum störfum fyrir konungsfjölskylduna og fluttu til Kaliforníu. Bæði AP og Reuters greina frá komunni.

Erlent
Fréttamynd

Harington tekur við af upp­teknum Hoult

Krúnuleikastjarnan Kit Harington mun leika galdrakennarann Gilderoy Lockhart í annarri seríu af sjónvarpsþáttunum um Harry Potter á HBO. Hann kemur í stað Nicholas Hoult, sem er þekktastur fyrir leik sinn í About a Boy og Superman, sem þurfti að hætta vegna skipulagsárekstra.

Bíó og sjónvarp