Viðskipti innlent

Selja fyrir 400 milljónir í Síldar­vinnslunni

Agnar Már Másson skrifar
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar. Vísir/arnar

Félag í meirihlutaeigu Gunnþórs Ingvarssonar, forstjóra Síldarvinnslunnar, seldi í gær hlutabréf í útgerðinni fyrir rúmlega fjögur hundruð milljónir króna.

Í tilkynningu til kauphallar segir að Hraunlón ehf. hafi selt 3,5 milljónir hluta í Síldarvinnslunni og þar sem hver hlutur er metinn á 117 krónur nemur heildarupphæðin 409,5 milljónum króna. Kaupin áttu sér stað í gær.

Gunnþór á 60 prósent í Hraunlóni ehf. á móti Axel Ívarssyni, fjármálastjóra Síldarvinnslunnar, og Jóni Má Jónssyni, sem var áður yfirmaður landvinnslu hjá Síldarvinnslunni, sem eiga hvor tveggja 20 prósent.

Fyrir kaupin átti félagið um 17,2 milljónir hluta í Síldarvinnslunni, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar, og átti því um 0,94 prósent í félaginu, og má því reikna með að félagið eigi nú um 13,7 milljónir hluta.

Samherji hf. á stærstan hlut í Síldarvinnslunni með um 30 prósent og Kjálkanes næststærstan hlut með um 16 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×