Viðskipti innlent

Sýndar­eftir­lit ef fylgjast eigi með skemmti­stöðum á skrif­stofu­tíma

Kjartan Kjartansson skrifar
Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, svarar gagnrýni Einars Bárðarsonar, framkvæmdastjóra SVEIT, á eftirlit lögreglu á skemmtistöðum.
Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, svarar gagnrýni Einars Bárðarsonar, framkvæmdastjóra SVEIT, á eftirlit lögreglu á skemmtistöðum. Vísir

Eftirlit með starfsemi skemmistaða verður að stórum hluta sýndareftirlit ef það má aðeins fara fram utan háannatíma, að mati framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Talsmaður hagsmunaaðila gagnrýndi um helgina að lögregla hefði lokað skemmtistöðum um helgina.

Lögreglan og Skatturinn lokuðu þremur skemmtistöðum í Reykjavík og Hafnarfirði í tengslum við athugun á rekstrarleyfum og starfsleyfum öryggisþjónustu auk hugsanlegra skattalagabrota um helgina. 

Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, gagnrýndi að lögregla skyldi ráðast í aðgerðirnar á háannatíma skemmtistaðanna. Hann gerði þó ekki athugasemdir við sakargiftirnar heldur tímasetningu aðgerðanna þegar staðirnir séu í fullri starfsemi.

Við þetta gerir Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og ritari Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, athugasemd í aðsendri grein á Vísi í morgun.

„Leyfisskyld starfsemi á skemmtistöðum fer ekki fyrst og fremst fram klukkan tíu á þriðjudagsmorgni. Hún fer fram þegar gestir eru á staðnum, þegar áfengi er veitt, þegar dyraverðir eru við störf og þegar raunveruleg áhætta getur skapast. Ef eftirlit með dyravörslu, áfengisveitingum, opnunartíma eða öryggi má aðeins fara fram utan annatíma, þá verður eftirlitið að stórum hluta sýndareftirlit,“ skrifar Sigrún.

Keppinautarnir verði fyrir óréttlæti

Bendir Sigrún á óréttlæti sem löghlýðnir veitingamenn verði fyrir þegar keppinautar þess komast mögulega hjá kostnaði með því afla ekki tilskilanna leyfa, uppfylla kröfur og standa skil á opinberum gjöldum.

„Þeir sem gera þetta rétt eiga ekki að þurfa að sitja undir því að eftirlit með ólögmætum eða vafasömum rekstri sé sett fram sem óþægindi fyrir þá sem sæta eftirlitinu. Þvert á móti ættu samtök atvinnugreinarinnar að vera fyrstir til að krefjast þess að allir sitji við sama borð,“ skrifar Sigrún.

Það sé forsenda fyrir heiðarlegum markaði að staðir sæti eftirliti.

„Háannatími getur ekki verið griðland fyrir eftirlit. Ef staður er opinn, tekur við gestum og stundar leyfisskylda starfsemi, þá verður hann að þola að eftirlit fari fram á þeim tíma sem starfsemin er í raun í gangi.“


Tengdar fréttir

Lokað vegna skorts á starfsleyfi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×