Rússar svara fyrir sig Samúel Karl Ólason skrifar 7. september 2026 17:52 Sergei Lavrov er utanríkisráðherra Rússlands. EPA/ALEXANDER ZEMLIANICHENKO Utanríkisráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Pétursborg yrði lokað. Þar að auki yrði Þjóðverjum gert að loka þýskum menningarsetrum í Moskvu og Pétursborg. Með þessu eru Rússar að svara með nánast sams konar aðgerðum og Þjóðverjar beittu Rússa á dögunum.
Í síðustu viku opinberuðu ráðamenn í Þýskalandi að rannsókn hefði leitt í ljós að rússneskir útsendarar hefðu reynt sjálfsprengidrónaárás á flugvellinum í Leipzig í ágúst. Var Rússum í kjölfarið gert að loka ræðismannsskrifstofu í Bonn og rússnesku menningarsetri í Berlín. Sjá einnig: Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Í yfirlýsingu frá rússneska utanríkisráðuneytinu segir að þetta sé til komið vegna „óvinveittra“ aðgerða Þjóðverja. Þá segir að starfsmenn ræðismannsskrifstofunnar verði að vera farnir frá Rússlandi fyrir 18. september. Áður var búið að gefa út að menningarsetrunum yrði lokað en starfsmenn þeirra verða að yfirgefa Rússland fyrir næsta sunnudag. ⚡️ In response to Germany’s unfriendly actions, Russia is taking retaliatory measures:– Germany’s Consulate General in St Petersburg must close by September 18, 2026;– Goethe-Institut cultural centres in Russia must cease operations.https://t.co/TOkO8lbsGP pic.twitter.com/mQyVK1CMR0— MFA Russia 🇷🇺 (@mfa_russia) September 7, 2026 Í yfirlýsingunni segir einnig að það séu Þjóðverjar sem beri ábyrgð á versnandi samskiptum ríkjanna. Rússar hafa verið sakaðir um að bera ábyrgð á fjölda fjölþáttaógna og árása í Evrópu á undanförnum mánuðum og árum. Margir leiðtogar í Evrópu vöruðu nýverið við því að hegðun Rússa yrði sífellt glannalegri. Bregðast yrði við þessu „nýja ástandi“.
Rússland Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira