Innlent

Feðgar séu í haldi í tengslum við málið þar sem maður lést

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá vettvangi árásarinnar en þar er búið að koma fyrir blómum og kertum.
Frá vettvangi árásarinnar en þar er búið að koma fyrir blómum og kertum. Vísir/Viktor Freyr

Íslenskir feðgar eru á meðal þeirra þriggja sem eru í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti í nótt. Þetta herma heimildir RÚV. Sonurinn sé talinn hafa beitt hnífnum í átökum við tvo menn.

Að sögn RÚV er sonurinn á fertugsaldri og faðirinn tæplega sextugur en ekki liggi fyrir hver aðkoma hins síðarnefnda var. Feðgarnir séu báðir með áverka eftir átökin. Mbl.is hefur jafnframt eftir ónafngreindum heimildum að lögregla hafi fundið árásarvopnið í fjölbýlishúsi í hverfinu síðdegis í dag.

Lögregla greindi frá því fyrir hádegi að karlmaður á fertugsaldri væri látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt. Utandyra hafi fundist tveir menn vera með alvarlega áverka sem taldir eru hafa verið eftir hnífsstungur. Voru þeir fluttir á slysadeild þar sem annar var fljótlega úrskurðaður látinn. Hinn lægi á gjörgæsludeild.

Búið er að koma fyrir blómum og kertum á vettvangi árásarinnar.Vísir/Viktor Freyr
Vísir/Viktor Freyr
Vísir/Viktor Freyr

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×