Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Shiho Kuwaki vann Opna breska risamót kvenna í golfi eftir umspil gegn Esther Henseleit. Hún var þremur höggum frá efsta sætinu í byrjun dagsins. Golf 2.8.2026 22:30
Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti tveimur verðlaunum á klúbbmeistaramóti Bedminster. Þar er hans eigin golfvöllur og tók hann við verðlaunum sem klúbbmeistari öldungaflokks og sem heildarklúbbmeistari. Golf 2.8.2026 20:45
Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Yealimi Noh er í efsta sæti Opna breska risamóts kvenna í golfi eftir slæman hring hjá Haeran Ryu. Hún er með þriggja högga forskot á næstu kylfinga. Golf 1.8.2026 22:01
Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy mun loksins fagna sigri sínum á Masters-mótinu þegar hann tekur sér frí eftir vonbrigðaviku á Opna breska meistaramótinu. Golf 20.7.2026 13:33
„Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Ryan Fox átti magnaðan endakafla þegar hann tryggði sér sinn fyrsta risatitil í golfinu og vann fyrsta sigur Nýsjálendings á Opna breska risamótinu síðan 1963. Golf 20.7.2026 12:01
Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Bandaríski kylfingurinn Scottie Scheffler hefur tjáð sig um umdeildasta mál helgarinnar á Opna breska meistaramótinu í golfi, nefnilega refsingu landa síns Bryson DeChambeau. Golf 20.7.2026 08:03
Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Ryan Fox, 39 ára Nýsjálendingur, stóð uppi sem sigurvegari á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk í dag. Þetta er hans fyrsti sigur á risamóti á ferlinum. Golf 19.7.2026 18:07
Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Cameron Young átti erfiðan gærdag en fór fljúgandi af stað á lokadegi Opna breska meistaramótsins og er í bullandi baráttu um efsta sætið. Scottie Scheffler nálgast Sam Burns sömuleiðis óðfluga. Golf 19.7.2026 13:55
Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn Fyrir lokahring Hvaleyrarbikarsins í golfi leiða Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Öllu meiri spenna er í karlaflokknum en kvennamegin. Golf 18.7.2026 23:36
McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Rory McIlroy sakaði Bryson DeChambeau um að halda Opna breska meistaramótinu í golfi í gíslingu. DeChambeau fékk tveggja högga refsingu á öðrum hring mótsins í gær. Golf 18.7.2026 22:00
Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sam Burns er með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn á Opna breska meistaramótinu í golfi. Miklar líkur eru á því að kylfingur sem hefur aldrei unnið risamót standi uppi sem sigurvegari á Opna breska í ár. Golf 18.7.2026 19:55
Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Ryan Fox átti frábæran hring á Opna breska meistaramótinu og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale vellinum þegar hann kom í hús á 62 höggum. Hann er sá þriðji á mótinu sem jafnar vallarmetið og situr nú jafn Lucas Herbert í efsta sæti stöðutöflunnar. Golf 18.7.2026 13:41
Púttin að leika Scheffler grátt Scottie Scheffler hefur verið að skila sér inn á flatirnar í færri höggum en flestir, sem hann segir boða gott í titilvörninni á Opna breska meistaramótinu í golfi, en púttin hafa ekki verið að detta hjá honum. Golf 18.7.2026 11:02
DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau fékk í kvöld tveggja högga víti eftir annan hring sinn á 154. Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open. Honum var refsað fyrir að bæta legu sína í háu grasi fyrir annað högg sitt á fimmtu holu. Golf 17.7.2026 22:01
DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Ástralski kylfingurinn Lucas Herbert er með eins höggs forskot eftir tvo daga á Opna breska risamótinu í golfi, The Open, eftir ótrúlega spilamennsku í dag. Golf 17.7.2026 19:57
Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Enginn íslenskur kylfingur er á meðal keppenda á Opna breska risamótinu í golfi, The Open, í ár en þar verða samt Íslendingar í áhugaverðum hlutverkum. Golf 17.7.2026 18:32
Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama. Golf 17.7.2026 14:01
Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti. Golf 17.7.2026 13:27
„Of mörg heimskuleg mistök“ Rory McIlroy átti erfitt uppdráttar á fyrsta degi Opna breska meistaramótsins í golfi í gær og endaði sjö höggum á eftir efsta manni, Jackson Suber, eftir „heimskuleg mistök“. Golf 17.7.2026 09:01
Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Bandaríski kylfingurinn Jackson Suber er öllum að óvörum með forystuna eftir fyrsta dag á Opna breska risamótinu, The Open. Golf 16.7.2026 20:05
Vonar að hann fái að halda áfram að reykja Dan Brown er nafn sem kannski ekki allir þekkja en hann er sem stendur í fyrsta sæti ásamt Sung-Jae Im á Opna breska risamótinu í golfi. Hann hefur vakið athygli fyrir að vera létt og skemmtileg persóna á golfvellinum. Golf 16.7.2026 16:05
„Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ Mikil spenna er meðal golfáhugamanna fyrir Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer fram í 154. sinn um helgina og hefst raunar snemma í fyrramálið. Margra augu eru á Rory McIlroy, að venju. Golf 16.7.2026 09:32
„Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Joe Dean var síðasti kylfingurinn til að tryggja sér þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open, sem fer af stað á fimmtudaginn en það er eitt stórt vandamál. Hann vantar gistingu. Golf 13.7.2026 21:01
„Ég er svo lélegur í golfi“ Rory Mcllroy endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins en hann var ekki alltaf sáttur með höggin sín. Það er hughreystandi fyrir hinn venjulega kylfing að þeir bestu eiga líka léleg högg. Golf 13.7.2026 07:31