Viðskipti innlent

Hörður hættir sem for­stjóri Lands­virkjunar

Atli Ísleifsson skrifar
Hörður Arnarson.
Hörður Arnarson. Vísir/Vilhelm

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. „Hörður tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009, í miðju efnahagshruni, og á þeim 17 árum sem hann hefur gegnt starfinu hafa orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi.

Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var endursamið við stóra viðskiptavini, fjórar nýjar virkjanir byggðar, skuldir lækkaðar og í kjölfarið er Landsvirkjun nú farin að skila þjóðinni tugum milljarða í skatta og arðgreiðslur á hverju ári,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Herði að hann stígi bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár.

„Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Landsvirkjun og íslenskt samfélag – ekki síst starfsfólki fyrirtækisins. Það er ánægjulegt að skilja við Landsvirkjun jafn sterka og raun ber vitni,“ er haft eftir Herði.

Fréttamaður Sýnar mætti upp í Landsvirkjun með það fyrir augum að fá viðtal við Hörð að loknum starfsmannafundinum. Upplýsingateymi Landsvirkjunar sagði að Hörður myndi ekki veita viðtöl. Hann færi nú í vikufrí til útlanda og starfi svo hjá Landsvirkjun út október. Hörður var með á fimmtu milljón króna í mánaðarlaun árið 2025 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. 

„Ómetanlegt framlag“

Í tilkynningunni er jafnframt haft eftir Brynju Baldursdóttur, stjórnarformanni Landsvirkjunar, að þakklæti sé efst í huga stjórnarinnar við þessi tímamót.

„Fyrir hönd stjórnar Landsvirkjunar vil ég færa Herði innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag hans til fyrirtækisins undanfarin sautján ár. Hann tók við stjórnartaumunum á krefjandi tímum og hefur síðan leitt Landsvirkjun af festu og framsýni í gegnum miklar breytingar og öfluga uppbyggingu.

Árangurinn talar sínu máli og orkufyrirtæki þjóðarinnar stendur í dag traustum fótum, vel í stakk búið til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Við erum afar þakklát fyrir samstarfið og óskum Herði og fjölskyldu hans alls hins besta á komandi árum,“ segir Brynja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×