Viðskipti innlent

Hafi ekki að­hafst nóg vegna bílastæðagjalda

Lovísa Arnardóttir skrifar
FÍB gagnrýnir aðgerðaleysi Hönnu Katrínar í bílastæðamálum. 
FÍB gagnrýnir aðgerðaleysi Hönnu Katrínar í bílastæðamálum. 

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir að stjórnvöld hafi lítið sem ekkert aðhafst vegna bílastæðagjalda þrátt fyrir loforð um að gera það fyrir um ári síðan. Í tilkynningu gagnrýnir félagið einnig að engar stórar breytingar hafi verið gerðar á innheimtu vangreiðslugjalda vegna innheimtu bílastæðagjalda.

Það eina sem hafi breyst, frá boðuðum aðgerðum ráðherra í janúar, sé að innheimtufyrirtækin hafi bætt við ítarlegri texta með smærra letri og að reikningar fylgi nú kröfum í heimabanka.

Í tilkynningu sem birt var fyrir helgi á vef félagsins er bent á að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafi fyrr á þessu ári boðað aðgerðir vegna málsins. Skerpa ætti á lögum um markaðssetningu, breyta reglugerð um umferðarmerki og setja upp vefsíðu með yfirliti um öll gjaldskyld bílastæði. Þá sagði hún einnig koma til greina að setja eina heildstæða reglugerð um gjaldskyld bílastæði.

Ekkert aðhafst

FÍB segir að enn hafi vefsíða með yfirliti um gjaldskyld bílastæði ekki verið sett upp og engin reglugerð hafi verið sett um gjaldskyld bílastæði eða umferðarmerki.

„Stjórnvöld hafa síðan ekkert aðhafst gagnvart ósvífnustu innheimtunni, hjá sínu eigin fyrirtæki, Isavia. Þar eru miskunnarlaust rukkaðar 500 krónur fyrir hverja mínútu umfram fimm í brottfararrennunni á Keflavíkurflugvelli,“ segir í tilkynningunni.

Þar er bent á að Hanna Katrín hafi í janúar haldið fund þar sem farið var yfir stöðuna og aðgerðir kynntar, á sama tíma hafi Neytendastofa gefið út leiðbeiningar um merkingar, skilmála og greiðslufyrirkomulag á gjaldskyldum bílastæðum.

Þá hafi ný lög um markaðssetningu tekið gildi í maí en þau hafi lítil sem engin áhrif haft á það sem kvartað er undan, það er vangreiðslugjöldin.

„Aftur á móti sektaði Neytendastofa Parka og Easypark í ágúst vegna ófullnægjandi upplýsinga og merkinga. Aðgerðir Neytendastofu virðast alfarið snúa að smáa letrinu,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins

Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var.

Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi

Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að nýfallinn dómur í Noregi vegna ólögmætra gjalda á bílastæði geti verið fordæmisgefandi á Íslandi. Innheimtufyrirtækinu Riverty var gert skylt að greiða norskum bílstjórum hundruð milljóna norskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×