Rússland
1 2 3 4 5 6 … 104 ›
Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Prófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands segir framtíð öryggismála í Evrópu vera járntjald sem liggi meðfram landamærum Finnlands, Eystrasaltslandanna, Póllandi, Úkraínu og niður að Svartahafi. Hervæðingin í Evrópu muni halda áfram þrátt fyrir að Úkraínustríðinu ljúki. Erlent 27.4.2025 15:22
Úkraínskir hermenn séu farnir úr Kúrsk með hjálp Norður-Kóreu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti að rússneski herinn hefði náð að hrekja hermenn Úkraínu úr Kúrskhéraðinu en talsmenn Úkraínu neita staðhæfingu forsetans. Yfirhershöfðingi Rússa staðfesti að Norður-Kóreskir hermenn taka þátt í stríðinu. Erlent 26.4.2025 20:04
Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir Vladimír Pútín, forseta Rússland, ekki vilja ljúka stríðinu sem hófst með innrás Rússa inn í Úkraínu. Trump sakar Pútín um að draga sig á asnaeyrunum Erlent 26.4.2025 18:02
Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Umtalsverður munur er á tillögum Bandaríkjastjórnar annars vegar og Evrópuríkja og Úkraínu hins vegar að friðarsamkomulagi við Rússland. Tillögur Bandaríkjastjórnar virðast láta meira undan Rússum og vera óljósari um tryggingar fyrir vörnum Úkraínu og hver skuli bæta tjón landsins af innrásinni. Erlent 25.4.2025 15:42
Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Undirhershöfðingi sem situr í herforingjaráði Rússlands lést þegar bílsprengja sprakk í bænum Balashikha í umdæmi höfuðborgarinnar Moskvu í morgun. Sprengjan er sögð hafa sprungið þegar herforinginn gekk fram hjá kyrrstæðum bíl. Erlent 25.4.2025 10:16
Þrír látnir og tugir særðir Úkraínumenn segja að þrír séu látnir hið minnsta í árásum Rússa á landið í nótt sem hafa haldið áfram þrátt fyrir gagnrýni Trumps Bandaríkjaforseta á athæfin í gær. Eitt barn liggur í valnum og tugir eru særðir. Hundrað og þrír drónar voru notaðir við árásir í nótt sem beindust aðallega að borgunum Kharkiv og Pavlohrad þar sem dauðsföllin urðu. Erlent 25.4.2025 08:45
„Vladímír, HÆTTU!“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segist mjög óánægður með loftárásir Rússa á Kænugarð í nótt og biður Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að hætta árásunum. Erlent 24.4.2025 13:56
Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Úkraínumenn segjast ekki ætla að ræða það að gefa landsvæði eftir fyrir frið fyrr en eftir að búið verði að koma á almennu vopnahléi. Þetta gerðu úkraínskir erindrekar Bandaríkjamönnum ljóst í gær og leiddi það til þess að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, hættu við að mæta á viðræðufund í Lundúnum í dag. Erlent 23.4.2025 15:01
Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segir að auka þurfi hergagnaframleiðslu ríkisins enn frekar og undirbúa Rússlandi fyrir frekari stríð í framtíðinni. Hergagnaframleiðsla í Rússlandi rúmlega tvöfaldaðist á síðasta ári en Pútín segir það ekki duga til, því framtíðin nálgist óðfluga. Erlent 23.4.2025 13:51
Úkraínufundinum í London frestað Friðarviðræðum sem halda átti í London vegna Úkraínustríðsins í dag var aflýst nú í morgunsárið. Erlent 23.4.2025 07:55
Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur stungið upp á því að hann muni stöðva innrás sína í Úkraínu og láta af kröfum sínum til afganga fjögurra héraða í Úkraínu, sem Rússar stjórna ekki að fullu. Þetta segist hann tilbúinn til að gera í skiptum fyrir viðurkenningu Bandaríkjanna á eignarrétti Rússa á Krímskaga, sem var innlimaður ólöglega árið 2014. Erlent 22.4.2025 19:55
Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Loftvarnarsírenur ómuðu um Kænugarð og víða í austurhluta Úkraínu snemma í morgun eftir að „páskavopnahlé“ Pútíns Rússlandsforseta lauk formlega. Erlent 21.4.2025 08:40
Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra segir vopnahlé sem boðað var milli Rússlands og Úkraínu yfir páskana litlu máli skipta. Ásakanir hafa gengið milli aðila um brot á vopnahléinu. Innlent 20.4.2025 14:37
Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að frá því að páskavopnahlé Pútíns Rússlandsforseta tók gildi klukkan sex í gærkvöld og til miðnættis hafi Rússar gert 387 stórskotaliðsárásir, 19 áhlaup og 290 flygildaárásir. Erlent 20.4.2025 09:27
Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir enn barist í héruðum Kúrsk og Belgorod og „páskavopnahlé“ Pútín því ekki náð til þeirra. Vladímír Saldo, ríkisstjóri Rússa yfir Kherson-héraði, segir Úkraínumenn ekki heldur hafa virt vopnahléð. Erlent 19.4.2025 22:06
Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Utanríkisráðherra segir páskavopnahlé í átökum Rússa við Úkraínu óvænt og jákvætt skref en öllum ákvörðunum Pútín beri að taka með fyrirvara. Eitthvað meira liggi að baki ákvörðuninni en þrá eftir friði. Tortryggnin sé mikil þegar kemur að einræðisherra á borð við Pútín. Innlent 19.4.2025 18:59
„Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Vladímír Pútín Rússlandsforseta leika sér að mannslífum. Úrkaínuforseti virðist ekki trúa yfirlýsingu Rússaforsetans um „páskavopnahlé.“ Erlent 19.4.2025 15:52
Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Vladímír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti í dag „páskavopnahlé“ í stríðsátökum þeirra við Úkraínu. Umrætt vopnahlé á að hefjast í kvöld og standa yfir til miðnættis á sunnudag. Erlent 19.4.2025 14:23
Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Utanríkisráðherra segir vonbrigði að kraftlyftingakappinn Hafþór Júlíus Björnsson hafi ákveðið að taka þátt á kraftlyftingamóti í Síberíu í Rússlandi um páskana. Hafþór Júlíus er einn af sjö erlendum keppendum á mótinu sem kallast Siberian Pro og fer fram 19. og 20. apríl. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, segir íþróttafólki frjálst að taka þátt í þeim keppnum sem það kýs, en þykir þátttakan umhugsunarverð í ljósi stríðsreksturs Rússa í Úkraínu. Innlent 17.4.2025 16:24
Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Fjórir rússneskir blaðamenn voru í dag dæmdir til fimm og hálfs árs fangelsisvistar fyrir samstarf sitt við stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní. Erlent 15.4.2025 21:46
Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Volódómír Selenskí Úkraínuforseti sé ábyrgur fyrir stríðsástandinu í landinu. Erlent 15.4.2025 06:59
Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Evrópskir leiðtogar hafa fordæmt mannskæða árás Rússa á Súmí í Úkraínu í gær en Bandaríkjaforseti segir Rússa hafa gert mistök. Á fjórða tug almennra borgara fórst í árásinni. Erlent 14.4.2025 22:02
Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Helstu bandamenn Úkraínumanna í stríði þeirra við innrásarher Rússa hafa fordæmt harkalega eldflaugaárásina sem gerð var á borgina Sumy í gærmorgun. Þrjátíu og fjórir létu lífið og um 120 særðust í árásinni, sem er sú mannskæðasta á þessu ári í stríðinu. Erlent 14.4.2025 07:00
Þorgerður Katrín fordæmir loftárás Rússa Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmir mannskæða loftárás Rússa á borgina Súmí í norðurhluta Úkraínu í morgun. Innlent 13.4.2025 13:53
Tugir sagðir liggja í valnum eftir eldflaugaárás á Sumy Margir óbreyttir borgarar eru sagðir liggja í valnum eftir að að minnsta kosti ein rússnesk skotflaug lenti í miðborg Sumy í norðurhluta Úkraínu. Sprengjuflaugin lenti þegar margir voru á götum borgarinnar og á leið til kirkju að fagna pálmasunnudegi. Erlent 13.4.2025 09:00
Skjótasta leiðin að friði að verða við kröfum Rússa Skjótasta leiðin til að koma á vopnahléi í Úkraínu er að verða við kröfum Rússa og leyfa þeim að taka yfir stjórn fjögurra héraða í Úkraínu. Þetta sagði Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, við forsetann bandaríska eftir fund hans með rússneskum erindreka í síðustu viku. Erlent 12.4.2025 08:58
Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Forseti Úkraínu segir að tveir kínverskir ríkisborgarar sem börðust í rússneska hernum hafi verið teknir höndum í austanverðri Úkraínu. Vísbendingar séu um að fleiri Kínverjar leynist í innrásarliðinu. Úkraínsk stjórnvöld krefji nú Kínverja svara um mennina. Erlent 8.4.2025 14:14
Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Volodómír Selenskí Úkraínuforseti hefur nú loks staðfest opinberlega að úkraínskir hermenn séu í Belgorod-héraði í Rússlandi. Erlent 8.4.2025 07:52
Saka Pútín um að draga lappirnar Yfirvöld í Bretlandi og Frakklandi sökuðu í morgun Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að draga lappirnar í friðarviðræðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Bretar og Frakkar krefjast skjótra viðbragða frá Pútín vegna viðleitni Bandaríkjamanna til að koma á vopnahlé. Erlent 4.4.2025 09:56
Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Bandarískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað við kollega sína í Evrópu yfir ætlunum ráðamanna þar um að draga úr hergagnakaupum frá Bandaríkjunum. Mörg ríki Evrópu stefna nú á umfangsmikla hernaðaruppbyggingu sem má að hluta til rekja til ótta við að Evrópa geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin. Erlent 2.4.2025 16:04