Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Agnar Már Másson skrifar 17. ágúst 2026 23:47 Rússneskur hermaður með dróna í Úkraínu. EPA/Varnarmálaráðuneyti Rússlands Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins.
Breska stórblaðið Telegraph greinir frá þessu en rannsókn miðilsins hefur leitt í ljós hið minnsta tíu rússneskar herstöðvar með nýbyggðum skotpöllum fyrir langdræga sprengidróna. Sumar herstöðvarnar eru þegar notaðar í árásir á Úkraínu. Þar sem þær eru nálægt landamærunum er auðveldara að komast hjá loftvörnum Kænugarðs, að sögn miðilsins. Þá séu stöðvarnar sömuleiðis sagðar geta ógnað bandalagsríkjum NATO en í umfjöllun Telegraph er haft eftir ónafngreindum sérfræðingum að tækninni gæti einnig verið beint gegn Evrópu ef til stríðs kæmi. Sumar herstöðvarnar gætu skotið öflugustu drónum Rússlands í skotfæri við Varsjá í Póllandi. Þá er haft eftir evrópskum og bandarískum leyniþjónustumönnum að Rússar séu taldir íhuga vopnaða ögrun á pólskri grund, eldflauga- eða drónaárásir á lykilinnviði. Embættismaður NATO sagði við The Telegraph að hernaðarbandalagið væri „tilbúið að verja hvern sentimetra af landsvæði bandalagsins“ og myndi halda áfram að „auka viðbúnað okkar til að fæla frá og verjast hvers kyns ógn, þar á meðal frá drónum“. Telegraph segist hafa borið saman skjöl sem lekið hefur verið við gervihnattamyndir og þannig greint að minnsta kosti 59 nýja skotbrautarteina meðfram landamærum Rússlands að Hvíta-Rússlandi og Úkraínu. Skotbrautarteinar eru vélrænir stýribrautarteinar sem notaðir eru við flugtak dróna með föstum vængjum í stað hefðbundinnar flugbrautar. Slíkar brautir hafa sést í Tsimbulova, Kúrsk, Asovitsa-Ashelok og Millerovo. Rússar hafa sömuleiðis á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum, samkvæmt umfjöllun skandinavískra ríkismiðla frá því í júní. Þar mátti sjá á loftmyndum hvernig gróður víða hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðum í Rússlandi sem eru í nágrenni við landamæri að Evrópulöndum.
Ólögleg drónaumferð á evrópskum flugvöllum NATO Rússland Bretland Úkraína Öryggis- og varnarmál Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira