Viðskipti innlent

Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sonja er spennt að takast á við ný verkefni.
Sonja er spennt að takast á við ný verkefni. Bent Marinósson

Sonja Ýr Eggertsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri hjá tæknifyrirtækinu OK. Undanfarin fjögur ár hefur hún starfað sem viðskiptastjóri hjá Wise Lausnum en áður sem markaðsstjóri hjá Þekkingu.

Í tilkynningu kemur fram að hún sé með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

„Ég er mjög spennt og ánægð með að hafa gengið til liðs við OK. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugu fagfólki og spennandi lausnum fyrir fyrirtæki og ég hlakka til að kynnast viðskiptavinum og takast á við ný verkefni,“ segir Sonja.

OK er tæknifyrirtæki sem býður fyrirtækjum og stofnunum lausnir og þjónustu á sviði upplýsingatækni. Um 150 manns starfa hjá fyrirtækinu.

„Við erum mjög ánægð með að fá Sonju til liðs við okkur. Við hjá OK leggjum mikla áherslu á að byggja upp traust langtímasambönd við okkar viðskiptavini, þar sem við þekkjum vel þeirra starfsemi og þarfir. Viðskiptastjórar gegna lykilhlutverki í þeirri nálgun og við teljum að reynsla Sonju falli mjög vel að þeim áherslum,“ segir Karl Óskar Kristbjarnarson, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá OK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×